Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 23

Heimilistíminn - 03.04.1975, Síða 23
Almáttugur, hugsaöi ég. Nú er ég farin aö hvetja hana aftur. Jæja, en þvi meira sem ég hugsaði um þetta, þeim mun betri fannst mér hug- myndin. Ég vissi, að Madeleine frænka þráði að komast lít að dansa, en eins og htín sagði, þá var enginn kunningi hennar sérlega góður dansherra. Liklega voru þessar leigur einmitt orðnar til vegna sllkra aðstæöna. bær lofuðu að títvega rétta félagann við hvert tækifæri og ntí gætu þær sýnt hvað þær dygðu til. Þannig byrjaði það allt saman. Made- leine frænka hringdi á skrifstofuna og tal- aði viökonuna þarog hringdi svo til mln á eftir. — Ég var óskaplega óstyrk, eins og þtí getur skilið, en ég títskýrði nákvæmlega, hvemig lá I þessu. Ég sagði hvað ég væri gömul og að mig vantaði karlmann, sem gæti farið með mér út að dansa, ekkert annaö. Ég sagðist ekki vera rik, en að ég hefði efni á að greiða fyrir samfylgd karl- manns, kvöldverö á veitingahúsi og allt þaö. ■ — Hvaö sögðu þau? spurði ég áköf. ■ — Konan var afskaplega vingjarnleg og hringdi I mig aftur klukkutlma siðar og sagði að þau heföu fundið rétta manninn handa mér. Fullorðinn mann, leikara, satt aö segja. Htín fullvissaði mig um aö hann væri heiðarlegur og almennilegur á allan hátt og sannfærði mig um að okkur kæmi vel saman. Hann heitir Richard Marriott. — Hvenær ætlarðu þá tít með honum? spurði ég uppgefin. — Annað kvöld. Veiztu hvað, Ann? Ég er að hugsa um aö láta lita háriö á mér aöeins ljósara. Ég hef verið að hugsa um það lengi, bætti hún snöggt við. Þaö má nærri geta, aö ég hringdi til Madeleine eins snemma og ég framast þorði morguninn eftir kvöldið mikla. — Hvernig gekk? spurði ég. — Stórvel! Ég varpaöi öndinni léttar. — Segöu mér það allt. — Já, við hittumst I fordyrinu á Cumb- erland-hótelinu og fórum svo á notalegan lítinn stað, þar sem hljómsveitin var á- gæt, maturinn dásamlegur og gott rúm á dansgólfinu. Þaö voru kertaljós á boröun- um og.... — Madeleine, þtí gerir mig vitlausa, greip ég fram í. — Það sem ég vil vita, er hvemig þessi Richard Marriott var! — Ó, Richard. Verulega þægilegur og indæll. Sá kann ntí að dansa. Hann er auð- vitaö á aldur við mig og... — Hvernig leit hann tít? — Myndarlegur. Vel klæddur ,og með fallegt bindi. Hann er það sem kalla má viröulegur maður. Hávaxinn og... — Líkaði þér vel við hann? — Já, hann er áreiðanlega hverrar krónu virði. Eftir þetta fyrsta kvöld, fór Madeleine frænka tít meö Richard um það bil einu sinni I mánuði. Greinilegt var að þau kynntust betur og betur og ég spurði hana spjörunum úr. Svo virtist sem þessi Richard Marriott hefði veriö allvel þekktur leikari á unga aldri og Madeleine sagði að hann hlyti aö hafa verið afar glæsilegur i títliti. En lifið haföi ekki leikið við hann, þegar hann tók aö eldast. Hann datt eiginlega niður á milli stóla — ekki nógu ungur til að leika hetjur og ekki nógu gamall til að leika afa. Mig grunaði að hann hefði aldrei verið sérstakur leikari. Sennilega einn af þess- um meðalmönnum, sem björguðust nokk- umveginn. Hann hafði verið kvæntur, en var skilinn. Til að bæta tekjurnar, vann hann svolitið I auglýsingum og svo þetta fyrir miðlunina. Madeleine frænka fann mynd af honum i vindlingaauglýsingu einn daginn og klippti hana út til að sýna mér. Það var enginn vafi á að þetta var aölaöandi mað- ur. Htín sagði llka að hann væri þægileg- ur, kurteis og kynni sig mjög vel. Ég skildi ágætlega að kunningsskapur þeirra þróaðist eins og hann gerði. Þau fóru ekki aðeins tít að dansa, heldur i bíó og á hljómleika og i leikhtís. — Það er indælt að fara tít með ein- hverjum, sem veit raunverulega, hvernig á að haga sér, sagði Madeleine frænka. — Hann er alls staðar kunnugur og þekkir marga. Já, þtí skilur hvað ég á við. Madeleine frænka fór að breytast. Htín