Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 10
Engilbert Gíslason
listmálari, Vestmannaeyjum
Lengur hefur dregizt en skyldi að
minnast Engilberts Gislasonar
málarameistara og listmálara, sem
andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja
7. desember s.l.
Engilbert var einn elztu Vestmanna-
eyinga, er hann andaðist. Hann var
merkur maður, sem skildi eftir sig
dagsverk, sem mun verða honum
óbrotgjarn minnisvarði( en eftirlifandi
kynslóðum til ánægju og fróöleiks.
Með málverkum sinum af byggö og
máttúru Vestmannaeyja hefur hann
lagt ómældan skerf til skráningar á
sögu Eyjanna. í verkum Engilberts
Gislasonar, bæöi málverkum og
pennateikningum, er varðveitt saga
atvinnuhátta og byggðar i Vestmanna-
eyjum z mestu umbrota- og breytinga-
timum, sem oröið hafa með þjóöinni
frá Islandsbyggð. En áuk þess, sem
mörg málverk hans og teikningar
varðveita liðna tið, þá eru þau umfram
allt gerð með höndum listamanns, sem
haföi næmt uaga fyrir ljósi og litum,
og fáir held ég að fari i spor Engilberts
að mia bortnandi báru eða freyðandi
öldu, jafnvel þó að leitað væri frægra
nafna.
t ágætu verki Björns Th. Björns-
sonar um islenzka myndlist sakna allir
Vestmannaeyingar mynda eftir Engil-
bert Gislason.
1 daglegu lifi var Engilbert hógvær
hans alla tíð. Mióðir hans var Ásta
Eiríksdóttir, ‘Bjarnasonar frá Heiði.
Móðir hennar var Steinunn Ás-
prímsdóttir frá Ytri-Dalhæ. 'Einar,
faðir Eiríks. var sonur Jóns Biarna
sonar frá Heiði og konu hans, Si?-
ríðar 'Þórhallsdóttur. Eins og siá
og hlédrægur maður, sem gerði aldrei
kröfu til þess að vera kallaður lista-
maöur, þvert á móti afsakaði hann
iðulegast verk sin og bar af sér þann
veglega titil. En verkin lofa
meistarann og prýða heimili og stofn-
anir hér i Vestmannaeyjum og annars
staðar um laiídið. Og á hvern hátt, sem
menn vilja túlka þetta vandasama og
umdeilda orð — list — þá er eitt vist, að
með myndum sinum hefur Engilbert
má. voru Einar og Ásta bræðra-
börn o? mæður þeirra bræðra.
Eiríks og .Tóns og móðir Sigríðar
voru svstnr. Þessi grein ætt.nr Ei-
ríks er kennd við Hlíð í Skaftár-
tungu.
Eiríkur Skúlason.
náð þvi, sem ekki er öllum gefið.
Myndir hans margar hrifa og eru
eftirminnilegar, sérstaklega sjávar-
myndir, og yfir mörgum þeirra er glöð
og heið birta „impressionistanna”.
Engilbert Gislason fæddist á
Tanganum i Vestmannaeyjum, 12.
október 1877. Foreldrar hans voru
Gisli Engilbertsson , verzluna
rarstjóri i Tangaverzlun og kona hans
Ragnhildur Þórarinsdóttir, bæði ættuð
úr Rangárþingi. Þau hjón voru kunn á
sinni tið i Eyjum og er margt manna
frá þeim komið. Gisli var vel látinn og
hagyrðingur ágætur. Engilbert var
þriðji i röð 5 systkina, en þau voru:
Guðfinna, sem gift var Halldóri Guð-
mundssyni raffræðingi, (var þeirra
sonur Gisli, hugvitsmaður og verk-
fræðingur), Þórarinn skrifstofustjóri,
kvæntur Matthildi Þorsteinsdóttur frá
Dyrhólum i Mýrdal, Katrin gift Páli
Ólafssyni frá Hliðarendakoti, og yngst
Elinborg, húsfreyja i Laufási, kona
Þorsteins Jónssonar, útvegsmanns og
skipstjóra, er hún nú ein á lif þeirra
systkina.
Frá þvi Engilbert mundi fyrst eftir
sér, var hann að mála og teikna, þó að
á þeim tima væri erfitt að eignast lita-
kassa og teiknipappir. En það sýnir ef
til vill bezt, hvað i honum bjó, það litla
atvik, að 2 enskir náttúrufræðingar,
sem dvöldu I Vestmannaeyjum á
æskuárum hans voru svo ánægðir með
mynd af blálöngu, sem Engilbert hafði
teiknað fyrir þá, að þeir sendu honum
litakassa og teiknipappfr. Kom þetta
hinum listhneigða unglingi að góðum
notum.
Engilbert settist i Lærða skólann,
sem Menntaskólinn hét þá, en hætti
námi vegna veikinda og stundaði siðan
um tima verzlunarstörf i Reykjavfk,
hjá Sturlubræðrum. Arið 1899, sigldi
hann ti 1 Kaupmannahafnar og hóf
nám hjá fyrirtækinu Chr. Berg & Sön,
vann hann þar einkum við viðarmálun
húsgagna. tlti i Kaupmannahöfn voru i
þann tið, margir merkir Islendingar,
sem siðar urðu i fremstu röð islenzkra
listamanna, eins og Einar Jónsson og
Asgrimur Jónsson. Kynntist Engilbert
10
islendingaþættir