Heimilistíminn - 03.04.1975, Qupperneq 24
gengur áreiðanlega ágætlega! sagði ég
hressilega.
Þegar Madeleine frænka kom niður,
klædd glæsilegum kvöldkjól og glitrandi
af skartgripum, leit ég á þau'fil skiptis og
var sannfærð um að allt færi eins og Rich-
ard vonaði.
Ég var heima morguninn eftir og bjóst
við að Madeleine frænka hringdi og það
gerði hún um tiuleytið.
— Ég þarf að segja þér dálitið, Ann,
sagði hún.
— 0? sagði ég og fékk á tilfinninguna,
að ég hefði upplifað þetta áður.
— Það er um Richard.
— Já?
— Hugsaðu þér! t gærkvöldi sagðist
hann vera að hætta hjá miðluninni!
— Hann er kannski leiður á þvi?
— Já,illilega. Ég held að hann geri rétt I
að hætta. Ég hef lengi haft á tilfinning-
unni, að hann vinni ekki starfið af lifi og
24
sál eins og áöur. Undanfarið hef ég þurft
að ákveSa hvert við eigum að fara á
kvöldin.
— Hvað segirðu? var allt sem ég gat
sagt. Nú var ég farin að búast við að þetta
samtal yrði öðruvisi en ég hafði ætlað.
— Já, það er leitt að sjá fólk missa lffs-
gleðina svona ungt, en við þvi er ekkert að
gera. Ég mun sakna hans.
— Sakna hans? En góða frænka, hvað
ertu að tala um?
— Ég hitti hann ekki oftar, þegar hann
er hættur hjá miðluninni, það segir sig
sjálft. Að visu get ég boðið honum til
kvöldverðar öðru hverju, en það verður
ekki það sama.
— Enhvaðsagðirðuþá viðhann? spurði
ég hissa og hugsaði til þess hvað ég hafði
verið viss um að allt færi á bezta veg.
— Hvað átti ég að segja? Ég sagöi auð-
vitað, að mér þætti leitt, að við hittumst
ekki aftur og að ég óskaði honum alls góðs
f framtfðinni. Hann var ósköp ágætur og
ég var að byrja að vera hrifin af honum og
varð auðvitað fyrir svolitlum vonbrigð-
um. En ég hringdi i miðlunina i morgun
og þar voru allir ósköp skilningsrikir. Ég
sagði, að þau skyldu reyna að finna handa
mér annan, og hafa hann svolitið yngri,
þvi ég kærði mig ekki um að slita þeim út
á nokkrum mánuðum...
Madeleine frænka hló glaðlega f sim-
ann. — Jæja, nú verð ég að hætta þessu,
vina mfn, ég er að fara f gufubað. Þarf að
ná af mér einu eða tveimur kilóum. Nýja
buxnadragtin mfn er aðeins of þröng.
Hafðu það gott!
— Sömuleiðis, gat ég loks stunið upp, en
húnheyrði ekki til min, var búin að leggja
á.
Þetta var nú það, en það versta var, að
éghafði komið þessu öllu af stað. óskandi
að ég hefði vitað þá, hvernig það endaði.