Íslendingaþættir Tímans - 02.08.1975, Síða 2

Íslendingaþættir Tímans - 02.08.1975, Síða 2
þannig fyrir komiö að simatækið var inni I stofu hjá Þorgils og urðu simnot- endur þvi, að nota simtæki i stofu hans. Ég fór þvi þangað, en minnist þess hvað feiminn ég var þegar ég kom inn i hina ágætu stofu, þar sem simatækið var i. Þá sat Þorgils kenn- ari þar og var að tefla við einn af nem- endum skólans, sem var bUinn að vera þar i nokkra daga eins og ég, nemand- inn taldi sig gera góðan leik við Þorgils og sagði um leið og hann hafði lokið leiknum, ,,já komdu nú gamli minn”. Mér ér þetta minnisstætt þvi að mér fannst þetta fjarri öllu lagi að einn nemandi skyldi leyfa sér að tala svona við kennara og ekki sizt þegar þar við bættist að þar var maður sem hann þekkti ekki neitt. Þorgils vék sér und- an hættum i taflinu með mótleik um leið og hann nefndi nafn nemandans og sagði: „komdu nú”. Þetta varð mér minnisstætt, þvi að I svari Þorgilsar var góðlátleg glettni og mildi sem jafnan fylgdi honum. Ég hef áður getið þess á prenti að kennarar þeir, sem störfuðu við Reykholtsskóla þá tvo vetur sem að ég var þar við nám,voru hinir mestu fyrirmyndarmenn eins og lifið hefur siðar sannað. Þar um mætti segja að væri valinn maður i hverju rúmi. Ekki orkar það tvimælis að Þorgils naut sin vel i þessum hópi, hann var afar hugljúfur, drengilegur og vinsæll i öllum viðskiptum sinum við nemendur og samstarfsmenn. Þorgils Guðmundsson var sam- vinnúmaður i þess orðs beztu merk- ingu, hann lagði þvi Samvinnufélags- skapnum lið meðan hann starfaði i Borgarfirði og var þar traustur sem annars staðar.Hann var lika pólitiskur og flokksbundinn Framsóknarmaður. Ég hafði mikla ánægju af þvi að ræða stjórnmál við Þorgils þau ár; sem ég var nemandi hans og einnig oft eftir það þegar leið okkar lá saman. Atvikin höguðu þvi svo til að einhver hefði get- að ályktað sem svo, að Þorgils Guð- mundsson hefði haft ástæðu til þess að skipta um stjórnmálaskoðun en Þorgils Guðmundsson hafði ekki i einu né öðru ástæðu til að skipta um skoðun nema að hans eigin mati. Þess vegna umgekkst hann og átti samskipti við sina pólitisku andstæðinga eins og skoðanabræður með sömu háttvisinni, mildinni og góðlátlegri glettni án þess að það þvingaði þá né sjálfan hann né að það hefði áhrif á hans fjölskyldulif, sem það hefði getað gert,ef honum hefði ekki verið háttvisi I blóð borin. Það raksaði hvorki stefnufestu hans né lifsskoðun. Þorgils Guðmundsson var jarðsettur frá Fossvogskapellu 3. júll s.l. Eins og vænta mátti var mikið fjölmenni við útför hans. Fjöldi gamalla nemenda og samstarfsmanna úr hinum marg- vislegu félögum, sem hann hafði átt samskipti við á lifsleiðinni voru þar mættir til að votta honum virðingu sina og þakka vinsemdina. Ég enda þessar linur með þvi að færa Þorgilsi Guðmundssyni innilegar þakkir fyrir kynni okkar frá fyrstu stundu, kennslu hans, margar ánægju- legar samstarfs- og samtalsstundir og þá vinsemd, sem hann jafnan sýndi mér fyrr og siðar i lifinu. Það orkar ekki tvimælis(að það er mikill ávinn- ingur ekki slzt þegar maður á þvi láni að fagna