Íslendingaþættir Tímans - 08.07.1978, Side 8

Íslendingaþættir Tímans - 08.07.1978, Side 8
70 ára Páll Kolbeins Nýlega varð Páll Kolbeins, fyrrverandi aðalféhirðir Eimskipafélags íslands, sjö- tugur. Páll fæddist 14. mai 1908 á Melstað i Ytri-Torfustaðahreppi i Vestur-HUna- vatnssýslu. Froeldrar Páls voru heiðurs- hjónin þar, sr. Eyjólfur Kolbeins Eyjólfs- son og kona hans, Þbrey Bjarnadóttir. Fljótt bar á þvi að Páll væri bæði iðinn og námfús. Hann veitti móður sinni hjálp- arhönd eftir þvi sem aldur, kraftar og geta leyfðu. Páll var þó yngstur systkina sinna, en faðir hans féll frá er Páll var aðeins þriggja ára. Páli var eigi nóg aö vinna hörðum höndum heima við, hugur hans hneigðist einnig til bóklegs nams. Han'n gekk þvi i Verzlunarskóla tslands, er hann hafði aldur til og tók próf þaðan vorið 1930. Siðan stundaði hann nám við verzlunarskóla Nehms i Kaupmannahöfn 1934-1935. Verzlunarpróf i þýzku og ensku tók hann frá Dr. Nagel Pádagogium fúr fremde Sprachen i Leipzig 1935. Ensku- nám viö University of London University College og samtimis endurskoðunarnám við Pitman’s College i London 1935-36. Aður hafði Páll stundað verzlunarstörf við Kaupfélag Flateyjar 1925-1926. Þá vann hann einnig alhliða verzlunarstörf við útgeröarverzlun Ornólfs Valdimars- sonar við SUgandakjörð, þaraf eitt ár sem forstjóri Fisksölusambands Súgfirðinga. Sumurin 1936 og 1937 var Páll verzlunar- stjóri i söludeild Ferðaskrifstofu rikisins. Ennfremur var hann bankaritari i Lands- bankaútibúinu á Isafirði veturinn 1936-37. A árinu 1938 gerðist Páll skrifstofustjóri prentsmiðjunnar Eddu i Reykjavik og hélt þeim starfa nokkuð fram á árið 1944. Þá hvarf Páll frá þvi starfi og gerðist nú yfirbókari hjá Eimskipafélagi Islands, sem hann stundaði af kostgæfni um nitján ára skeiö, unz hann tók viö starfi aöalfé- hirðis þess félags árið 1963. Fyrir bindindishreyfinguna á íslandi hefur hann gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um og verið i stjórn Barnaheimilis templ- ara frá þvi að barnaheimilið að Skálatúni tók til starfa 1954. Auk þess má og geta þess, aö Páll var ritstjóri félagsblaðs tþróttafélagsins Stefnis, Súgandafirði, en hversu lengi hann annaðist ritstjórn þess, er mér ekki kunnugt. Loks má geta þess, að Páll gekk ekki i hjónaband fyrr en 5. júli 1940. Þá gekk hann að eiga Laufeyju Þorvarðardöttur prests að Stað við Súgandafjörð, Brynjólfs sonar. Fyrirnokkrum árum fóru fram alþing- iskosningar. Ef ég man rétt.fór þær fraiú i Austurbæjarskólanum. A þann kjörfund kom Páll til að greiða atkvæði svo sem meðfylgjandi mynd sýnir. Hann reið d klárnum á kjörfundarstað, krossaði list; ann, svo gilt væriblað. A talningu hlustaði stund og stund, en stöku sinnum þó fékk sér blund. Úrslitum kveið hann ei hætis hót, en hnarreistur konu og börnum gekk > m'ót. Nú standa alþingiskosningar fyrir dyr- um i þessum mánuði. Ekki býst ég við að Páll geti mætt á þeim kjörfundi á svipað- an hátt sem á fyrrgreindum kjörfundi, þv* heilsu hans hefur hrakað mjög undanfar- ið. Þó er ekki gott að segja. Kraftaverk hafa alltaf gerzt og hvi skyldu þau eigi gerast enn. Pálihafði ég ekki kynnzt fyrr en við fór- um að vinna saman i Edduprentsmiðju- Meðhverjum deginum sem leið féll mér æ betur við hann. Hann var ætið hýr f lund, geðgóður, samvinnuþýður, greiðvikinn, hjálpsamur og i skemmtiferðalögum var hann jafnan hrókur alls fagnaðar. Ég óska Páli til hamingju með sjötugs- afmæliö og um leið allt þaö góða og gagn- lega sem hann hefur stutt og styrkt af al- hug og kostgæfni á undanförnum áratug- um. Þau verk munu verða óbrotgjarn minnisvarði i endurminningunni um Pól Kolbeins. Astvinum Páls óska ég einnig alls hins bezta meö góðar og hugljúfar minningar um ástkæran maka og föður. Ég óska þér Páll minn, enn á ný til hamingju meö hinar ágætu minningar sem ég á um þig, eftir nærri sex ára sam- starf fyrir fjörutíu árum. Liföu heill og sæll i hárri elli. Jón Þórðarson. / hreiminn i rödd hans. Hann hefur vafa- laust þá grunað — eða vitað að rödd hans myndi ekki hljóma um Herjólfsdal á hátiöinni, sem í hönd fór, — að hans hlut- verki þar væri lokið. Þvi’miður lifði hann þaö ekki er dalurinn var vigöur hátiðinni á ný. — En ég held, aö Stefán hafi haldið sáttur úr höfn, i átt til hins ókunna. Og eigum við ekki að vona, að það hafi beöiö hans hátiö I öðrum Herjólfsdal? Dauðinn var honum enginn ógnvaldur. Ég held aö hann hafi öllu fremur litið til hans með forvitni og spurn i hug. Þótt Stefán hefði mörg ár á baki, var hann fram á siðasta ár, kvikur á fæti. Og hann vildi vera bað. 8 Siðasta árið var honum þvi erfiðara en hann vildi viðurkenna. Andinn var fersk- ur og friskur, og skapið ólamað. En likaminn var ekki lengur hinn þjáli þjónn. Fjaðurmagniö var horfið, og hann átti erfitt með að sætta sig við það. Hann gerði sér ljóst, aö likamlegt þrek og heilsa væri aö fjara út, og var þvi reiðubúinn til að kveðja. Þaö var honum áreiöanlega nær skapi en aö lifa við vaxandi hrörnun. Stefán stigur ekki framar a’ fjalir leikhússins, samborgurum sinum til gléðiauka og aödáunar. Og sterk rödd hans bergmálar ekki framar í Herjólfsdal á hátið Eyinga. En i báðum þessum hlut- verkum geymist hann þeim, er sáu hann og heyröu. — Og hann gleymist engum, sem hann þekktu. Með Stefáni er horfinn af sviðinú margslunginn og forvitnilegur persónu- leiki. Rikra sérhæfileika gat hann aldrei notið, nema i brotum. Og af þeim brotum miðlaöi hann þeim, er þiggja vildu, af miklu örlæti. Ég þakka Stefáni löng kynni, og margar ánægjustundir, og óska honum góörar feröar áfram. M.Skaftfells íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.