Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Blaðsíða 12

Íslendingaþættir Tímans - 19.04.1980, Blaðsíða 12
A stofnfundi búnaöarsambands Strandamanna var Gunnar kosinn í stjórn þess og átti hann þar sæti fyrstu árin. Þaö kom þvi i hans hlut ðsamt hinum stjórnarmeölimunum aö móta starfsemi þess og festa þaö f sessi. Ég er þaö kunn- ugur þessum málum aö ég veit aö hans hlutur var stór i þessu efni og þaö var ó- metanlegur styrkur aö framsýni hans og glöggskyggni i þeim málum er mest aö- kallandi voru á fyrstu starfsárum sam- bandsins. Hann var kosinn fyrsti búnaöarþingsfulltrúi sambandsins og átti þar sæti i nokkur ár eöa þar til hann flutti til Reykjavlkur. Gunnar gegndi mörgum öörum trúnaöarstörfum fyrir sveit slna og héraö. Atti sæti I stjórn Sparisjóös Hrútfiröinga um 30 ára skeiö, I sýslunefnd Stranda- sýslu um árabil. Skipaöur formaöur fast- eignamatsnefndar Strandasýlsu 1938. Kosinn I stjórn Búnaöarfélags islands ár- iö 1952 og átti þar sæti samfellt til 1967. Skipaöur af landbúnaöarráöherra I sauö- fjársjúkdómanefnd áriö'1938 og átti þar sæti til ársins 1964, þar af formaöur nefndarinnar I 16 ár. Halldór Pálsson búnaöarmálastjóri hefur I ágætri grein er birtist I dagblaöinu Tlmanum, hinn 19. febrúars.l. á 90 ára af- mæli Gunnars á glöggan og greinargóöan hátt rakiö starfsferil Gunnars hjá Búnaöarfélagi Islands og sauöfjárveiki- vörnum og veröur ekki fariö frekar út I þau mál Jiér. Ekki er hægt aö skilja svo viö Gunnar aö ekki sé minnst á störf hans fyrir Fram- sóknarflokkinn. Hann var alla tíö ötull baráttumaöur fyrir stefnu hans og beitti sér mjög I þvi efni einkum i heimahéraöi. Einnig þar vann hann sér traust. Hann átti lengi sæti I miöstjórn Framsóknar- flokksins og lét málefni hans mjög til sln taka. Gunnar var bókhneigöur maöur og víö- lesinn og átti allgott bókasafn. Frístundir sinar, er ekki voru miklar þvl hann var starfsmaöur mikill, notaöi hann til lesturs eöa ritstarfa. Hannhefur skrifaö margar greinar í blöö og tlmarit og meöal annars samiö leikrit. Þau hjón Ingveldur og Gunnar eignuö- ust tvö börn, Sigrlöi gifta Ragnari Guömundssyni fyrrum bónda I Grænu- mýrartungu, nú eru þau hjón búsett I Reykjavlk og Steinunni gifta Benedikt Jó- hannessyni bónda og smiö aö Saurum I Laxárdal I Dölum. Einnig ólust þar upp tveir drengir Þóröur Guömundsson og Björn Svanbergsson báöir bræörasynir Gunnars. Fleiri börn bæöi skyld og óskyld áttu athvarf hjá þeim hjónum um árabil. Nú mun fjölskyldan sem tengd er Græhu- mýrartungu vera oröin allfjölmenn. Þegar lokiö er lögnum starfsdegi er gjarnanlitiö yfir farinn veg. Gunnar átti þvl láni aö fagna aö vera heilsuhraustur alla ævi. Þar sem hann var sístarfandi kom hann miklu I verk. Hæst ber þar ára- tuga störf hans 1 sauöfjársjúkdómanenfd. A starfstima hans fóru fram hin umfangs- miklu fjárskipti til útrýmingar mæöiveik- innar. Þar var f mikiö ráöist og árangur tvisýnn, en þetta lánaöist og gladdi þaö hann mikiö aö svo vel tókst til sem raun varö á. Gunnar var skarpgreindur, ræöumaöur góöur og mikill málafylgjumaöur, rökvls ogsannfærandi, og þvl vel til forystu fall- inn, enda reyndi oft á