Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. JANÚAR 2004 13
Ý
msar sagnir og getgátur eru til
um landnám á Kanarí-eyjum.
Telja sagnfræðingar sennilegt
að eyjarnar hafi verið byggðar
tveimur til þremur þúsund ár-
um fyrir Krist.8 Til eru óljósar
grískar heimildir um eyjar utan
við strönd Afríku, þar sem veð-
ur séu mild, vegna þess, að þar blási hlýir vindar
af hafi allt árið. Vitnað er þessu til stuðnings í
heimildir eftir Hómer. Einnig er talið að Róm-
verjum hafi verið kunnugt um staðinn. Getur
Pliníus eldri um eyjarnar Hispidus og Gæfu-eyj-
ar vestan Atlasfjalla, sem eru í norð-vestan-
verðri Afríku. Til er heimild um, að Juna kóngur
í Mauritaníu í Afríku hafi kannað eyjarnar um 40
f. Kr. og meðal annars fundið þar mikið af
stórum hundum. Nefndi hann því eyjarnar Can-
arí-eyjar eftir hundunum (Canis á latínu). Það
var síðan ekki fyrr en á 14. öld, að Evrópubúar
hófu ýmsa leiðangra að eyjunum. Voru þá skip
frá Miðjarðarhafslöndum í siglingum um svæðið
og var leitast við að kristna eyjaskeggja. Árið
1402 sigldi riddari frá Normandí, Juan de Bet-
hencourt að nafni, til kanarísku eyjarinnar
Lanzarote. Samdi hann um landvistarleyfi við
höfðingjann Guadarfían, sem þá var konungur á
eynni. En riddarinn þakkaði þessa einstöku
gestrisni konungs með því að ná að lokum allri
eynni á sitt vald 1404, þá að vísu með fulltingi
Hinriks III Kastilíukonungs á Spáni. Einnig
tókst honum að ná yfirráðum á nærliggjandi
eyju, Fuerteventura. Á eftir fylgdi síðan land-
taka Portúgala og öllu fremur Spánverja á hin-
um ýmsu eyjum klasans. Eru til lýsingar á því
hvernig eyjaskeggjar vörðust, og hvernig Evr-
ópubúum tókst að sigra þá og leggja undir sig
eyjarnar, þessi heimkynni innfæddra, hverja
eftir aðra. Lauk þeim herferðum með því, að
Spánverjar lögðu árið 1496 undir sig síðasta vígi
frumbyggja á eyjunni Tenerífe.1
Hverjir voru frumbyggjar Kanarí-eyja?
Menn hafa í seinni tíð velt fyrir sér, hverjir
frumbyggjar eyjanna hafi verið. Mannfræðingar
og fornleifafræðingar hafa kannað jarðneskar
leifar þeirra, sem grafnir hafa verið, vistarverur
þeirra og áhöld. Einnig er nokkuð vitað um
tungu eyjaskeggja, einkum af staðarnöfnum og
mannanöfnum. Til eru nokkrar samtíma heim-
ildir um atvinnu- og þjóðfélagshætti eða stjórn-
skipulag, trúarbrögð og greftrunarsiði á eyjun-
um, og einnig eru til ýmsar munnmæla- og
þjóðsögur frumbýlinga.
Rannsóknir benda til þess, að eyjarnar hafi
verið byggðar af mönnum tveggja kynstofna. Á
öllum eyjunum hafi verið fólk með lifnaðarhætti
svipaða þeim, sem menn viðhöfðu í vestanverð-
um Alpafjöllum fyrir árþúsundum. Greftrunar-
siðum eyjaskeggja svipar einnig mjög til þeirra,
er þekkjast meðal þessa fólks. Voru þeir lang-
höfðar, með há kinnbein, breiða höku og fremur
þykkar varir, en nokkuð ljósir á hár og yfirlitum.
Önnur gerð manna á eyjunum var svipuð
þeim, sem búa í Miðjarðarhafslöndum. Eru þeir
lágvaxnari en hinir, með breið andlit og dökkir á
hár. Voru þeir einkum á Gran Canaría og
Hierro.2
Álitið er, að frumbyggjar hafi upphaflega
komið siglandi frá Afríku á mjög frumstæðum
bátum. Annars var siglingatæknin ekki mikil,
því að menn ferðuðust lítið sem ekkert á milli
eyjanna, enda mynduðust sérstakar mállýskur á
einstaka eyjum vegna einangrunar. Ekki eru
menn á eitt sáttir um uppruna eyjaskeggja.
