Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Page 14
Guðmundur Gilsson
Guðmundur Gilsson frá Hjarðardal i
önundarfirði andaðist 22. april.
Hann var fæddur á Mosvöllum i ön-
undarfirði 29. október 1887 og þvi 90 ára
gamall er hann lézt. Foreldrar hans voru
hjónin Gils Bjarnason og Guðmundina
Jónsdóttir sem þá bjuggu á hálflendunni á
Mosvöllum. Þar ólst Guðmundur upp með
foreldrum sinum. Miseldri var meö þeim
hjónum. Gils var 46 ára er þau giftust 1878
en Guðmundina þá innan við þritugt.
Hafði Gils búið með Halldóru systur sinni
og höfðu þau tekið fósturson.sem var 10
árum eldri en Guðmundur Gilsson. Þaö
var Guðmundur Bjarnason sem tók við
búi á Mosvöllum eftir þau. Hjónin og börn
þeirraáttu þóheimili þar hjá fóstursynin-
um þar til þau fluttu að Hjarðardal innri
1914.
Guðmundur Gilsson sótti nám i Stýri-
mannaskólannogútskrifaðist þaðan vorið
1912, Eftir það var hann skipstjóri á skút-
um nálægt 10 árum.
Hanngiftist 1914 Sigriði Hagalinsdóttur
og þáu hófu búskap i Hjarðardal innri
vorið 1919. Konu sina missti Guðmundur
1947 en bjó i Hjarðardal þar til Hagalin
sonurhanstókviöbúinuograunar i félagi
við hann nokkur ár. Siðustu árin dvaldi
hann á heimili dóttur sjnnar á Spóastöð-
um I Biskupstungum.
Þetta er örstutt æviágrip Guðmundar
Gilssonar. Hann fæddist á þeim árum
þegar fyrstu eldavélarnar voru að koma I
sveit hans og oliulampar voru aö nema
þar land en skilaði af sér vélvæddu og raf-
lýstu búi. Hann lærði sjómennsku á
róðrarbátum og stjórnaði seglskipum á
siðustu árum þeirra. Nánari frásögn um
æviferil hans hef ég rakið áður en nú er
annaðrikara I huga. Nú er það maöurinn
sjálfur sem kvaddur er sem á hug okkar.
Guðmundur Gilsson var flaslaus maður
og yfirlætislaus. Hann var enginn máls-
krafsmaður á fundum en hygginn og til-
lögugóður og sá oft leið til samkomulags
og framkvæmda. Hann var valinn I
sveitarstjórn, kaupfélagsstjórn, sýslu-
nefnd og til ýmissa áþekkra trúnaðar-
starfa I félagsmálum og reyndist hvar-
vetna traustur maður og öruggur. Hann
kunni vel til verka,varð ungur iþrótta-
14
maður á sklðum og skautum en var llka
iþróttamaður við vinnu á sjó og landi,!
vefstól og urtdir stýri, ratvis svo að naum-
ast virtist einleikið. Þó eru það ekki af-
rekinsem verða hugstæðust, heldur hver
maðurinn var að allri gerð i hversdags-
leikanum, fas hans oghjartalag, viðbrögð
og tilsvör. Þegar ég hugsa nú úr fjarlægð
rúms og tlma til æskusveitar minnar,man
ég ekki notalegri þokka yfir öðru heimili
en þeirra hjóna i Innri-Hjarðardal — og er
þó margs góðsað minnast,þvl að mannval
var mikið og gott. Og það erumargir fleiri
en ég sem eiga ljúfarog mætar minningar
frá heimilinu I Hjarðardal.
Þau Guðmundur og Sigriður eignuðust
10 börn sem öll komust úr bernsku. Þau
eruþessi: Gilsrithöfundur og alþm. Kona
hans er Guðný Jóhannesdóttir. Ingibjörg
húsfreyja á Spóastöðum i Biskupstung-
um. Húner kona Þórarins Þorfinnssonar,
Helga dó 1940. Þórunn húsfreyja á Siglu-
firði. Hennar maður er Einar Albertsson.
Hagalin bóndi I Hjarðardal innri giftur
Þórdi'si Guðmundsdóttur. Kristján húsa-
smiðameistaril Kópavogigiftur Valborgu
Hallgrimsdóttur. Magnús bóndi i' Tröð i
önundarfirði. Kona hans er Asta Asvalds-
dóttir. Ragnheiður húsfreyja i Auðsholti I
Biskupstungum kona Einars Tómasson-
ar. Páll skipstjóri I Reykjavik kvæntur
Helgu Pétursdóttur. Bjarni húsasmiður
og sjómaður I Reykjavlk, ógiftur.
Guðmundur Gilsson var um tvitugt þeg-
ar ungmennafélagshreyfingin breiddist
um landið. Hann var einn þeirra ungu
manna sem þar fékk mótun sina til
félagshyggju og þegnskapar samfara
stórum draumum. Þær draumsýnir rætt-
ust ekki allar nákvæmlega en rættust þó
svo að land og þjóðlif varð betra. Börn
hans öll hafa staðizt með prýði það próf
sem lifið leggur fyrir alla. Mörg barna-
börnin eru nú fulltiða fólk og þriðji liður
er óðum að risa á legg. Ég veit að áhrif-
anna frá heimilinu I Innri-Hjarðardal
gætir þar viða og ég veit ekki neinar óskir
betri en að þeirra hlutur megi verða sem
mestur.
Guðmundur Gilsson er kvaddur með
ljúfri þökk fyrir langan dag.
H.Kr
islendingaþættir