Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Qupperneq 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. júlí 2004 | 15
Heilmikil sýning á verkum inn-
lendra og erlenda myndlistarmanna
er nú í Hallormsstaðarskógi og á
Eiðum og stendur fram eftir sumri.
Sýningin ber yfirskriftina „Fantasy
Island“ sem er væntanlega tilvísun í
sjónvarpsþætti sem voru vinsælir á
áttunda og níunda áratugnum er
gerðust á dularfullri óskaeyju. Sýn-
ingin er samstarfsverkefni skóg-
ræktarinnar á Hallormsstað, Gunn-
arsstofnunar, Eiða Ltd. og Kling &
Bang gallerís. Framkvæmdin er í
höndum Heklu Daggar Jónsdóttur,
myndlistarkonu og sýningarstjóri er
Hannes Lárusson, myndlist-
armaður. Auk Hannesar eiga svo
Atalier Van Lishout, Katrín Sigurð-
ardóttir, Elin Wikström, Paul
McCarthy, Jason Rhoades, Björn
Roth og Þorvaldur Þorsteinsson
verk á sýningunni.
Sex listaverk eða rýmisverk eru í
Hallormsstaðarskógi, í kringum og
við trjásafnið. Það umfangsmesta en
jafnframt látlausasta er verk
sænsku listakonunnar Elin Wik-
ström, „Vinar tré“ (Twin tree). Hef-
ur listakonan merkt 540 tré eftir
gönguleið um trjásafnið og látið
planta jafn mörgum trjám við Vikt-
oríuvatn í Afríku. Með gjörningnum
beinir hún athygli okkar að baráttu-
málum vanþróaðra ríkja til móts við
velmegunar ríki okkar. Einföld og
áþreifanleg aðgerð hjá Wikström á
svipuðum nótum og hún hefur verið
að fást við undanfarin ár og minnir
okkur á að listin er skapandi afl sem
getur breytt stöðnuðum hug-
myndum.
Verk Þorvaldar Þorsteinssonar,
„Vettvangur“, sýnir annars vegar
vettvang fyrir listir en hins vegar
vettvang glæps. Þetta er nútíma
Rauðhettu-ævintýri. Vegfarendur
koma að svæði sem er afmarkað
með gulum lögregluborða – bann-
aður aðgangur. Skammt frá er kofi,
einnig lokaður með borða en hægt
er að kíkja á gluggana. Án þess að
ég greini ýtarlega frá því sem fyrir
augu ber vísa ummerkin til þess að
Rauðhetta hafi verið þar í haldi. Í
ljósi nýlegra réttarhalda yfir belg-
íska barnaníðingnum Marc Dutroux
ristir verkið mann enn dýpra en ella.
Áhrifamesta myndlistarverk sem ég
hef séð frá Þorvaldi í mörg ár.
Skammt frá verki Þorvaldar er
„Geymur“ eftir Katrínu Sigurð-
ardóttur. Það hafði því miður ein-
hver eða einhverjir sem ráða illa við
hvatir sínar séð hann sem vettvang
fyrir útrás tilfinninga sinna og lista-
verkið því ekki í ásigkomulagi til að
ég fjalli um það eins og það kom mér
fyrir sjónir. Skúlptúrinn verður þó
vonandi lagfærður innan tíðar.
„Gamall draumur“ Björns Roth
sýndist mér í fyrstu vera leiksvæði
fyrir börn. En þegar nær dró sá ég
að þarna var meira í gangi. Virkar
sem tilvísun í annarskonar „Fantasy
Island“, þá skyldari eyju Gilligans
eða Robinson Crusoe-fjölskyld-
unnar. Þess má geta að börn á öllum
aldri undu sér vel við verkið, nóg að
fikta, skoða og leika.
Atalier Van Lieshout er listhópur
undir umsjón hollenska listamanns-
ins Joops Van Lieshout (atalier þýð-
ir vinnustofa). Er listhópurinn á
meðal þess athyglisverðasta í mynd-
list í Hollandi um þessar mundir og
hefur tekið þátt í mörgum af helstu
stórsýningum síðustu ára. Verkið í
Hallormsstaðarskógi er nokkuð frá-
brugðið í útliti og efni en ég hef áður
séð frá þeim, enda aðstæður aðrar.