Stungið hefur verið upp á því, að Kanarí-eyjabú-
ar séu af ætt Grikkja, Rómverja, Föníkumanna,
Kartagóbúa, Egypta, Líbíumanna eða jafnvel
germanskra manna, þ.e. Vandala. Flestir hallast
samt að því, að þeir séu Berbar, sem komið hafi
frá Afríku, enda er þar skemmst að fara. Mörg-
um orðum, sem þekkt eru úr máli eyjabúa, svip-
ar til berbneskra orða og húsakynnin, sem eyja-
skeggjar bjuggu í, minna mjög á hús, sem enn
eru notuð í Líbíu. Berbar eru ekki Arabar. Þeir
eru fremur ljósir á hár og eru af sumum taldir
vera af hvíta kynstofninum, er sest hafi að í
Norður-Afríku fyrir árþúsundum.
Þegar Evrópumenn hertóku Kanarí-eyjar
voru innbyggjarar þeirra um 70.000 að tölu.
Flestir bjuggu á stærstu eyjunum Gran Canaría
og Tenerífe, eða 30 þúsund á hvorri eyju, en um
10 þúsund voru alls á hinum fimm smærri eyj-
unum. Ekki gátu eyjarnar borið meiri mann-
fjölda en þar var, þar eð fæðuframboð var tak-
markað. Var því stundaður útburður barna,
einkum stúlkubarna til að halda mannfjölda í
skefjum.1
Álitið er að nokkur hundruð eyjaskeggja hafi
fallið í átökum við innrásarlið Spánverja, einnig
hafi nokkrir tugir verið fluttir úr landi og sumir
seldir sem þrælar. Árið 1477 voru 100 innfæddir
fluttir til Spánar, en þeir voru sendir aftur til
Kanarí-eyja. Sagt er að Ferdínand og Ísabella af
Spáni hafi leyst úr haldi 700 fanga, sem átti að
selja þaðan sem þræla. Megnið af frumbyggjum
dró sig hins vegar til fjalla og hélt uppi sínum
fornu lifnaðarháttum, en aðrir sömdu sig að nýj-
um siðum aðkomumanna. Einkum urðu menn af
aðalstétt frumbyggjanna áfram landeigendur,
og bændur héldu áfram að stunda sína kvik-
fjárrækt.
Eðlilega urðu miklar breytingar á lifnaðar-
háttum frumbyggja við komu Spánverja til
eyjanna. Fluttur var inn sykurreyr og síðar vín-
viður. Landareignir innfæddra voru nú teknar
undir ræktun á sykurreyr og ýmsu grænmeti,
sem var áður óþekkt á eyjunum. Landslýðurinn
tók síðan að starfa á þessum ökrum, en margir
fengust samt enn við hefðbundna kvikfjárrækt
eða kornyrkju. Af framanskráðu er ljóst, að
mannfjöldi var nægur á Kanarí-eyjum til rækt-
unarstarfa á sykurreyrs-ökrum og síðar í vín-
viðar-görðum.2
Þrælasala
Spánverjar, Portúgalar, Ítalir og fleiri þjóðir
fengust á þessum árum mjög við þrælasölu.
Sóttu þeir svart fólk til Afríku meðal annars til
að vinna á sykurreyrs-ökrum. Þrælarnir voru
notaðir sem ódýrt vinnuafl á plantekrum eða til
starfa á skipum. Voru Genúamenn miklir þræla-
kaupmenn og versluðu við Araba, sem sóttu
svarta þræla inn í Sahara. Lærðu Portúgalar
þann leik, en gátu eins vel aflað sér hvítra þræla,
ef völ var á slíkum, en eins og fyrr segir höfðu
sumir Kanarí-eyjabúar verið gerðir að þrælum
og jafnvel seldir úr landi
Með aukinni siglingatækni leituðu Portúgalar
einnig norður í höf. Sjómenn frá Bristol stund-
uðu þá veiðar og verslun, og urðu tíð viðskipti
milli Englands og Portúgals. Fóru Portúgalar
jafnframt að leita á norðlægar slóðir til fiskiveiða
og verslunar á svipaðan hátt og Bristolbúar.
Höfðu Bristolbúar á 15. öld allt frá 1409 meðal
annars siglt norður til Íslands í viðskiptaerind-
um og til að afla fiskjar. Voru þeir einnig búnir
að finna fengsæl fiskimið enn vestar í hafinu, og
ekki ólíklegt að þessir sjómenn hafi þá einhvern
tíma komist að ströndum Grænlands. Í lok ald-
arinnar voru þeir síðan komnir alla leið vestur til
Nýfundnalands.
