Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Side 9
Jóhannesdóttir bónda á Dálksstöðum
á Svalbarðsströnd, Sigurðssonar
bónda á Hróastöðum i Fnjóskadal
Sigurðssonar. Aðalheiður var gáfuð
kona og bókhneigð. Hún var vel hag-
mælt, en fór dult með þá hæfileika,
eins og margir góðir hagyrðingar fyrr
og siðar. Þó munu nokkrar vísur
hennar vel kunnar.
Friðþjófur var ekki i hópi langskóla-
genginna manna, en engu að siður
víðlesinn, fjölfróður og vel menntaður.
Að loknu námi i barnaskóla lauk
hann prófi frá Unglingaskóla
Benedikts Björnssonar á Húsavik,
sem um árabil veitti unglingum þar
nyrðra ágætt veganesti. Siðar stundaði
hann nám i Samvinnuskólanum frá
nýári til vors árið 1925.
Þegar á barnsaldri hóf Friðþjófur
störf hjá Kaupfélagi Þingeyinga, og 16
ára gamall var hann ráðinn þangað
sem fastur starfsmaður. Alls starfaði
har.n i tvo áratugi hjá K.Þ. lengst af
sem bókhaldari. En árið 1934 tók
Friðþjófur við simstjórastarfi föður
sins, sem þá var kominn yfir sjötugt og
farinn að kenna heilsubrests. Lét hann
þá jafnframt af starfi sinu hjá Kaup-
félagi Þingeyinga.
Friðþjófur var siðan simstöðvar-
stjóri á Húsavik i samfellt 20 ár, eða til
ársloka 1954. En þá voru póstur og
simi sameinaðir i nýbyggðu, glæsilegu
húsi, sem reist hafði verið fyrir starf-
semibeggja þessara stofnana. Fluttist
þá Friðþjófur úr gamla simstöðvar-
húsinu, er hann átti sjálfur, og tók við
póst- og simstjórastarfinu. Gegndi
hann þvi til ársins 1963. Urðu þá
veruleg þáttaskil i lifi hans, er hann af
heimilisástæðum varð að flytja til
Reykjavikur eftir langa, viðtæka og
einkar farsæla þjónustu fyrir bæ sinn
og byggðarlagið allt.
Atvik höguðu þvi svo, að ég varð
skólastjóri á Húsavik haustið 1940 og
gegndi þvi starfi i tuttugu ár. Ég fékk
þvi tækifæri til að kynnast þar vel
mönnum og málefnum á þeim tiltölu-
lega langa tima, enda starfaði ég þar
beztan hluta ævi minnar.
Þótt fæðingarsveit min væri raunar
ekki langt frá Húsavik, hafði ég
sjaldan komið þar og þekkti aðeins
fáa. En ég minnist glöggt, að ég hafði
mikinn hug á að sjá sem fyrst
simstöðvarstjórann á Húsavik,
Friðþjóf Pálsson, og kynnast honum.
Astæðan til þess varsú, að simstöð var
á æskuheimili minu, Skógum i Axar-
firði, og ég hafði alioft afgreitt simtöl
og þá meðal annars notið fyrirgreiðslu
simstjórans á Húsavik. Falleg og
drengileg rödd þessa manns, og frá-
bær ljúfmennska og fyrirgreiðsla,
hafði grópast djúpt i huga mér.
jslendingaþættir
Það leið ekki heldur á löngu, þangað
til ég hitti Friðþjóf, sem tók mer strax
eins og bezta bróður. Og ég varð
vissulega ekki fyrir vonbrigðum. Ég
hafði alltaf hugsað mér, að maður,
sem hefði svo hreimfagra rödd, væri
svo hjálpfús og slikt ljúfmenni sem
hann reyndist mér og minu fólki heima
við simaþjónustuna, hlyti að vera
friður og föngulegur og geðþekkur i
bezta lagi. Og þarna stóð hann þá fyrir
framan mig, þessi ungi, fallegi maður,
með sólskinsbrosið hlýja og viðmótið,
sem hafði þau áhrif, að öllum leið vel i
návist hans. Þannig var Friðþjófur.
Og á þvi varð aldrei nein breyting þá
tvo áratugi, sem við störfuðum náið
saman.
Þótt Friðþjófur gegndi erilsömu og
umfangsmiklu skyldustarfi, komst
hann ekki hjá þvi að taka að sér marg-
visleg félagsstörf fyrir bæ sinn og
byggð.Fer svojafnan á hinum smærri
stöbum, þegar um fjölhæfa gáfaða og
fórnfúsa menn er að ræða. Aldrei
sóttist hann þó eftir neinum veg-
tyllum eða frama, til þess var hann of
hógvær og hlédrægur að eðlisfari. En
vegna hæfileika hans og færni á svo
mörgum sviðum, var sifellt sótzt eftir
honum til ýmissa starfa. Og það brást
aldrei, — Friðþjófur leysti vel af hendi
allt, sem hann tók að sér, og flest með
ágætum.