Um er að ræða pyntingaáhöld og af-
tökutól sem listhópurinn hefur smíð-
að úr tré og sett upp í sandinn við
Lagarfljót. Minnir uppsetningin
ansi mikið á æfingasvæði sem eru
tíð við skokkbrautir í skógum Hol-
lands, þar sem heilsuræktarfólk get-
ur gert líkamsæfingar og teygt á
vöðvum áður en það heldur hlaup-
unum áfram. Nokkuð kaldhæðið
verk ef maður rýnir í raunverulegan
tilgang hlutanna sbr. skemmti-
skokkið. Þarna gefst jú kostur á að
stjaka menn, hengja og krossfesta.
Rýmisinnsetning Hannesar Lár-
ussonar nefnist „Hitasviðið“ eða
„Hot zone“ og samanstendur af
kamínu, eldiviði, skógarálfi hand-
skornum úr tré og álfabúningi sem
Hannes klæddist á opnun sýning-
arinnar sem sjá má á myndbandi.
Allir eru hlutirnir hannaðir af lista-
manninum sjálfum og þeim komið
fyrir í litlum bragga við gróðurhús í
skóginum. Fáir íslenskir myndlist-
armenn, ef þá nokkur, eru jafn
margþættir en samt heilsteyptir í
verki og Hannes. Verk hans snerta
hönnun, arkitektúr og aksjónir, eru
rammpólitísk en samt húmorísk og
hafa oftar en ekki að gera með stöðu
samtímalista gagnvart samfélaginu
og menningararfi okkar. Má sjá alla
þessa þætti í innsetningu Hannesar
sem jafnframt bendir okkur rétti-
lega á að Hallormsstaðarskógur er
hitasvið myndlistar þetta sumarið.
Frábært og sérlega vel heppnað
framtak sem teygir sig langt út fyrir
skóginn með uppátækjum Pauls
McCarthys og Jasons Rhoades á
Eiðum og í Reykjavík.
Tveir á tunglinu
Eins indælt og það er að ganga
um Hallormsstaðarskóg á góðviðr-
isdegi og sökkva sér í myndlist og
náttúru er álíka ljúft að ganga tæp-
an kílómetra frá Hótel Eddu á Eið-
um í átt að listaverki McCarthys og
Rhoades með Smjörfjöllin í sjón-
máli. Þá er auðvelt að gleyma því að
maður sé í listrænum leiðangri og
því er ekki laust við að manni bregði
í brún þegar verslunarmiðstöð
merkt Macy’s birtist skyndilega
handan einnar hæðarinnar. Virðist
hún vanhirt og löngu yfirgefin svo
það hvarflar að mér að ég hafi geng-
ið gegn um tímagat og sé kominn í
aðstæður sem ég hef einungis séð í
sci-fi-tryllum eins og „Logan’s run“
og „Apaplánetunni“ (þeirri gömlu).
Sem betur fer reynist þetta bara
risastórt líkan af framhlið Macy’s í
Los Angeles sem þeir félagar, Paul
McCarthy og Jason Rhoades, hafa
gert í tilefni af „Fantasy Island“.
McCarthy og Rhoades eru vel kunn-
ir í alþjóðlegum myndlistarheimi.
Sérstaklega sá fyrrnefndi sem er
sextugur á árinu og enn meðal rót-
tækari myndlistarmanna í heima-
landi sínu, Bandaríkjunum.
McCarthy hefur tekið fyrir „tabú“
málefni síðan á sjöunda áratug síð-
ustu aldar s.s. sukk, sódóma og
sjálfsfróun og jafnan vegið að banda-
rískri neyslumenningu. Neyslu-
menning er einnig megin viðfangs-
efni Jasons Rhoades og því hafa
leiðir þeirra oft legið saman. Macy’s-
líkanið má segja að vísi til landvinn-
inga bandarísku neyslumenningar,
en jafnframt finnst mér það benda á
tómleikann sem hún ber með sér,
stundar-nautnina, þar sem líkanið
stendur sem yfirborðið eitt innan um
síbreytilega en stöðuga náttúrufeg-
urð.