Á 15. öld voru Spánverjar og Portúgalar
komnir með vel haffær skip, og tókst þeim að
komast langt á haf út. Á þessum sjóferðum rák-
ust þeir á áður óþekktar eyjar og lönd. Portú-
galski sæfarinn Joao Goncalves Zarco kom auga
á Madeira 1418 og gekk þar á land 1420. Voru
þessar eyjar þá mannlausar, og reyndar höfðu
engin spendýr heldur náð að nema þar land.
Eyjarnar voru síðan byggðar af Portúgölum.
Sykurreyr var fluttur þangað frá Sikiley 1452,
og sagt er að á Madeira hafi verið komið upp
fyrsta sykurreyrs-akrinum í heimi.
Árið 1427 voru Azoreyjar uppgötvaðar af
könnuðinum Diogo de Senill, sem var í þjónustu
konungsins í Portúgal. Á eyjum þessum voru
heldur engin merki um, að þar hefðu áður komið
menn né nokkur land-spendýr. Byrjað var að
byggja þessar eyjar 1432, og í lok aldarinnar
voru allar eyjarnar mannaðar Evrópubúum.3
Byggðin á Grænlandi
Á meðan Portúgalar voru að finna nýjar lend-
ur suður í Atlantshafi og byggja þær, var hins
vegar að hverfa byggð á norðurslóðum þessa
sama hafs. Þjóðarbrot norrænna manna á
Grænlandi var að glatast. Síðasta skip, sem vitað
er um að farið hafi frá Grænlandi með íslenska
farþega, hélt þaðan 1410 áleiðis til Noregs. Um
borð var Sigríður Björnsdóttir frá Ökrum í
Blönduhlíð og Þorsteinn Ólafsson síðar lögmað-
ur og hirðstjóri. Höfðu þau verið gefin saman á
Grænlandi 16. september 1408. Um þetta eru til
skráðar heimildir, þær síðustu, sem vitað er um
af veru norræna þjóðarbrotsins á Grænlandi.
Þegar dönsk skip komu loks að vesturströnd
Grænlands árið 1605, fundust þar engir menn af
norrænum stofni.4
Menn hafa löngum velt fyrir sér, hvað hafi
orðið af þjóðarbrotinu á Grænlandi. Þegar ég
kom til Madeira í apríl 1989, tók ég eftir fjölda
ljóshærðra og bláeygðra barna. Gat ég mér þess
þá til, að portúgalskir sjómenn hefðu komist til
Grænlands í byrjun 15. aldar og fundið fyrir
þessa kristnu landa okkar. Hefðu þeir græn-
lensku annaðhvort verið teknir til fanga, eða öllu
heldur, að samþykkt hafi verið að ganga Portú-
gölum á hönd og flytjast með þeim suður um höf.
(Sé ég í anda hvernig portúgalskur skipstjóri
ræðir á latínublöndu við biskupinn eða prestinn í
Görðum, og gyllir fyrir honum ágæti nýfundinna
eyja í suðri og býður honum far þangað með
nokkur hundruð manna hóp í skipi sínu. Hefur
þetta þá verið ein fyrsta sólarlandaferð Íslend-
inga!) Nú vissu þessir portúgölsku sjómenn, að
nauðsynlega vantaði mannafla til að byggja upp
eyðisvæðin á Madeira og Azoreyjum. Má því vel
geta sér þess til, að þetta norræna þjóðarbrot á
Grænlandi hafi verið flutt þangað suður og hafi
það tekið þátt í uppbyggingu þessara land-
svæða. Samt er furðulegt, þar sem um var að
ræða ritfært fólk, að ekki skyldi nein skrifuð lína
berast frá því úr þessum nýju heimkynnum, þótt
bréfburður hafi þá ekki verið neitt sérstaklega
greiður.
Voru Íslendingar á Madeira?
Því hefur verið haldið fram, að Íslendingar frá
Grænlandi hafi verið fluttir til Kanarí-eyja.5 Frá
þeim komi ljósi háraliturinn og bláu augun eyja-
skeggja og kunnátta í glímu, sem þar er háð á
mjög svipaðan hátt og á Íslandi. Mér finnst hins
vegar ólíklegt, að á Kanarí-eyjum hafi verið þörf
fyrir vinnuafl, þar sem nægt kunnáttufólk um
akuryrkju var þar fyrir, og mannafli jafnvel not-
aður til þrælasölu. Þörfin var meiri á áður
óbyggðum eyjum, sem Portúgalar þurftu að
manna, það er Madeira og Azoreyjar. Ritgjörð
Lilleströms um þetta efni hef ég ekki séð, en að-
eins þá tilvitnun í hana, sem birtist í Lesbók
Morgunblaðsins.6
Eyjafundur Spánverja og Portúgala á 15. öld
tengist að vissu leyti enn frægari landafundi
Kólumbusar, en hann fann Vestur-Indíur 1492.
