Heimilistíminn - 03.05.1979, Side 3

Heimilistíminn - 03.05.1979, Side 3
Alvitur. svaiarhix'tuin Kæri Alvitur minn, Mér stendur á sama, hvort þú ert kvenkyns eöa karlkyns. Mig langar aöeins til þess aö fá svar viö spurning- um minum, ef þú vilt svara þeim. Mig langar til aö vita hver er happa- litur, steinn og viöeigandi merki hjá þeim sem fæddir eru 10. nóvember og lfka hvort meyjan passar viö 10. nóv., en bogamaöur? Ég veit nú alveg hvaö ég er gömul, svo ekki þarf ég aö spyrja þig aö þvi, en er nokkuö hægt aölesa úr skriftinni hjá mér? Ég vona aö minnsta kosti, aö þú getir lesiö hana. Þú virtist alveg geta þaö seinast, þegar ég sendi þeí bréf. Þá svaraöir þú mér vel og ég þakka þér fyrir þaö, vegna þess aö ég gat notfært mér upplýsingarnar, sem þú gafst mér. Svo er þaö eitt enn Er ég ekki of þung, þarsem éger 154 cm á hæö og 46 og hálft kg á þyngd? Ég vona aö Heimils Timinn veröi langlíft blaö, a.m.k. þinn dálkur, og einnig vonast ég eftir svari frá þef. Meö kærri kveöjii DEV p.s Seinast skrifaöi ég fyrir 2 og háflu ári eöa um þaö bil, og þá undir dul- nefninu tónlistarunnandi. Jæja DEV. Gott er aö heyra aö Alvitur gamli skyldi geta oröiö þér aö liöi, þarna um áriö. Annars eíast hann ekkert um ágæti sitt né svara sinna, og þaö hljóta allir aö geta notazt viö ráöleggingar hans. Happalitur áöurnefndrar persónu er dökkrautt, og ætti hún aö réyna aö nota þann lit sem allra mest. Topaz er happasteinninn og miövikudagur happadagurinn. Bezti mánuöurinn er septembér. Meyjar ogbogamenn hæfa ekki þessari persónu, heldur krabbi, eöa þá sporödrekarnir sjálfir, en þaö er merici þeirra, sem fæddir eru 10. nóvember. Ég gat lesiö skriftina og þaö mæta vel.^en litiö las ég út úr henni. Ég held þú þurfir ekki aö fara i strangan megrunarkúr til þess aö losna viö þessi 46 kiló þin. Þér er óhætt aö halda í þau flest ef ekki öll, þótt þú sért ekki nema 154 cm. Og aö lokum þetta: Þér er óhætt aö trúa þvi, aö Heimilis Tlminn og Alvit- ur eru ekki i þann veginn aö hverfa af sjónarsviöinu, Alvitur gæti ekki hugs- aö sér aö bregöast þannig öllum þeim, sem stööugt senda honum bréf og óska svara. Halló Alvitur! Mig langar til þess aö fá svör viö nokkrum spurningum hjá þér. 1. Hvaö heldur þú, aö ég megi vera þung, ef ég er 164.5 cm á hæö? 2. Hvaö er bezta ráöiö viö feitri húö? 3. Er hættulegt aö ganga I þröngum gallabuxum? Jæja, þá er þaö ekki fleira aö sinni. Ekki birta nafniö mitt, Bæ, bæ, 1361—6744. Ekki þarftu aö óttast aö ég birti nafniö þitt. Þaö er óskráö lög, aö birta ekki nöfn þeirra, sem óska þess aö þeim sé haldiö leyndum. 1. Þérættiaö nægjaaö vera þetta frá 55 I 57 kíló, nema þú sért eitthvaö óvenjulega stórbeinótt. 2. Ekki er gott aö segja, hvert er bezta ráöiö viö feitri húö. 1 fyrsta lagi gæti veriö gott aö huga aö mataræöi slnu. Hvers konar mat boröar þú? tJöar þú kannski I þig súkkulaöi og sætindum og feitum mat? Ef svo er, skaltu hætta þvl strax. Svoþarfaðhalda húöinni hreinni. Gott er aö þvo sér upp úr tjöru- eöa brenni- steinssápu, en slíkt er sagt draga úr fitunni. Ýmisleg nýrriráö eru eflaust tilllka, ogþá bezt aö leita upplýsinga I snyrtivöruverzlunummeöa apótekum, og vita hvaö er þar á boðstólum. Sumir segja lika aö þaögeti veriö gott aönúa andlitiö úr sitrónusafa á hver jum degi. Það á aö þurrka húöina. 3. Rétter þaö, þaö er mjög óhollt aö ganga I þröngum gallabuxum, sér - staklega fyrir börn og unglinga, sem ekki hafa tekiö út allan sinn vöxt. Stif- ar ogþröngar gallabuxur reyrasaman grindina og sumir halda þvl fram, aö mjög hafi aukizt tiðni keisaraskurða, slöan ungar stúlkur fóru aö ganga I þröngu gallabuxunum. Grindin er þá svo þröng aö þær geta ekki fætt af sér börn. "\ Meðal efnis í þessu blaði: Hinir einusönnu Síams-tvíburar......bls. 4 Börnin fá ökuskírteini...............bls. 6 Gerir grín að Þjóðverjum.............bls. 12 Hjartafriöur eöa mölblóm ............bls. 15 Tveir prjónaðir púðar ...............bls. 16 Minnsta herbergið mátti ekki nef na bls. 18 bls. 19 bls. 20 bls. 26 bls. 36 3

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.