Mestum frítima mun Friðþjófur
hafa eytt i þágu söngmála og leik-
listar, en á þeim sviðum báðum var
hann buraðarás um langt skeið. Hann
var t.d. formaður karlakórsins Þryms
hátt i tvo áratugi. En auk þess sinnti
hann ýmsum öðrum félagsstörfum
lengri eða skemmri tima. Hann var
m.a. i hreppsnefnd 1937-1942, i sóknar-
nefnd 1953-1963, i stjórn sjúkrasam-
lagsins 1949-1960, endurskoðandi
Sparisjóðs Húsavikur 1936-62 og forseti
Rótarýklúbbs Húsavikur, svo að
eitthvað sé nefnt.
Húsavik má vissulega hrósa happi
yfir þvi að hafa svo lengi notið krafta
sliks úrvalsmanns sem Friðþjófur var.
Ég fullyrði lika, að hver einasti
Húsvikingur, sem fylgdist með
störlum hans, hafi kunnað vel að meta
þau og verið honum innilega þakklát-
ur.
Eins og störfum minum var háttað,
urðum við Friðþjófur nánir samstarfs-
menn á mörgum sviðum á þeim
tveimur áratugum, sem ég dvaldi á
Húsavik. Lengst og mest munum við
þó hafa unniðsaman á sviði söngmála,
— í tveimur kórum mestan hluta þess
tima, — og að safnaðarmálum með
okkar ágæta vini, sóknarpresti og
söngstjóra, séra Friðriki A. Frið-
rikssyni.
En Friðþjófur var einnig að sjálf-
sögðu einlægur og traustur stuðnings-
maður minn i minu ábyrgðarmikla
starfi, skólastarfinu. Og aldrei bar
hinn minnsta skugga á samstarf okkar
öll þessi mörgu ár. Mér er einkar ljúft
að votta það hér, að ég hef aldrei á
starfsævi minni, sem er nú að verða
nokkuð löng, kynnzt betri og
geðþekkari samstarfsmanni — aldrei
neinum, sem hefur náð lengra, að min-
um dómi, i ljúfmennsku og fágaðri
framkomu. Munu allir, sem ég þekki
og voru honum vel kunnigir, bera hon-
um sömu sögu. Hér var þvi vissulega
um fágætan persónuleika að ræða.
Fyrir kynni min af þessum ágæta
manni og fyrir samskipti okkar öll, er
ég honum innilega þakklátur.
Friðþjófur var mikill hamingju-
maður I einkalifi sinu. Hann var
kvæntur ágætri mikilhæfri konu, Auði
Aðalsteinsdóttur, frændkonu sinni,
sem einnig var fædd og uppalin á
Húsavik. Hún bjó honum ekki aðeins
einkar fallegt heimili af alkunnum
myndarskapog smekkvisi, heldur var
hún einnig manni sinum mikil stoð og
stytta I starfi hans, síma- og póst-
þjónustunni. En hún hafði lika mikinn
áhuga á margvislegum félags-
störfum, eins og bóndi hennar, og
hnigu áhugamál þeirra mjög saman i
þeim efnum, ekki sizt i söng- og
leiklistarmálum. Frú Auður var t.d.
lengi formaður i kirkjukórnum okkar,
enda voru þau bæði forystumenn i
sönglifi bæjarins um langt árabil. Þá
var frú Auður lengi sterkur og vinsæll
starfskraftur i leikfélaginu og þótti
einkum takast mjög vel i erfiðum
skapgerðarhlutverkum. Tel ég óvist
að Friðþjófur hefði aðstöðu til að vera
svo virkur i félagsmálum sem raun
varð á, ef hann hefði ekki notið
stubnings konu sinnar.
Þau hjónin eignuðust eina dóttur,
sem fæddist 17. mai árið 1930. Hún
hlaut nafnið Aðalheiður eftir föður-
ömmu sinni.
Aðalheiður var hjá mér siðari ár sin
i barnaskóla, og siðan tvö ár i
unglingaskóla. Mér gleymist ekki, hve
traustur, smekkvis og elskulegur
nemandi hún var. Aðalheiður er ágæt-
lega menntuð kona, sjálfstæð i
skoðunum og lifsháttum, og hefur erft
ýmsa beztu kosti beggja foreldra
sinna. Hún varð stúdent frá M.R. árið
1950. Siðan vann hún alllengi á skrif-
stofu Þjóðleikhussins. A siðari árum
sinum þar hóf hún háskólanám i hjá-
verkum og lauk B.A. prófi við Háskóla
Islands árið 1970. Aðalgrein hennar
var bókasafnsfræði, en aukagrein
enska og sænska. Að námi loknu
starfaði hún um skeið við bókasafn
9