Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Qupperneq 11

Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Qupperneq 11
Jón Oskar Guðlaugsson frá Eystri-Hellum Laugardaginn 28. september var til moldar borinn frá Gaulverjabæjar- kirkju Jón Óskar Guðlaugsson frá Eystri-Hellum þar i sveit, en hann andaðist á Landspitalanum 22. september, tæplega sextiu og sex ára að aldri. Ég kynntist Jóni á Hellum vorið 1965 en þá kom ég i fyrsta skipti á heimili hans að Eystri-Hellum. Ég þekkti Jón þvi aðeins i niu ár, en þó nógu lengi til þess að læra að meta mannkosti hans og vináttu. Siðan átti ég oft eftir að koma að Hellum og voru þær ferðir mér allar jafn kærar, þvi fljótlega fór ég að lita á heimilið á Hellum sem mitt eigið. Jón bjó nær allan sinn aldur i Gaul- verjarbæjarhreppi, eða til ársins 1973 er hann fluttist til Þorlákshafnar, var Jón þá orðinn heilsulitill og dvaldi lengst af á sjúkrahúsum eftir það. Aldrei heyrði ég hann mæla eitt æðru- orð i veikindum sinum, heldur bar hann þau með stakri ró og hugprýði, svo sem af honum mátti vænta. Hvarvetna eignaðist hann vini þar sem hann fór, þvi öllum vildi hann vel gera, og það var ómögulegt annað en að láta sér lika vel við Jón á Hellum. Það verður aldrei þakkað sem vert er að fá að kynnast góðum mönnum á Hfsins leið, og meira er hægt að læra af þeim, sem að gagni kann að koma i storr jm lifs ns, heldur en i hinum veraldlegu skolum. Það væri svo margt hægt að segja eftir lát þessa mæta manns en þetta á ekki að vera nein æviminning, heldur stutt kveðja frá mér, sem þekkti Jón ekki lengi en mat hann mikils. Að lokum vil ég taka undir með sálmaskáldinu sem svo kvað: Far þú i friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Blessuð sé minning þin. Tengdadóttir. Vilhjálmur Árnason frá Hvalnesi Þögnuð er harpan, hljóðna vorsins ómar, haustið er komið, vindar hrjúfir gjalla. Aðeins sem minning angan sumarblóma, cr þau áð lokum hljótt til jarðar falla. Flytjið þiö, vindar, kærar kveðjur noröur, hvislið þið frá mér hlýjum þakkarorðum. Bærið þið strengi yfir leiði lágu, laðið fram tóna, er hrifu drenginn forðum. Gott er aö muna löngu liðnu árin, leiftrin frá tryggð og sönnum kærleiksanda, hjálpfúsa bóndann, vin og grannann góða, göfugan dreng, er leysti hvers manns vanda. / Hnipir nú byggðin, skarð er fyrir skildi, skipt hcfur litum strönd á noröurhjara. Einum er færra öðlingsmanni á Skaga, allskonar sýnir bæði koma og fara. Kveðjurnar mörgu berast létt i blænum, bárurnar hjala þýðum vinar rómi. Haustgolan kveður ljúft um liðna daga, lækurinn hvislar gamalkunnum rómi. Hlifi og græði hann, sem veitog skilur, hönd sina rétti þeim, sem hryggur gengur. Aftur við hittum okkar horfnu vini, aftur mun verða heill hver brostinn strengur. (Þórhildur Sveinsdóttir) Sigriöur Jenný Skagan islendingaþættir n

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.