Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 6
læti fyrir góö kynni allt frá unglingsárum beggja. Kæri vinur þér viö þökkum, þina tryggð um liðin ár. Enda varst þú okkar krökkum, indæll afi og ekki smár. 1 guös friöi. Trausti Kristjánsson og fjölskylda Blönduósi. Sextugur: Hans Valdimarsson Bóndi í Miðhúsum t Nú hefur hin aldna kempa Eysteinn bóndi á Ystu-Nöf Hveravöllum lagt sitt hæruhvíta höfuð til hinztu hvildar. Er við hæfi að senda honum siöustu kveðju og þakka samfylgdina. Hann var kominn fast að áttræðu þegar við starfemenn Náttúruverndarráðs og Veðurstofu kynntumst honum. Ekki leng- ur léttur i spori eftir strit og slys langrar ævi en ungur i anda teinréttur og stoltur sem sannur islenzkur bændahöfðingi. Ekkertátti hann lengur óðalið i byggðinni þarhöfðu örlögin spunnið þræöi sina ööru visi en hann hugði en þeim mun viðari lendur átti hann aö verja jöklanna á milli. Hann var ókrýndur konungur Hvera- valla á Kili i fjölda ára. Starfaði á sumr- um sem sauðfjárveikivörður við annan mann Bjuggu þeir á Ystu-Nöf. Einnig var hann vörður i sæluhúsi F.í. á staðnum meðan þrekið leyfði. Munu margir minn- ast hans þaðan allflestir af góöu einu en þeir munu til sem sáu skrápinn snúa út helzt þeir sem honum fannst sýna yfir- gang. Hann var trúmennskan holdi klædd við störf sin. Lét ekki veður né vinda aftra sér fráaðsöðla sinn hestkallaá hundinn og halda vestur að Langjökli til að reka rolluskrattana frá girðingunni. Oft kom hann kaldur og blautur úr þessum ferðum og þótti þá gott að koma inn og fá heitan tesopa. Einnig gat hann komiö fagnandi og glaður eins og ungur drengur i sól- skinsdegi með blágresi, fjandafælu og fjalldalafifil i fögrum ilmandi vendi. Blómintindi hann handa okkur kvenfólk- inu vestur undir jökli. Hann var vel að sér um náttúru landsins og fræddi okkur um margt þekkti enda grös og blóm betur en margur langskólagenginn maðurinn. Vináttaogfriðsemdeinkenndi sambýlið á Hveravöllum. Oftvarglattáhjalla þeg- ar við komum samani einhverju „kotinu” Ystu-Nöf, Veðurstofuhúsinu eöa Hvinverjakoti en það nafn mun Eysteinn hafa gefið vistarveru Nátturverndar- starfsmannsins og margt fræddu þeir okkur um verðirnir á Ystu-Nöf. Þegar sumri tók að halia og rökkvaði á kvöldin sátum við á hljóðu skrafi og Eysteinn sagöi frá ymsu frá liöinni tið. Stundum hafði hann áttræöur maðurinn orð á þvi að hann kviði þvi að verða 6 1 dag fyllir nágranni minn Hans Valdi- marsson bóndi i Miðhúsum, Vatns- fjarðarsveit, 6. áratuginn. — Við sveit- ungar hans munum koma saman á heim- ilinu i Miðhúsum i kvöld til aö fagna meö honum og færa honum árnaöaróskir I til- efni dagsins og gleðjast með þeim hjón- unum yfir genginni gæfuleiö. Frostaveturinn mikli 1918 er mörgum i minni af eðlilegum ástæðum. Kuldinn smaug um hibýli manna og hús og næddi um mann og mállausan án afláts, gerði sig enda heimakominn 1 baöstofum bændabýlanna og ekki var margt um varnir viöast hvar, ljós og ylur af oliu eða rafmagni svo fjarri að fólk dreymdi ekki slika drauma I afskekktum fjörðum og döium þessa iands. í Vatnsfjarðarseli — nú á dögum gjarnan Seli — er einnig kalt og vindurinn æðir og hvin, sleikir vandlega freönar þekjur húsa og myndar sterkan streng i sundum og gegn slikri höfuðskepnu á þjóð flokkurinn i sjálfu sér ekki mörg úrræði, en hann hefur lengi búið i landinu og herzt i sambúðinni við vinda og vetur, veit og sem er að öll él styttir upp um siðir. gamall og að sér leiddust gamalmenni. Vinum sinum og vandamönnum hélt hann ógleymanlega veizlu sumarið 1975 á Hveravöllum á áttræðisafmælinu. Var það siðasta sumariö hans á fjöllum. Og nú þarf hann ekki lengur að kviða þvi að verða gamall. Eysteinn taldi sig mjög lánsaman meö samverkamennina úr Biskupstungum. Fyrst i f jölda ára óskar á Brú sem reynd- ist honum einstaklega lipur hvort heldur var við eldamennsku eða snúninga á jeppanum. Ekki reyndist Ingvar i Arnar- holti honum siðri. Þeir létu hann njóta sinnar „konungstignar” oghafi þeir þökk fyrir. Það var mannbætandi að fá að kynnast þessu heiöarlega sanna Islenzka karl- menni. Nú vorar senn á fjöllum. Þá halda þeir af staö vinirnir. Kempan Eysteinn, klár- inn Lýsingur og hundurinn Smali. Enginn þeirraer lengurgamall né haltur. Ungir á ný og fagnandi halda þeir saman af stað inn i öræfakyrrðina. Bergþóra, Halla og Valgeröui I Það er þennan vetur — þann 18. marz — að dagsins ljós skin hiö fyrsta sinni i augu Hans Valdimarssyni. Vetrarsólin heilsaði honum og snævi þakið umhverfið þar i efra, hjarn á melum og svell i holta- sundum og á vötnum, töfraheimur, mikil birta i efra, hjarn á melum og frost, islenzk náttúra i vetrarham, hún býður hinn unga svein velkominn til leiks og starfs: hún hefur gætt hann þreki, and- iegum og likamlegum styrk, traustleika, æðruleysi. — Foreldar afmælisbarnsins Valdimar Steinsson og Björg Þórðardóttir höfðu þá um hrið búið þar I Seli af miklum dugnaði og iöjusemi. Elzt barna þeirra er Hrólfur þá Hans, Gunnar og Ingibjörg- Búa systkini hans öll i Heydal, þannig að ekkert systkinanna frá Seli hefur leitað sér bólfestu utan fæöingarsveitar sinnar. Sveitastörf uröu honum fljótt töm og verkvöndun var og er einkenni hans. AlK sem hann lætur frá sér fara er vel unnið og ber vott samvizkusömum verkmanni og högum. Hin seinni ár eftir að niöur lögöust flutningahættir bændasamfélags- ins — en reyndar sá ég Hans Valdimars- son siöastan manna koma með búsafurðir á hesti undir reiðingi hér á bryggju hefur hann fengizt við i tómstundum að flétta hrosshár i gjarðir og fullvinna þæf. Eru gripir þessir nú meira til skrauts og minja um liöna tið en notkunar og eru hinir laglegustu. Hans Valdimarsson var ekki til auðs borinn og þeir munu fáir hinir virku dagar er aö baki liggja, aö ekki hafi hann risiö upp árla og gengiö sinna verka á vit. En íslendingaþaettii'

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.