Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Síða 1
Laugardagur 3.7 | 2004 | 27. tölublað | 79. árgangur
LesbókMorgunblaðsins
[ ]
Clinton
Átakasaga í
flatneskjulegri
umgjörð
„Ég veit að ég er hvorki eins góður og dyggustu stuðnings-
menn mínir halda og ég vona að ég geti orðið, né jafn slæmur
og mínir hörðustu gagnrýnendur halda fram,“ segir Bill
Clinton í nýútkominni ævisögu sinni, Líf mitt. Pólitískir hæfi-
leikar Clintons eru óumdeildir, en margt fór á annan veg en
hann ætlaði í forsetatíð sinni. Karl Blöndal fjallar um bókina.
R
íkisstjórinn í Arkansas stendur á litlu sviði
við Faneuil Hall í Boston. Forkosningar
demókrata árið 1992 standa yfir og fram-
bjóðandinn þykir eiga nokkra möguleika
á að verða sér úti um tilnefningu demó-
krata til forsetaframboðs. Ræða hans er
ekkert sérstaklega eftirminnileg. Hann
leggur áherslu á efnahagsmál, segist
finna til með áheyrendum sínum, skynja raunir þeirra og
vandamál. Hluttekningin í rödd hans virðist svikalaus. Það er
ekki fyrr en hann stígur niður af sviðinu og ryður sér leið gegn-
um þvöguna að það er ljóst að frambjóðandinn er í essinu sínu.
Hann gefur sér góðan tíma, heilsar öllum, sem eru í seiling-
arfjarlægð, brosir, segir nokkur orð og það er eins og hann
dragi í sig kraft og eflist við að vera innan um fólkið – það dylst
engum að hér er kominn stjórnmálamaður af guðs náð.
Bill Clinton var kjörinn forseti þá um haustið og sat tvö kjör-
tímabil, fyrsti demókratinn til að afreka það að vera endurkjör-
inn síðan Franklin D. Roosevelt var forseti. Clinton var (og er)
mjög umdeildur stjórnmálamaður. Hatur andstæðinga hans á
honum og Hillary, konu hans, virtist takmarkalaust, en aðdáun
stuðningsmanna hans var að sama skapi mikil, þótt hann ætti
eftir að reyna verulega á þanþol þeirra. Andstæðingar Clintons
reyndu allt hvað þeir gátu að finna á honum veikan blett og
þegar upp komst um samband hans við Monicu Lewinsky, lær-
ling í Hvíta húsinu, fengu þeir loks færi á honum. Hann stóðst
þó tilraun repúblikana til að svipta hann embætti. Mörgum
þótti hann standa laskaður eftir og sögðu að hann hefði glutrað
tækifærinu til að skipa sér á bekk með helstu forsetum Banda-
ríkjanna. Þessar tvær hliðar á Clinton hafa gert demókrötum
erfitt fyrir. Það fer í taugarnar á mörgum að hann skuli ekki
einfaldlega hafa látið sig hverfa af sjónarsviðinu og þeir vita
ekki almennilega hvernig þeir eiga að nota hann sér til fram-
dráttar. Því var haldið fram að Al Gore hefði skaðað sjálfan sig
með því að nýta sér ekki Clinton og hampa samstarfi þeirra í
kosningunum árið 2000, þótt það sé ekki einhlítt. Og nú stekkur
hann fram á sjónarsviðið í aðdraganda kosninga og dregur að
sér fleira fólk á kynningarfundum vegna nýrrar bókar sinnar,
Líf mitt, en John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, á
kosningafundum. Hann hefur reyndar sagt að hann ætli að
passa sig á að yfirskyggja ekki Kerry, en spurning er hversu
vel hann passar sig. Í það minnsta var til þess tekið að á fundi
með Jesse Jackson á fimmtudag hafði hann talað í tæpar fjöru-
tíu mínútur áður en Kerry bar á góma.
Talið er að Clinton hafi fengið tíu milljónir dollara fyrirfram
fyrir bókina og sagði hann sjálfur í útgáfuhófi fyrir tveimur vik-
um að fyrirframgreiðslan væri „fáránleg“ og hefði hann
áhyggjur af að útgefandinn, Knopf, myndi ekki endurheimta
féð. Bókin hefur fengið fremur neikvæðar umsagnir og gagn-
rýnendur jafnvel sagt að hún væri yfirþyrmandi leiðinleg. Það
hefur hins vegar engin áhrif haft á söluna og tilkynnti Knopf á
fimmtudag að á fyrstu átta dögunum eftir að hún kom út 22.
júní hefði hún selst í milljón eintökum og væri hún því farin í
þriðju prentun.
Frásögn Clintons er oft og tíðum skipulagslaus. Hann segir
sögu sína í tímaröð og stekkur úr einu í annað. Hún er endalaus
runa af nöfnum þeirra, sem verða á vegi hans, en fæsta gæðir
hann lífi. Það er eins og hann skuldi samferðamönnum sínum
að nefna þá, segja um þá eitt, tvö orð af skyldurækni, og
Haruki Murakami | Grein um Ísland og Íslendinga eftir einn kunnasta rithöfund Japans | 4
Matthías Johannessen | Áin brýtur sig. Vinalegt vor án trega og veröldin skriðin úr híði |7
Nylon | Fyrsta íslenska stúlknasöngsveitin er til umfjöllunar og gullöld slíkra sveita | 8
3