Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Íslendingaþættir Tímans - 17.11.1979, Síða 7

Íslendingaþættir Tímans - 17.11.1979, Síða 7
Sveinn Ogmundsson fyrrum prófastur Fæddur. 20. mal 1897. Dáinn. 1. okt. 1979. begar mér barst sd fregn, aö séra Sveinn væri látinn, rifjaöist upp i huga mér löng saga, sem ekki veröur sögö hér nema aö litlu leyti. En viö sr. Sveinn vorum samverkamenn, nágrannar og vinir um langa hrlö. Mér þykir þvi eölilegt aö ég minnist hans meö nokkrum oröum. Hér er kvaddur maöur sem vann sitt ævi- starf svo aö segja á sama staö, vann þaö af trúmennsku og velvild til allra sam- feröamanna sinna. Hann var maöur sem lét litiö á sér bera og sóttist ei eftir veg- tyllum. Hann var svo yfirlætislaus sem nokkur maöur getur veriö. Sveinn Ogmundsson fæddist i Hafnar- firöi hinn 20. mai 1897. Voru foreldrar hans ögmundur Sigurösson skólastjóri I Flensborg, d. ’37, og fyrri kona hans Guörún Sveinsdóttir prests Skúlasonar. Hún lést, er Sveinn var á öðru árinu aöeins. Fljótlega eftir aö ögmundur missti konu sina kvæntist hann á ný og gekk aö eiga Guöbjörgu Kristjánsdóttur frá Snæringsstöðum f Svinadal, systur Jónasar læknis. Gekk Guöbjörg Sveini I móöur staö, enda nefndi hann hana ætíö móöur sina. ögmundur skdlastjóri var rómaöur stjórnandi skóla sins, eins og kunnugt er. Sveinn var ungur til mennta settur. Hann varö gagnfræöingur aöeins fjórtán ára og stúdent fjórum árum siöar. Aö stúdentsprófi loknu hugöi Sveinn á nám erlendis til þess aö takast siöar á hendur kennarastarf viö æöri skóla. En fjár- styrkur til námsins var ekki fáanlegur. Innritaöist þá Sveinn í guöfræöideild há- skólans ogstundaöi nám sitt i rúm fjögur ár oglauk þvi i febrúar 1920. Veturinn aö námi loknu kenndi Sveinn viö gagnfræða- skólann i Flensborg. En prestlæröur maöur á venjulega þá köllun aö takast á hendur prestsembætti og vinna ötullega á akri mannlifsins aö boöun Orösins og aö bæta mann lffiö. Haustiö 1921 vigistsvo Sveinn til Kálf- holts í Holtum, sem þá haföi staðiö laust um ársskeiöeftirlát sr. ólafs Finnssonar, en veriö þjónaö af nágrannaprestum. í Káifholti bjó sr. Sveinn i áratug, en fluttist þaöan niöur i Þykkvabæ. Bjó hann þar á nokkrum stöum, uns byggt var prestsetrið Kirkjuhvoll 1943. Þar bjó hann til hausts 1969, að flutt var til höfuö- staðarins, þar sem dvalist var til æviloka. Auk prestsstarfsins sinnti sr. Sveinn kennslu. Þannig var hann barnakennari i Islendingaþættir Þykkvabæ I sex ár og kom oft nálægt kennslu i barnaskólanum sem stunda- kennari. A heimili sinu kenndi hann ungiingum flest prestskaparárin. Fór mikiö mikiö orö af kennslu sr. Sveins. Hann var virtur af nemendum sinum, en ekki aöeins þaö, heldur elskaður. Próf- dómari var hann viö skólann alla sina prestskapartiö. Attum viö þar mikiö saman aö sælda, og er þess gott aö minnast. Aldrei minnist ég þess aö hlaupiö hafi snuröa á okkar samstarf, sem varaöi á annan áratug. Sr. Sveinn ávann sér tryggö safnaöa sinna, sem bezt sást á þvi, að þegar hann varö sjötugur og átti lögum samkvæmt aö láta af embætti, skoraöi meiri hluti safnaöarbarna hans á hann aö vera prestur enn um sinn. Varö hann viö þeim tilmælum. Heimild er fyrir þessu, góöu heilli, en hefur ekki oft veriö notuö. Ég baö sr. Svein oft aö koma í skólann, og einnig kom hann af eigin hvötum, til aö tala viö börnin og láta þau syngja. Mest var sungiö eftir sr. Friörik, en hjá honum haföi sr. Sveinn notiö leiösagnar I æsku og dáöi hann umfram aöra menn. Minnist ég meö ánægjumargraslikrastunda. Er von minog trú, að eitthvaö hafi fest rætur af þvl, sem presturinn reyndi aö gróöursetja i hjörtum barnanna af hinum bjarta boö- skap kristninnar. En sr. Sveinn predikaöi ekki aöeins Ikirkju ogskóla, heidur einnig á stéttunum, þ.e. meö dagfari sinu öllu, mótuöu af prúðmennsku og yfirlætisleysi. Er sr. Sveinn lét af prestskap var honum ogfrúhanshaldiö veglegt samsæti isamkomuhúsinu I Þykkvabæ. Þar var aö vonum margt um manninn, þvi veriö var aö kveöja prest er þjónaö hafði sama prestakallinu i tæpa öld, og sem veriö haföi prófastur sex siöustu árin. Mér var faliö aö f lytja ræöu i hófi þessu, en þá var ég nýfluttur Ur plássinu. Auk þess las ég þarna nýort kvæöi prestinum og frúnni til heiöurs og þakka fyrir löng og góö kynni. Sr. Sveinn var tvikvæntur. Hann kvæntist áriö 1921 Helgu SigfUsdóttur prests á Mælifelli Jónssonar. Eignuöust þau fjögur börn, og eru nú þrjú á llfi. Helga lézt langt um aldur fram áriö 1935. Slöari kona sr. Sveins og sem nú sér á bak eiginmanni sinum eftir rúmlega 41 árs hjónaband, er Dagbjört Glsladóttir frá Suöur-Nýjabæ I Þykkvabæ. Eignuöust þau þrjár dætur, sem allar eru á lifi. Siöasta prestsverk sem sr. Sveinn vann, var er hann jarösöng tengdamóöur slna, Guörúnu Magnúsdóttur frá Suöur-Nýja- bæ, I janúar s.l. Guörún varö 93 ára. Nokkru siöar lést maöur Guörúnar: Gfsli Gestsson, rúmlega hundraö ára. Viö jaröarför hans gat sr. Sveinn ekki veriö viöstaddur sökum lasleika. 1 dag veröur öölingurinn séra Sveinn ögmundsson jarösettur I kirkjugaröinum i Þykkvabæ. Þar vildi hann hvila. Þá er hann kominn heim I byggöina, þar sem hann átti sln starfsár og naut lifsins I faðmi fjölskyldunnar. Ég og mitt fólk sendir innilegar samúöarkveöjur aöstandendum séra Sveins og þakkar liönar stundir. AuöunnBragi Sveinsson. t»eir sem skrifa minningar- eða afmælisgreinar í Islendingaþætti, eru eindregið hvattir til þess að skila vélrituðum handritum, ef mögulegt er 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.