Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Qupperneq 10

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Qupperneq 10
Þeir sem til þekktu, kynntust einstöku samstarfi og eljusemi þeirra hjóna, dugnaði og myndarbrag i öllum búshátt- um, utan húss sem innan. A Efri-Fitjum bjuggu hjá þeim um árabil Sigriður, tendamóðir Kristinar, ásamt fóstursyni sinum Jóhanni Benediktssyni. Eftir aö Kristin fluttist til Reykjavikur meö fóstru sinni sem fyrr er nefnt, gafst henni tækifæri til að umgangast föður sinn, stjúpu sina, Rannveigu Bjarnadótt- ur, hina ágætustu konu og bræður sfna, en Ásmundi og Rannveigu varö fimm sona auðiö. Þar voru tengd sterk fjölskyldu- bönd. Kristin var einstaklega traust og geð- þekk kona. Þeir er henni kynntust, mátu hana mikils og nutu öryggis og hiyju i' ná- vist hennar. Jóhannes bóndi hennar, er greindur maður og vinmargur. Það hefur verið ein- staklega ánægjulegt og iærddmsrikt aö kynnast heimilislifinu á Efri-Fitjum, sjá hvernig ástúð og umhyggja foreldranna* þroskuöu mannvænleg börnin til aö verða hinir traustustu og ágætustu menn, sem hafa fetað i fótspor foreldra sinna til manndóms. Börn Kristinar og Jóhannesar eru: Halldór, rekur þjónustumiöstöð að Viðigeröi, kvæntur Helgu Ingvarsdóttur. Þau eiga 3 börn. Arný, húsmóðir i Kópavogi, gift Hauki Hliðdal Eirikssyni. Þau eiga 4 börn. Asbjörn Þór, bóndi að Auðkúlu, kvænt- ur Halldóru J.ónmundsdóttur. Þau eiga 3 börn. Þorgeir, bóndi á Efri-Fitjum, kvæntur Sigriöi Tryggvadóttur. Þau eiga 2 börn. Fósturdóttir Kristinar og Jóhannesar er Alfheiður Björnsdóttir, húsmóðir i Garðabæ, gift Sigmundi Jónssyni. Þau eiga 4 börn. Árið 1972 hættu Kristin og Jóhannes bú- skapá Efri-Fitjum. Þau létu búið I hendur yngsta syninum, Þorgeiri, en fluttust til elzta sonarins, Halldórs, sem rekur um- fangsmikla þjónustumiöstöð aö Viöigerði I Viðidal. Um það leyti var simakerfi sveitarinnar sameinað i simstöð i Vfði- gerði, og önnuðust Kristin og Jóhannes þann þátt þjónustumiöstöövarinnar. Kristin sinnti afgreiðslustörfum viö simstööina af einstakri trúmennsku og hlaut fyrir almenna viðurkenningu sveit- unga sinna. ! þessu starfi sem öörum var hún heil og traust. Hún hóf þar sínn sfð- asta vinnudag 18. janúar sl., en fór siöar þann sama dag á sjúkrahús vegna veik- inda, er hún hafði kennt um 2ja ára skeið. Hún átti ekki afturkvæmt heim. Kristin lézt á sjúkrahúsi i Reykjavik 10. þm. Fráfall Kristinar er sár harmur fyrir fjölskyldu hennar, frændur, sveitunga og aöra vini. Margur ekur oftar en skyldi fram hjá garði frænda og vina i hraða núti'mans. Þeirsem þekktuKristinu Asmundsdóttur, munu lengi finna söknuð og trega, þegar þeir eiga leið um hinn vinalega Vfðidal. Baldur Teitsson Guðrún Sveinsdóttir Fædd 15. ágúst 1881. Dáin 11. mars 1980. 1 dag fer fram i Fossvogskirkju minn- ingarathöfn um heiðurskonuna Guðrúnu Sveinsdóttur, sem lést i siðustu viku og átti þá aðeins hálft annað ár i að verða hundrað ára. Hér var sérstæð merkiskona á ferð, kona sem hafði lifað mesta breyt- ingátimabil I islensku þjóðfélagi frá önd- verðu og sem hélt óskertum sálarkröftum fram aö þvi siðasta. Guðrún Sveinsdóttir fæddist aö Svarf- hóli I Stafholtstungum hinn 15. ágúst árið 1881, en að Svarfhól voru foreldrar hennar i húsmennsku. Móðir hennar var Helga Magnúsdóttir frá Akranesi en faðir Sveinn Jóhannesson frá Asbjarnarstöðum I Borgarfiröi. Ekki varð þeim Helgu og Sveini fleiri barna auðið, en hálfbróðir átti Guðrún, Hafliða Sveinsson siðar bónda og póst aö Staðar- hrauni. Guörún ólst upp með foreldrum si'num fyrstu tólf árin, en þá urðu skyndilega breytingar á högum hennar. Sveinn Jóhannesson drukknaði I Hvitá og á þess- um árum áttu föðurlaus börn i heldur fá hús að venda. Það réðst svo, aö Guðrún fór að Stafholti, þar sem hún dvaldi næstu árin. Borgarnes var á þessum tima vaxandi kauptún. Þangað fór Guörún innan við tvitugt, og þá til frænku sinnar, Helgu Björnsdóttur konu Jóns Björnssonar kaupmanns. 