Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Qupperneq 8

Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Qupperneq 8
Pálsson Friðþjófur fyrrv. stöðvarstjóri, Húsavík Lýsingarorð eins og prúður, hógvær, dagfarsgóður, starfssamur, traustur, heilsteyptur, hreinskilinn og mörg fleiri, sem lýsa góðum kostum manna koma i hugann, þegar Friðþjófs Páls- sonar, fyrrverandi stöðvarstjóra pósts og sima á Husavik er minnst. Hann var I hópi þeirra manna, sem laða fram jákvætt lif og starf i kringum sig. Það var eins og skuggarnir vikju til hliðar i návist hans. Þetta mun vera reynsla þeirra, sem lengst og bezt þekktu Friðþjóf. Ég kynntist Friðþjófi fyrst eftir að hann fluttist til Reykjavikur árið 1963 og tók við starfi deildarstjóra i endur- skoðunardeild póstávisana, orlofs og skyldusparnaðar. Störfin þar varð að vinna af mikilli nákvæmni og öryggi, þvi skekkjur þar geta valdið miklum erfiöleikum og fjártjóni. Leysti Friðþjófur það verk af mikilli prýði. Af eigin raun þekkti ég litið til starfa Friðþjófs i stöðvarstjórastöðunni á Húsavik, en það orðspor fór af honum, að hann legði alúð i að leysa þjón- ustustörfin við almenning vel af hendi og greiddi farsællega úr hverjum vanda. Og af yfirboðurum sinum var hann talinn einn af beztu fulltrúum pósts og sima úti á landsbyggðinni. Hann var þvi á allan hátt sannur og skyldurækinn embættismaður sem lagði alúð i störf sin og ávann sér verðskuldað traust allra þeirra, sem við hann skiptu. Starfsfolki sínu var Friöþjofur ávallt góður og heill, enda mat það hann mikils. Friðþjófur var fæddur á Húsavik 13. april 1902, sonur hjónanna Aðalheiðar Jóhannesdöttur og Páls Tryggva Sig- urðssonar simstjora. Árið 1925 kvæntist Friðþjófur Auði Aðalsteins- dóttur trésmiðs á Húsavik og eign- uöust þau eina dóttur, Aðalheiði, bóka- vörð við Landsbókasafnið. Friðþjófur hafði ekki langa skólagöngu að baki. Hann útskrifaðist úr unglingaskóla Benedikts Björnssonar á Húsavik og var við nám i Samvinnuskólanum siöari hluta vetrar árið 1925. Réttinda- Friðþjófur starfaði hjá Kaupfélagi Þingeyinga til ársins 1934, er hann gerðist simstöðvarstjóri á Húsavik. Tók við þvi starfi af föður sinum. Stöðvarstjóri var hann til ársins 1963, en tók þá við fyrrnefndu deildarstjóra- starfihjá Pósti og síma i Reykjavik og gegndi þvi þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 1972. Friðþjófur naut mikils trausts, samtiðar sinnar. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir byggðarlag sitt og tók mikinn þátt i margs konar félagsstörfum. Þegar hann flutti kvöddu Húsvikingar hann með þvi að færa honum góðar gjafir og þakkir fyrir ágæt og gifturik störf. Veit ég að Friðþjófi þótti vænt um þann mikla hlýhug sveitunga sinna. Konu sina missti Friðþjófur árið 1965, og hélt hann heimili með dóttur sinni siðan. Hann var nærgætinn og góður heimilisfaðir. Friðþjófur andaðist 24. sept. sl. eftir stutta legu. Var hann þá fyrir skömmu kominn úr ferðalagi með dóttur sinni, erlendis frá. Urðu umskiptin þvi sneggri en búast mátti við. prófum var þvi ekki fyrir að fara en sjálfmenntun hans og manndómur var þeim mun meiri og skipuðu honum i raðir okkar beztu manna. 8 Nú skiljast leiðir um sinn. Góður samstarfsmaður er kvaddur. Aldrei heyrði ég nema gott um hann sagt og niörandi orð lét hann ekki falla um aðra. Hann var reglusamur i lifi og starfi. Hann var góð fyrirmynd þeirra, sem leitast við að verða sannir og góðir menn. Við, sem þekktum Friðþjóf, minnumst hans og þökkum samferðina. Hans góðu dóttur flytjum við innilegar samúðarkveðjur. Páll V. Danfelsson t Friðþjófur Pálsson frá Húsavik andaðist á Borgarspitalanum 24. september siðastliðinn. útför hans var gerð frá Fossvogskirkju laugardaginn 5. október, að viðstöddum mörgum vinum hans og samstarfsmönnum. Þótt mér væri vel kunnugt að hann hefði átt við nokkra sjúkdoms- erfiðleika að striða, er hann lét af sinu langa ævistarfi fyrir aldurs sakir, og hefði þurft að dvelja um skeið á sjúkrahúsi, kom mér andlátsfregn hans engu að siður á óvart. Og þannig er það alltaf, þegar góðir vinir og samstarfsmenn hverfa frá okkur, að þeir séu raunverulega horfnir af sjónarsviði, og að við getum aldrei framar notið þess að vera I návist þeirra- En Friðþjófur hafði fágætlega vel þroskaða og fágaða skapgerð. Honum fylgdi ávallt heillandi bros og hugljúfur léttleiki og hlýja, sem hafði þau áhrif, að öllum leið vel i návist hans. Þess vegna er hans nú sárt saknað af öllum þeim, sem báru gæfu til að kynnast honum og starfa með honum. Friðþjófur Pálsson var Þingeyingur aö ætt og uppruna. Hann var fæddur á Húsavik 13. april árið 1902. Faöir hans var Páll Sigurðsson Guðmundssonar bónda að Litluströnd við Mývatn, Pálssonar bóna að Brúnagerði i Fnjóskadal. Páll varð fyrsti simstöðvarstjóri á Húsavik og gegndi þvi starfi samfleytt frá 1908 til 1934 Hann var dugmikill félagshyggju- maöur, var lengi deildarstjóri i Kaupfélagi Þingeyinga og átti drjúgan hlut að ýmsum framfaramálum. Móðir Friðþjófs var Aðalheiður íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.