á unglingsárum að hitta á lifsleiðinni slikan ágætis mann. Við hjónin færum börnum Þorgilsar Guðmundssonar og öðrum ættmenn- um innilegar samúðarkveðjur við frá- fall hans. Halldór E. Sigurðsson. t Jarðsettur var 3. júli Þorgils Guð- mundsson, frá Valdastöðum i Kjós, sem lést I Reykj.avik 26. júni s.l. 83. ára að aldri. Þessi mæti maður, kom mjög við sögu Iþrótta og ungmennahreyfingar- innar meira en hálfrar aldar skeið. Frá æsku og fram til hinnstu stundar var hann Iþróttamaður og Iþróttavinur af lifi og sál. Hann var einn af þeim sem stofnaði Ungmennafélagið Drengur i Kjós 1915, þá ungur að aldri og starfaði i þvi til 1921 að hann fór að utan til náms I iþróttum I Danmörku. Að námi loknu flutti hann I Borgarfjörð, og tók þar upp sömu háttu og hann haföi áður haft I Kjósinni aö vinna að iþrótta og ungmennafélagsmálum og var þar tvisvar kosinn formaöur Ungmenna- sambands Borgarfjarðar. Til þess að verða enn hæfari til þess aö sinna áhugamálum sinum, en áður, fór hann aftur að utan til framhalds- náms i iþróttum að þessu sinni til Noregs og Danmerkur veturinn 1929-1930. Að þvi námi loknu réðist hann sem iþróttakennari við Reykhóltsskóla i Borgarfirði og þar var hann sem slikur til ársins 1947, að hann fluttist til Reykjavikur og hóf störf I skrifstofu Fræöslumálastjóra. I stjórn Iþróttasambands Isl&nds var hann kjörinn sem fulltrúi Vest- firðingafjórðungs árið 1943 og átti sæti i stjórninni til ársins 1948 er annar maður tók það sæti hans vegna brott- flutnings Þorgils úr Vestfirðinga- fjórðungi. Áriö 1949 var lögum íþróttasam- bands íslands breytt og i stað fulltrúa fjórðungssambandanna kom sam- bandsráð l.S.l. og I stað stjórnar Í.S.Í. kom Framkvæmdastjórn, þá var Þor- gils Guðmundsson kosinn gjaldkeri sambandsins, og var i þvi starfi i eitt ár. öll sin störf fyrir iþrótta og ung- mennafélagssamtökin vann hann af áhuga mikilli nákvæmni og samvisku- semi og gat þvi ekki öðruvisi farið en hann hlyti margskonar sóma af. Þorgils var gerður að heiðursfélaga Ungmennafélagsins Drengur I Kjós og I Ungmennasambandi Borgarfjarðar. Heiðursfélagi Iþróttasambands ís- lands var hann kjörinn árið 1953. Hér að framan hafa verið rakin helstu afskipti Þorgils af félagsmál- um, má bæta þvi við að hann var kepp- andi og mikill afreksmaður á sviði iþrótta, gliminn vel enda glimu- kennari Glimufélagsins Armanns um árabil og fimleikamaöur var hann svo af bar, svo eigi sé gerð skil getu hans I frjálsum iþróttum. Nú þegar Þorgils Guðmundsson er allur má þess minnast að þar var á ferð hinn sanni Iþróttamaður. Fáir munu þeir vera, sem fylkt hafa á jafn rikan hátt boðorði iþróttamannsins „Heilbrigð sál I hraustum likama” Þetta hvorutveggja sameinaðist hjá Þorgils. Fimleiki hans og snilli sem iþróttamanns var mótuð af skapgerð hans er einkenndist af drenglyndi og heiðriku hugarfari. íþróttahreyfingin stendur I mikilli þakkarskuld viö Þorgils Guðmunds- son, mun minning hans lifa I hugum þeirra er þeim málum sinna og með honum störfuðu, sem hin sanna fyrir- mynd. iþróttasamband isiands 2 isiendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.