1 Borgarnesi kynntist Guö- rún Þórði Sæmundssyni, pilti á svipuöum aldri, sem þá haföi lokið námi i skósmiði. Nokkru siðar réöst Guörún til frænda sins Guðmundar Björnssonar sýslumanns og 'Þóru konu hans og fluttist til þeirra á Patreksfirði, en Guðmundur varö sýslu- maður i Baröastrandarsýslu áriö 1905. Arið 1908 giftust þau á Patreksfiröi, Guörún og Þórður Sæmundsson og fluttu skömmu siöar til Isafjaröar. Ekki varö dvöl þeirra samt löng vestra, þvi tæpum tveim árum siöar fluttu þau til Hvamms- tanga þar sem þau bjuggu meöan báðum entist lif. A Hvammstanga stundaöi Þórö- ur iðn sina og kenndi mörgum nemum skósmiði. Þegar simi var lagöur um land- iö gerðist hann simstöðvarstjóri á staðn- um. Þau Guörún og Þóröur eignuðust fjögur börn: Sigriði gift Karvel Sigurgeirssyni sjómanni. Deboru gift Asvaldi Bjarnasyni fulltrúa, þriðja dóttirin var Þuriður. Hún. giftist Hrólfi Þorsteinssyni en missti hann eftir stutta sambúö. Hann fórst með Lv Pétursey 1941. Seinni maður Þuriöar var Sæmundur Eggertsson, sem nú er látinn. Yngsta barn Guörúnar og Þórðar er Sveinn skattstjóri i Hafnarfirði. Koná hans er Þórunn Helgadóttir. Þórður Sæmundsson lést árið 1944 og tók þá Debora við starfi hans sem sím' stöðvarstjóri á Hvammstanga. Guðrún dvaldi áfram á Hvammstanga eftir lát manns sins allt þar til er dóttir hennar lót af starfi simstöðvarstjóra, en þá flutti hún til Reykjavikur, enda öll börnin orðin bú- sett á höfuöborgarsvæðinu. Guðrún hafð> þá búiö á Hvammstanga I 60 ár. Það var nokkru eftir að Þuriður Þórð- ardóttir giftist föður minum, aö ég hitti Guðrúnu Sveinsdóttur fyrst. Hún var þú komin á áttræöisaldur, en ekki varö ald- urinn ráðinn af útliti hennar né fasti. Hún var kvik i hreyfingum og ungleg. Guörún var framúrskarandi skemmtileg, hnyttin i tilsvörum og sjófróö. Snyrtimennsku Guðrúnar var viö brugðið. Það liggur i augum uppi aö upP' eldi fjögurra barna, menntun þeirra á- samt húshaldi þar sem mjög var gest- kvæmt hefur tekiö kúfinn af ráöstöfunar- tekjum heimilisins. Guörún var af þeirri kynslóð sem nýtti hlutina og hélt vel á öllu. Niska var henni hins vegar fjarri. En þegar um hægðist naut hún þess aö ganga vel til fara og mikiö þótti henni gaman aö fallegum fötum. Oft sagði Guörún okkur frá bernsku sinni i Borgarfirði og fyrstu búskaparár- unum á Isafirði og Hvammstanga. Hún var minnug svo af bar. Hún yljaöi sér og þeim er á hlýddu við arin minninganna, geröi hlýlegt grin aö ýmsum breytingum sem oröiö höfðu um hennar daga i' þjóðfé- laginu, leit af sjónarhóli langrar og reynslurikrar ævi yfir farinn veg. Siöustu árin dvaldi Guðrún hjá Þuríðj dóttur sinni. Hún hélt fullri andlegr' heilsu fram til hins sfðasta, enda þótt lík' amskraftar væru á þrotum. Guörún Sveinsdóttir var eftirminnileg kona, mikilhæf og vel af Guöi gerö. Bless- uö sé minning hennar. Sveinn Sæmundsson. 10 islendingaþættif

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.