Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 9

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 9
Bergþóra Bergsdóttir F. 8. júnl 1885 D. 7. apríl 1978 Kveðja frá börnum hennar. Hver bar mig á höndum er barn var ég? Hver benti mér ávallt á réttan veg? Hver bað fyrir mér og blessaði mig? Min bliðasta kæra móðir. Hver þerrði tárin svo þornaði brá? Hver þreyttist aldrei að benda mér á Hfsins fegurð i ljóma að sjá? — Min ljúfasta kæra móðir. Hver hjálpaöi ætið i hverri raun? Hvergi dæmdi eöa bað um laun. Hótt lægi brautin um brunahraun Min bliðasta kæra móðir. t“ú lést ei undan þótt lifsélin stinn 'öngum berðu fast þina kinn. t’ú herrann baðst fyrir hópinn þinn ~~ min hugrakka kæra móðir. Sá herra er fólst þú hópinn þinn herji þig nú i dýrð sina inn °8 breiði yfir hinsta beðinn þinn °g blessi þig kæra móðir. R.G. F. 8.6. 1885 D. 7.4. 1978 Kveðja frá systkinabörnum á Austur- landi. Fædd 8. júní 1885. Dáin 7. april 1978. Benedikta Bergþóra Bergsdóttir hét hún fullu nafni. Hún var fædd að Hjarðar- '’aga á Jökuldal. Móöir hennar var Sól- Veig Þórðardóttir frá Sævarenda I Loð- úiundarfirði. Hún var af Skúlaætt, sem pekkt er á Austurlandi. Faöir hennar var Bergur Arnason frá Arnanesi i Hornafirði. Hann var af ætt ''öns Steingrimssonar eldklerks. Bergur ^ndaðist áður en Bergþóra dóttir hans f®ddist. Hergþóra ólst upp i Hjarðarhaga hjá jnóður sinni og stjúpa Magnúsi Ivarssyni ra Vaði. Hún fór mjög snemma að vinna ,s|endingaþættir sem þá var titt með börn eða svo fljótt sem kraftar leyfðu. Langt innan við ferm- ingu vann hún viö barnagæslu hjá séra Einari Þórðarsyni i Hofteigi, en þaö er næsti bær við Hjarðarhaga. Um tvitugt giftist hún Þorkeli Jónssyni frá Fjallsseli i Fellahreppi. Hann var greindur maöur og hagyrðingur góður. Þau bjuggu mestallan búskap sinn á Arn- órsstöðum á Jökuldal. Eignuöust þau 12 börn. Tveir drengir dóu i frumbernsku, en tvær dætur fengu berkla. önnur þeirra, Sigriður, andaðist 15 ára 1930, en hin Sól- veig, fékk nokkurn bata, en fékk lömunar- veiki og var heilsulitil i mörg ár. Hún and- aðist 1934, þá 27 ára. Þorkell andaðist 1922 og var þá yngsta barn þeirra hjóna á öðru ári, en það elsta 17 ára. Bergþóra hélt bú- skap áfram á Arnórsstööum eftir lát manns sins. Varð hún þó aö hafa vinnu- menn viö bústörfin þar sem börnin voru svo ung og heimilið stórt. Nokkrum árum eftir fráfall Þorkels ræðst til hennar, sem ráösmaður, Gunnar Jónsson, bróöir Þorkels. Gunnar var greindur maður og fjármaður af Guðs náð. Sá eiginleiki var hefur ætiö verið tal- inn ómetanlegur fjárbónda og mun hann hafa notið þeirrar hæfni sinnar einkar vel á þeim stað miðaö við þeirra tiðar bú- skaparhætti. En sem kunnugt er eru land- kostir góðir fyrir sauöfé á Jökuldal. Bene- dikt i Hofteigi, er um skeið var mikill fjár- bóndi, hefur getið þess i grein, sem hann ritaði um Gunnar látinn, hve mikill fjár- ræktarmaður hann var og hve vænt fé hann átti. Gunnar mun fljótlega hafa orð- ið allvel efnaður bóndi á þeirra tiðar mælikvarða. Þau Bergþóra og Gunnar eignuðust eina dóttur, Rögnu, sem nú býr i Kópavogi, en þau bjuggu saman, unz Gunnar lést i hárri elli fyrir allnokkru sið- an. Arið 1943 reistu þau nýbýli i landi Skjöldólfsstaða og nefndu það Gilsá. Þar bjuggu þau unz þau fluttu til Rögnu dóttur sinnar, sem þá var búsett i Hafnarfirði. Bergþóra og Gunnar voru manneskjur ólikrar gerðar en munu þó ávallt hafa virt mannkosti hvors annars. Börn Bergþóru voru þessi: 1. Guðný, ógift, býr i Reykja- vik. 2. Sólveig, lést 1934. 3. Jón, dó á fyrsta ári. 4. Jón Sigurðsson, dó fárra daga gam- all. 5. Elin Margrét húsmóðir á Skjöld- ólfsstööum. Hún giftist Lúövig Þorgrims- syni. Hann drukknaði i Jökulsá. Seinni maður hennar er Þorsteinn Snædal. 6. Jón, ógiftur, býr i Reykjavík. 7. Bergur, bjó á Reyðarfirði. Hann drukknaði af mb. Katrínu 1961. Hans kona var Þðrey Björnsdóttir. Hún er látin. 8. Sigríður, lést 1930. 9. Loftur, býr i Kópavogi. Kona hans var Margrét Halldórsdóttir frá Kóreks- stööum. Hún er látin. 10. Svanfriður, gift Eyjólfi Guðmundssyni verslunarstjóra i Sild og fisk. 11. Guðrún, ógift býr I Reykjavik. 12. Arnór, húsamálari i Reykjavík kvæntur Huldu Ingvarsdóttur úr Borgarnesi. 13. Ragna, sem áður er getið, gift Sveinbirni Jóhannssyni frá Norðfirði. Afkomendur Bergþóru munu nú vera 91. Attatiu og sex ára gamalli veittist henni sú ánægja að sjá fimmta ættliðinn i beinan kvenlegg. Eftir lát Gunnars dvaldi Bergþóra hjá börnum sinum, að mestu hjá Guðnýju og Jóni i Reykjavik og veit ég aö hún mundi vilja þakka þeim alla þeirra umönnun, þegar þrekiö dvinaöi og þörfin var mest. Sannarlega hefur Bergþóra gengið i gegnum mikla erfiðleika svo sem margt af hennar samtiöarfólki. Það gefur auga leið, hve erfið lifskjörin hafa verið meö svo stóran barnahóp i afskekktu héraði, þar sem um margra tuga kilómetra veg varð að fara um mikiö torleiði til læknis eða næsta verslunarstaðar. Ofan á þá sáru reynslu að missa börn sin sem að of- an er talið, missti hún mann sinn á góöum aldri frá stórum barnahóp. Þá dóu tvær dætur hennar úr berklum, en hinn hvíti dauöi var þá og lengi siðan hinn skelfilegi vágestur hér á landi sem kunnugt er. Bergþóra var sterkur persónuleiki, sterk- byggð andlega og likamlega og lét ekki erfiðleika lifsins beygja sig. Hún hafði sterkan vilja og mikla sjálfsbjargarvið- leitni, enda mjög starfssöm kona. Hún 9 Lokið er löngum árum 1 Ijóði, skuggum og tárum ^arinn fórnarstig. L*ögl á þessum degi, þökk og dulinn tregi 1 örjóst vor beygja sig.

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.