Þótt hann væri Genúabúi að uppruna (f. 1451),
var hann í siglingum við allar þessar eyjar, sem
Portúgalar höfðu fundið fyrir nokkru. Árið 1478
gekk hann að eiga portúgalska konu, Felipu
Perestrello e Moniz, er var systir landstjórans á
eynni Porto Santo, sem var skammt frá Mad-
eira. Þar settist Kólumbus að í nokkurn tíma. Er
gaman að geta sér þess til, að þar hafi hann kom-
ist í kynni við grænlensku Íslendingana, er ef til
vill voru komnir þangað, og kona hans og mágur
þekktu vafalaust betur en hann.
Sumir hafa álitið, að Kólumbus hafi komið til
Íslands og þar fengið vitneskjuna um Vínland.
Er sú tilgáta meðal annars dregin af bréfi, sem
Kólumbus skrifaði og sendi spænsku konungs-
hjónunum 1495, þegar hann var staddur í Vest-
ur-Indíum. Getur hann þess í bréfinu, að hann
hafi verið á siglingu í febrúar 1477 (þá 26 ára
gamall) og farið framhjá Tíle-eyju, en suður-
strönd hennar sé 73 gráðum frá miðbaug, en
ekki 63. Sé þetta rétt munað hjá landkönnuðin-
um, hefur hann verið kominn talsvert norðar-
lega í febrúarmánuði og lítið vitað um Ísland og
Íslendinga og sögur þeirra um Vínlandsferðir, ef
hann hefur enn haldið sig vera hjá Tíle-eyju eftir
að hafa rætt við Íslendinga í þeirra heimabyggð.
Sennilega er þessi frásögn aðeins tilbúningur
hans og sonarins Fernando, sem skrifaði ævi-
sögu föður síns. Er frásögnin líklega aðeins
byggð á hugarburði fengnum af að skoða kort
gerð við landafræði Ptolemeusar, sem fyrst voru
gefin út á prenti í Bologna á Ítalíu 1477 og sýna
Thule á 63 gráðu n. br.7
Ei að síður gæti Kólumbus, á ferðum sínum
meðfram ströndum Portúgals og Afríku, að
sjálfsögðu hafa rætt við sjómenn frá Bristol og
frétt hjá þeim ýmislegt um Íslendinga og hagi
þeirra, en mér þykir skemmtilegast að trúa því,
að hann hafi fyrst frétt af Vínlandi hjá íslensku
Grænlendingunum á Madeira.
Heimildir
1 Jósé M. Castellano Gil & Fransisco J. Macias Martín. Hi-
story of the Canary Islands. Canaría, 1993.
2 José Luis Concepcion. Los Guanches. Islas Canarías
2001.
3 Encyclopædia Britannica.
4 Ólafur Halldórsson. Grænland í miðaldaritum, 1978.
5 Lilleström, Per A. 1993.
6 Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson. Lesbók Morgunblaðsins
3.–10. júlí 1999.
7 Haraldur Sigurðsson. Kortasaga Íslands, 1971 bls. 35 og
víðar.
8 Safnið Mundo Aborigen, Kanarí-eyjum.
FRUMBYGGJAR
KANARÍ-EYJA OG
LANDNÁM Á
MADEIRA OG
AZOREYJUM
„Ei að síður gæti Kólumbus, á ferðum sínum meðfram
ströndum Portúgals og Afríku, að sjálfsögðu hafa rætt
við sjómenn frá Bristol og frétt hjá þeim ýmislegt um
Íslendinga og hagi þeirra, en mér þykir skemmtileg-
ast að trúa því, að hann hafi fyrst frétt af Vínlandi hjá
íslensku Grænlendingunum á Madeira.“
Sumir Kanarí-eyjabúar voru ljósir á hár og blá-
eygðir. Þeir notuðu ýmis tákn og myndmerki,
en höfðu ekkert ritmál.
Skálar, ker og bollar voru steypt úr rauðum leir.
Höfundur er náttúrufræðingur.
E F T I R S T U R L U F R I Ð R I K S S O N