Íslendingaþættir Tímans - 15.05.1976, Blaðsíða 9
Hilmar Þórarinsson
Hilmar Þórarinsson var fæddur 21.
marz 1930 sonur hjónanna Guöbjargar
Guðjónsdóttur frá Bakkagerði i
Jökulsárhlið og Þórarins Björnssonar
frá Húsavik, eystra. Þau hjón bjuggu á
Seyðisfirði um árabil og stundaði
Þórarinn þar sjósókn og útgerð en
fluttu til Hafnarfjarðar uppúr striðs-
lokum og hafa búið þar siðan.
Hilmar kvæntist ekki en átti heimili
með foreldrum sinum alla stund.
Hilmar Þórarinss. var alinn upp við
sjó og sjómennsku og þangað stóð hug-
ur hans þegar i æsku. Hann var sjó-
maður um árabil löngum matsveinn
bæði á fiskiskipum og flutninga-
skipum. Hin siðari ár hvarf hann frá
sjómennsku og gerðist starfsmaður i
Straumsvik, en jafnan stóð.hugur h'ans
til sjós og sjó stundaði hann á trillu
sinni i tómstundum.
Hann lagði upp i sina hinztu sjóferð
einn á báti frá Hafnarfirði að morgni
Pétur lifsförunaut sinum Giselu, fædd
Stephan. Hún fylgdi manni sinum
hingað til framandi þjóðar og hefur til-
einkað sér islenzka siði og hætti á
skömmum tima. Islenzku talar hún
svo lýtalaust að undrun sætir. Minnist
ég þess hve undrandi ég varð fyrir
nokkrum árum er hún ræddi við aðra
þýzkfædda konu alvarlegustu heims-
vandamál á Islenzku.
Kynniokkar Péturs urðu allnáin þau
6 ár er við höfðum setið saman i stjórn
Hafnasambands sveitarfélaga. Pétur
hafði gegnt þar ýmist ritara eða gjald-
kerstörfum af mikilli samvizkusemi.
Hann var tillögugóður og raunsær I
flutningi mála, en hélt fast við sann-
færingu sina.
Er Hafnasambandið bauð i fyrsta
skipti fulltrúum hafnasambanda á
hinum Noröurlöndunum að sitja
ársfund sinn, þá var sá ársfundur
haldinn á Akureyri. Kom þá I hlut
Péturs að sjá um móttöku og fyrir-
greiðslu við hina erlendu gesti.
Minntust þeir oft siðar þessa
Akureyrarfundar og ekki sízt höfðing-
legrar móttöku á heimili hafnarstjóra-
hjónanna fyrsta kvöldiö eftir komuna
til Akureyrar.
Þar átti að sjálfsögðu ekki minnst
■slendingaþættir
hlut að máli, frú Gisela, sem með
elskulegheitum og prúömennsku sinni
gerði okkur öllum þessa kvöldstund
svo eftirminnilega.
Við fráfall Péturs Bjarnasonar hefur
Akureyrarbær misst einn sinna
hæfustu framámanna, en á hinum
skamma starfsferli sinum starfaöi
Pétur að uppbyggingu dráttarbrautar-
innar á Akureyri, sem er grundvöllur
að rekstri stærstu skipasmiðastöövar i
landinu, Slippstöövarinnar á
Akureyri, og á þessu sumri munu
veröa tekin i notkun hafnarmannvirki
þau, sem hann lagði drjúgan skerf til
að reist yrðu til hagkvæms hafnar:
reksturs á Akureyri. Hvort tveggja
mun halda minningu hans á lofti um
ókomin ár.
Þjóö vorri er mikil eftirsjá i, er
ungir hæfileikamenn falla frá langt
um aldur fram.
Sár er harmur aldurhniginna
foreldra, en sárastur er harmur
ekkjunnar og barnanna ungu.
Fyrir hönd Hafnasambands sveitar-
félaga flyt ég ykkur innilegar
samúðarkveöjur.
Okkur hjónunum er söknuður að
kærum vini.
Gunnar B.Guömundsson
hins 29. marz siðastliöins og drukknaði
út af Garðahverfi á Alftanesi.
Mikill harmur er kveðinn að öldnum
foreldrum Hilmars við fráfall hans.
Þrjá syni höfðu þau áður misst i broddi
lifsins og hér kvaddi hinn f jórði af sjö
börnum þeirra, er á legg komust.
Hilmar dvaldi á heimili foreldra
okkar um átta missera skeið i æsku, á
árunum 1937-1943. Þá þegar voru
þroskaðir með honum þeir eðliskostir,
er einkenndu hann jafnan siðan: glaö-
værð, þrautseigja og æðruleysi. Þetta
eru miklir mannkostir og þeim beztir,
er fá notið þeirra I daglegri umgengni,
og svo var hér.
Guðbjörg og Þórarinn:
Okkur er efst I hug þakklæti til
Hilmars fyrir góðar samverustundir i
Breiðuvik og Geitavik. Ykkur og börn-
um ykkar sendum við dýpstu
samúðarkveðjur.
Daniel, Sigrún, Þorbjörg og Sigurður.
t ,
Kveðja
Þrautseigur og þolgóður,
i þeli hlýr,
einatt traustur æðrulaus
og alltaf hýr.
Þannig varstu ætið allan
ævidag.
Sár er þinna söknuður
viö sólarlag.
Visa góðar vörður allan
veginn þinn
að ferðalokum félagi
og frændi minn.
Siguröur óskar Pálsson
9