Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 3
ALvitur. ,
svaerbrélum
Kæri Alvitur,
Það hvlla miklar áhyggjur á mér
núna, Ég hef aö vi'su reynt aö ráða
bóta á vandamálinu sjálf, en ekki tek-
izt.
Þannig er mál meö vexti, að ég er
voða hrifin af strák, en hann ekki af
mér. Ég hringi i hann svona 5 sinnum
á dag, en hann vill ekki tala við mig.
Hann bara skellir á eða er upptekinn.
Svo er mamma hans farin að svara I
simann, og segir mér , að hætta að
hringja, en ég bara get það ekki.
Ég vaki allan sólarhringinn ót af
þessu og er meö mikla bauga og
mamma heldur að ég sé með ein-
hverja eilifðarflensu, sem ég er að
vfsu með.
Hvað á ég aögera? Fara ót að skjóta
mig? Hvar fæst byssa? En ég vil helzt
ekki skjóta mig! Geturðu ekki Alvitur
góður ráöið fram ór þessu fyrir mig.
Með von um að ruslafatan sé ekki
svöng, þakka ég fyrir birtinguna, fyr-
irfram.
Jóga
Þetta er svo sannarlega mikil
flensa, sem þú þjáist af Jóga sæl. Ég
held að það bezta, sem þú geröir, væri
að fara út og fá þér heilsubótargöngu,
hvort sem er i sólskini eöa rigningu.
Kannski væri betra að hafa það rign-
ingu, þar sem vel gæti veriö, að þessi
vitleysa þvægist þá af þér um leið og
þú vöknaðir.
HefúrþúhugsaðUt I hvað þaðkostar
mikla peninga að hringja fimm sinn-
um á dag i' einhverja stráktltlu? Ekki
innan við hundrað krónur, þar sem
hvert símtal kostar nd um 17 kr. fyrir
utansöluskatt. Aumingja mamma þin,
að þurfa að standa straum af þessum
kostnaöi. Ogsvo allur tlminn, sem fer I
að svara þér á hinum enda linunnar.
Égheld ég myndi senda á þig lögregl-
una, ef ég væri mamma stráksins.
Svona vitleysa veröur að taka enda
og það strax. Mundu mig um það aö
finna nU eitthvert verðugra áhugamál
til þess að sóa tima þinum i framvegis.
Háttvirti Alvitur!
Hvar getur maður lært þau stjörnu-
visindi, sem notuð eru til þess aö spá
fyrir fólki?
Hvernig fer maður aö þvi að verða
Alvitur?
Hver er óskalitur krabbans?
Meðfyrirfram þökk,
Krabbi.
Stjörnuvi'sindi lærir maður við stöku
erlenda háskóla, en minniháttarvis-
indi gætir þU eflaust tileinkað þér meö
þvi aö kaupa bækur um þessi efni. Þær
fást án efa i flestum þeim bókaverzl-
unum I Reykjavik, sem eitthvert úrval
hafa af erlendum bókum. Hringdu
bara eða skrifaðu og spyrztu fyrir um
þetta þar.
Það er ekki öllum gefið aö verða Al-
vitrir, og aðeins á fárra færi. Það er
ekki hægt aö verða það, það er ekki
áunnið heldur aö mestu meðfæddur
hæfileiki, sem aðeins örfáir menn i
heiminum bUa yfir!!!
Krabbalitirnir eru grænn og grár.
Hæ Alvitur,
Ég á við vandamál að striða eins og
flestir aörir, sem skrifaþér.
Mitt vandamáler það, aö ég er ógur-
lega loðin á fótleggjunum, eða yfirleitt
á öllum kroppnum. Þetta er ferlega
leiðinlegt, ég er nefnilega svo mikiö
fyrirað fara I sund og liggja I sólbaði,
og þá ber svo mikið á þessu.
Veiztu um eitthvert krem, eöa
eitthvaö annað sem nota má við
þessu?
Loöinkroppur.
Nú lízt mér ekki á blikuna ÞU verður
að bregða þér i apótek eða i snyrti-
vöruverzlun til þess að spyrjast fyrir
um krem sem nota mætti til þess að
eyða hárum. Þaö er ómögulegt fyrir
Alvitur að ráðleggja eitthvert eitt
krem fr emur en annaö. Það yrði litið á
slikt sem auglýsingu.
En svo er það annað. Ef þú liggur
mikiðútilsól, oggengur kannski mikið
berfætt Uti á sumrin máttu búast við
þvi að hárvöxturinn aukist á fótleggj-
unum. Þtta er fullkomlega eðlilegt. Ef
svo hárvöxturinn er óeðlilega mikill
um allan llkama þinn, þá held ég þU
ættir nú að leita læknis, þar sem
eitthvað getur verið við hormónastarf-
semina hjá þér að athuga. Samt held
ég nú varla, að þetta geti veriö svo
alvarlegt, eða hvað?
Meðal efnis í þessu blaði:
Carterbræðurnir lita vel út........ bls 4
Dæmdur í þrælkunarvinnu í Sovét.... bls. 6
Vorharðindi......................... bls. 8
Rod Stewart......................... bls. 11
Pylsur, kjúklingar og fleira og
hitaeiningar........................ bls. 12
Tjörn í garðinum og blóm í kring... bls. 13
Ku Klux Klan........................ bls. 14
Næturdrottningin..............
Nægtahornið útsaumað..........
Bananan með brauði, isog í kremi....
Ostur — einn/ tveir þrir......
Hiroshima—Friðarborgin........
Sögðu fyrir um flugslysið.....
Þú getur öðlazt viljastyrk....
Tanoram-púsluspil.............
■■ i ————✓
bls. 15
bls. 16
bls. 18
bls. 19
bls. 20
bls. 26
bls. 27
bls. 36
3