Til stóð að hengja 200 skúlptúra í
loftið inni í líkaninu, en listamenn-
irnir hafa áskilið sér rétt til að skipta
um skoðun. Þeir láta einn nægja sem
gægist út úr annarri hlið líkansins,
en afgangurinn er sýndur í Kling &
Bang galleríi í Reykjavík, þ.e. í
gamla Boltamanninum á Laugavegi
sem galleríið hefur fengið til afnota á
meðan sýningin stendur yfir.
Skúlptúrana kalla þeir „Sheep plug“
(Sauðatappar) og eru að forminu til
uppstækkaðir þarmatappar (butt
plugs), svipaðir og listamennirnir
notuðu í umdeilda sýningu árið 2002
í Hauser & Wirth í Þýskalandi sem
þeir kölluðu „Shit plug“. Voru mótin
þá fyllt með úrgangi listgagnrýn-
enda, listamanna og listunnenda
sem safnaðist í útihúsum á stórsýn-
ingunni Documenta XI í Þýskalandi.
Í sauðatappana nota þeir hinsvegar
sauðafitu, ullarflóka og vítissóta.
Semsagt alíslenskar sápur. Ekki má
svo gleyma grátbroslegri skrúð-
göngu sem sýnd er á myndbandi í
kjallara gallerísins sem þeir félagar
stóðu fyrir á opnunardeginum, til
heiðurs töppunum. Þar er karnival-
stemmning í lagi með Rhoades í far-
arbroddi sem sveiflar hallamæli í
stað sprota með miklum tilþrifum og
McCarthy sem sópar á undan sér
dauðum þorski. Hér er auðvitað
menningarleg tilvísun í gangi og af-
helgun á öllu sem heitir hámenning.
McCarthy og Rhoades eru lista-
menn sem ögra viðteknum gildum
og ekki á allra færi að meðtaka list-
sköpun þeirra opnum huga eða sem
húmor. Kemur mér í hug ógleym-
anlegt atriði í kvikmyndinni Man on
the Moon, þegar uppistand-grínist-
inn Andy Kaufman (Jim Carrey) fær
vin sinn Bob Zmuda (Paul Giamatti)
til að bregða sér í gervi Kaufmans og
leika á áhorfendur. Eftir uppákom-
una eru þeir skellihlæjandi baksviðs
þegar umboðsmaður Kaufmans
(Danny de Vito) kemur öskuillur og
bendir þeim á að þetta hafi verið
brandari sem engum fannst fyndinn
nema þeim tveim. Skella þeir þá enn
meira upp úr. Þannig sé ég fyrir mér
McCarthy og Rhoades. En þótt list
þeirra sé ekki öllum að skapi eru
þeir í hópi merkilegustu myndlist-
armanna samtímans og tvímæla-
laust þeir kröftugustu sem hafa
heimsótt Ísland í ár. Hvað svo sem
menn vilja segja um stórstjörnur
eins Ólaf Elíasson, Jeff Koons og
Francesco Clemente.
Ævintýraskógur og óskaeyja
Macy’s á Eiðum Risastórt líkan af verslunarmiðstöð Macy’s á Eiðum er framlag bandarísku myndlistarmann-
anna Paul McCarthy og Jason Rhoades á sýningunni „Fantasy Island“.
Frá skrúðgöngu McCarthys og Rhoades. Sá síðar-
nefndi fer fremstur í flokki og stjórnar göngunni.
MYNDLIST
Hallormsstaðarskógur og Eiðar
ATALIER VAN LISHOUT, BJÖRN ROTH,
ELIN WIKSTRÖM, HANNES LÁRUSSON,
JASON RHOADES, KATRÍN SIGURÐ-
ARDÓTTIR, PAUL McCARTHY OG ÞOR-
VALDUR ÞORSTEINSSON
Verkin eru aðgengileg allan sólarhring-
inn. Sýningu lýkur 1. október.
Kling & Bang gallerí
PAUL McCARTHY & JASON RHOADES
Opið fimmtudaga til sunnudags 14–18.
Sýningu lýkur 25. júlí.
JBK Ransu
Myndlist
101 gallery, Hverfisgötu
18a: Hulda Hákon. Til 7.
júlí.
Gallerí Skuggi: Lokað
vegna sumarleyfa.