skipti algjörlega um háralit og talaði mjög örugglega um sýningar leikhúsanna og bókmenntir. Einu sinni trtíði hún mér fyrir því, að hún hefði boðið Richard Marriott heim til sin um helgi. Það kom mér ekki hið minnsta á óvart. Htín sagði, að þetta yrði allt I mestu sið- semi og þar sem ég þekki frænku mfna, efaðist ég ekki um að htín meinti það. Það sem ég efaðist um, voru hugsanir Rich- ards Marriotts — þangað til ég hitti hann.... Madeleine frænka spurði hvort ég vildi koma og borða kvöldverð með þeim og þar gaf á að llta. Allt sem htín hafði sagt um Richard Marriott var satt. Hann var einkar þægilegur maður og ég var sann- færð um að ég þyrði að trtía honum fyrir frænku minni. Hann var ekki aðeins góður aö dansa, heldur með afbrigðum handlaginn. Yfir helgina gerði hann við hurö, sem marraöi l, klippti runnana, reytti arfa I matjurta- beðinu hjá frænku og hjálpaði til með upp- þvottinn, án þess að vera beðinn. — Mér finnst gaiþan að dunda þetta, sagöi hann léttilega. — Ég geri við allt heima hjá mér. Ekki það að Ibtíðin min komist samt I hálfkvisti við þessa. Ég tók eftir hvað hann teygöi ánægju- lega úr sér I hægindastólnum framan við arininn og að hann naut þess að taka til höndunum I garðinum á kvöldin með pip- una uppi I sér. Og ég hugsaði mitt... Richard fór að vera hjá Madeleine næstum um hverja helgi og hann virtist slfellt ánægðari og eins og heima hjá sér. Hún vandist þvi að hafa hann þarna, en átti þó til að gagnrýna hann stundum. — Ég vildi að hann gengi ekki um I inni- skónum hálfu dagana, sagði htín lágt við mig einn daginn. — Já,enfrænka,hanner btíinn að vera I garðinum I þrjá tima og er að koma tír baöi. — Ég gæti fengið garðyrkjumann, sagði hún. — Vonandi er hann ekki orðinn allt of þreyttur. Við ætlum tít að dansa á nýjum veitingastað. Svo hvarf hún til að gera yogaæfingarn- ar sínar og slaka á, svo htín yrði vel upp- lögð um kvöldið og við Richard fengum okkur kaffibolla saman. — Ann, sagði hann og tóntegundin varð til þess að ég sperrti eyrun. — Ann, I dag tók ég mikilvæga ákvörðun. — Ó? sagði ég bara. — Ég hringdi til skrifstofunnar i morg- un, áður en ég kom og sagði þeim, að ég væri hættur hjá þeim. — Hættur? sagði ég eins kurteislega og ég gat. — Já, ég hef ekki farið út með öðrum en frænku þinni I langan tíma núna. — Ég skil það, sagði ég og grunaði hvað kæmi á eftir. — Ég veit ekki, hvort það hefur borið allt of mikið á þvi, en eftir þvi sem ég hef kynnst Madeleine, þykir mér vænna og vænna um hana. Mér þykir mjög vænt um hana. — Það skil ég vel, sagði ég. — Htín er ein bezta manneskja, sem ég þekki. — Já og eftir helgarnar hérna skilst mér, af hverju ég hef misst I lifinu. Það finnst bara á heimili sem maður deilir með góðri og elskulegri konu. Akkeri I til- verunni, ef þú skilur hvað ég á við, Ann? Ég sagðist skilja það. — Þtí veist ekki hvað það getur verið erfittað þurfa alltaf að vera I formi, fylgj- ast með öllu og vera alltaf að fara út.... — Hvað er þaö, sem þú ætlar að segja mér, Richard? spurði ég vingjarnlega. — Heldurðu að Madeleine liki nógu vel við mig, til að...til aö....? — Ég held, aö henni liki mjög vel við þig, svaraöi ég. — Það er kannski mikilmennska, en ég held það lika, sagði hann. — Skilurðu, ég ætla aö segja henni, að ég ætli að hætta hjá miöluninni. Ég ætla að segja henni það I kvöld. Og ég vona innilega.... Hann brosti næstum feimnislega og gat ekki lokið setningunni. En ég vissi hvað hann átti við og var næstum viss um aö ósk hans rættist. Ég sá það allt fyrir mér. Hann héldi i hönd Madeleine og horfði djúpt I augu henni og segði aö hann vildi ekki fara út með neinni annarri konu og auðvitað mundi htín skilja það. Þá bæði hún hann auðvitað aö btía hjá sér þaö sem eftir væri ævinnar. Ég þrýsti hönd hans uppörvandi. — Það 23

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.