þaö á hinum fjöl- þætta starfsferli hans. Nú viö vistaskiptin er mér efst I hgua viröing og þökk til hans fyrir allt hans lífs- starf. Mannsins sem helgaöi bændastétt- inni alla starfskrafta sína og var oft I fylkingarbjrósti I baráttumálum þeirra. Viö Hrútfiröingar erum stoltir af þvl aö hafa átt Gunnar Þóröarson. Jón Kristjánssoi frá Kjörseyri Þórdur Hj álmarsson Þeim mönnum fækkar nú óöum, er fæddir voru fyrir eöa um síöustu aldamót. Mönnum er liföu tlmana tvenna og ól- ust upp viö aldarfar og atvinnuhætti fyrri tlma, en gengu svo inn I tæknivædda öld- ina á seinni helmingi hennar, er gaf fyrir- heit um betri og bjartari daga I lífi þjóöar- innar. Samferöamennirnir veröa okkur minnisstæöir, einkum þeir er gáfu eitt- hvaö af sjálfum sér, uröu hluti af þeirri mynd I minningunni, þegar landiö var hvaö bjartast og feguröin hvaö mest. Einn i þeirra hópi var Þóröur Hjálmarsson, bóndi á Háleggsstööum I Deildardal I Skagafjaröarsýslu. Þótt nokkuö sé um liöiö, er hann lést háaldr- aöur og kveöjan siöbúin, þá langar mig til aö minnast hans og þakka honum gengin spor og samfylgd um nokkurra ára skeiö. Hann var fæddur, aö Stafni I Deildar- dal, þann 3. ágúst 1879 og var þvl 98 ára og fimm mánuöum betur er hann lést. Hjálmar faöir hans Þórðarson, Sigurðs- sonar frá Skúfstööum i Hjaltadal, var sér- stæöur persónuleiki, rammur af afli, eins og þeir frændur margir, og fóru sögur af fræknleik hans bróöir hans Þorgilsar á Kambi. Voru þeir bræöur samrýmdir mjög og hefir veriö ritaö nokkuö um þá I skagfirskum fræöum. Amma Þóröar var Hólmfriöur Markús- dóttir frá Skriöulandi I Kolbeinsdal, Þor- lákssonar, en móðir hans var Ragnheiður Gunnarsdóttir ættuö frá Djúpi og af Ströndum. Ungur aö árum missti Þóröur. fööur sinn en dvaldi næstu árin i fööurhúsum, þar til hann réðst til fööurbróöur sins Þor- gilsar á Kambi og var þar vinnumaður um þriggja ára skeiö. Siöan var hann lausamaöur um árabil. Á þessum árum gekk hann aö eiga Þórönnu dóttur Þor- gilsar, hina ágætustu konu, er látin er fyrir allmörgum árum. Voru þau hjón systkinabörn. Móöir Þórönnu var Stein- unn Arnadóttir. Hófu þau búskap sinn aö Háleggsstöö- um, er slöar átti eftir aö veröa heimili þeirra til dauöadags. Voriö 1904 fluttu þau aö Brúarlandi I sömu sveit, en áriö eftir aö Kambi, er var föðurleifö konu hans. Þar bjuggu þau til ársins 1916, er þau flytja aftur aö Háleggsstööum, þar sem þau búa allt til ársins 1952, en þá bregöa þau búi og fá þaö I hendur sonar þeirra, Trausta, er tók viö ábúö á jöröinni. Eftir þaö dvöldu þau hjón i skjóli sona sinna og nutu umönnunar þeirra, er árin færöust yfir. Einnig mun hann hafa stundaö fugla- veiöar og eggjatöku viö Drangey fyrr á árum. Hann andaöist á Sjúkrahúsinu á Sauöárkróki, þann 2. janúar 1978. Þóröur var maöur vinsæll og tryggur vinum slnum, góöur heim aö sækja, spaugsamur og ræöinn. Var heimili þeirra hjóna þekkt myndar- og rausnar heimili. Sá er þetta ritar vill þakka honum gestrisni hans og vináttu meö þessum fá- tæklegu oröum, um leið og honum er beöiö blessunar á æöri tilverustigum. ArniSigurösson 12 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.