Gallerí Sævars Karls: Sig-
ríður Bachman Egilsson.
Til 22. júlí.
Gerðarsafn: Ný aðföng. Til
8. ágúst.
Grafíksalurinn, Hafn-
arhúsi: Ljósmyndasýningin
Íslandsljós. Ragnar Ax-
elsson, Árni Sæberg og
Guðmundur Ingólfsson. Í
Grófarhúsi eru ljósmyndir
Guðbjarts Ásgeirssonar. Til
3. júlí.
Hafnarborg: Anna Þóra
Karlsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir (TóTó). Jana
Partanen. Marisa Navarro
Arason. Magnús Björnsson.
Til 5. júlí.
Hallgrímskirkja: Steinunn
Þórarinsdóttir. Til 1. sept.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Kynjaverur, ný
leirlist frá Noregi. Til 1.
ágúst.
Kling og Bang gallerí,
Laugavegi: Paul McCarthy
og Jason Rhoades. Til 15.
júlí.
Listasafn ASÍ: Guðrún
Vera Hjartardóttir, Helga
Óskarsdóttir og Ingibjörg
Magnadóttir. Gryfja: Rósa
Sigrún Jónsdóttir. Til 4.
júlí.
Listasafnið á Akureyri:
Kenjarnar eftir Goya. Til
14. júlí.
Listasafn Árnesinga:
Kristján Guðmundsson. Til
11. júlí.
Listasafn Ísafjarðar:
Spessi. Til 1. ágúst.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 14–17.
Til 15. sept.
Listasafn Reykjavíkur -
Ásmundarsafn: Maðurinn
og efnið. Yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús: Þorvaldur Þor-
steinsson. Til 8. ágúst. Ný
safnsýning á verkum
Errós.
Listasafn Reykjavíkur -
Kjarvalsstaðir: Francesco
Clemente. Roni Horn. Til
22. ágúst.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Listaverk Sig-
urjóns í alfaraleið. Til 5.
sept. Opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 14–17. Til 1.
okt.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Erró - Fólk og frá-
sagnir. Til 29. ágúst.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Finnsk
samtímaljósmyndun. Til
29. ágúst.
Norræna húsið: Samsýn-
ingin 7 - Sýn úr norðri. Til
29. ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðs-
strönd: 11 nýjar sýningar.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið.–sun. kl. 14–18. Sum-
arsýning úr safnaeign.
Leiðsögn alla laugardaga.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Skaftfell, Seyðisfirði: Að-
alheiður S. Eysteinsdóttir.
Til 8. ágúst. Hanna Christ-
el Sigurkarlsdóttir. Til 21.
júlí.
Slunkaríki, Ísafirði:
Tryggvi Ólafsson. Til 4. júlí.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Heimastjórn
1904. Þjóðminjasafnið –
svona var það. Eddukvæði.
Til 1. sept.
Landsbókasafn Íslands -
Háskólabókasafn: Hand-
band á Íslandi 1584–2004.
Kvennahreyfingar- inn-
blástur, íhlutun, irringar.
Söguleg útgáfa Guð-
brandsbiblíu 1584 til vorra
daga. Til 31. ágúst.
Leiklist
Vetrargarðurinn, Smára-
lind: Fame, mið., fim., fös.
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri:
Walking Tall
Godsend (HJ)
Suddenly 30 (HL)
Háskólabíó
The Chronicles of Riddick
(SV)
The Ladykillers (HJ)
Harry Potter & The Pris-
oner…
(HL)
Mors Elling (SV)
Van Helsing (SV)
Laugarásbíó
Godsend (HJ)
The Punisher (SV)
Laws of Attraction
(HJ)
Regnboginn
Walking Tall
Suddenly 30 (HL)
Eternal Sunshine …
(HL)
The Day After Tomorrow
(SV)
Sambíóin
Around The World in 80
Days
The Chronicles of Riddick
(SV)
Harry Potter & The Pris-
oner…
(HL)
Mean Girls (HL)
Troy (SV)
Eurotrip (HJ)
The Ladykillers (HJ)
Smárabíó
Walking Tall
Suddenly 30 (HL)
The Punisher (SV)
Eternal Sunshine …
(HL)
The Day After Tomorrow
(SV)