Heimilistíminn - 12.07.1979, Síða 5

Heimilistíminn - 12.07.1979, Síða 5
Billy hættur að drekka og kominn með yfirvararskegg klukkan fjögureðanær hálf fimm. Þá fer hann i æfingabúninginn sinn Qg þau hjón bregða sér saman Ut strax og hann er til- biiinn. — Þau skokka svo saman dálitla stund, og borða svo það sem þau kalla Suður- rfkja-kvöldverð — venjulega um kl. 6:45. Forsetinn og fjölskyida hans eru hrifnust af alls konar grænmeti og nýjum ávöxtum en fá sér litið kjöt. Þau borða þó bæði fisk og fugla þegar matreiðslumaðurinn ákveður, að slikt skuli vera á borðum. Aður en forsetinn fer Ut að hlaupa gerir hann léttaren góðar likamsæfingar i 15 minútur. Hann er mjög áhugasamur um tennis, eftir þvi sem Lukashlæknir segir: — Þegar hannkom iHvita húsiðvar hann góður tennisleikari, en honum fer stöðugt fram. FrU Carter gat alls ekki leikiö tennis, en forsetinn hefur kennthenni, og nU er hún að verða nokkuð góð. Eftir kvöldmat fer fjölskyldan oft i keiluspil eða þá hUn fær sér sundsprett. Nokkur kvöld I viku lætur hún sér þó nægja að láta fara vel um sig fyrir framan sjónvarpið eða við að horfa á einhverja skemmtilega kvikmynd. Lukash læknir segir að forsetinn megi þakka góða heilsu þv! að honum sé ljóst hvað heilbrigð sál i heilbrigðum likama skiptir miklu máli. — Hann lætur sér nægja að skilja vandamálin eftir á skrif- stofunni og fara heim á kvöldin og njóta samverunnar við fjölskylduna. Þá hefur Lukash læknir einnig lýst þvi hve þýðingarmikið það er, að hægt hefur verið að draga Ur hjartslætti forsetans, lækka hann úr 60 í 40 slög. Með þessu þarf hjartað ekki að erfiða eins mikið þegar það (Jælir blóðinu um likamann. — Forsetinn er jafnnákvæmur varöandi heilsufaF'sitt eins og allt annað og hann ber ekki meðsér, að hann þjáist af nokkr- um þeim sjúkdómi sem algengur er meðal manna á hans aldri. Sálfræðingar, sem önnuðust Bill Carter, bróður Banda- rikjaforseta, þegar hann var lagður inn á drykkjumanna- hæli fyrir nokkru, skipuðu honum að reyna að setja sig þar i spor bróður sins. 1 átta vikur var hann á hælinu, og var sagt, að reyna að imynda sér, hvaða áhrif drykkju- skapurinn og hræðilega fram- koman gæti haft, ef hann væri forseti. Billy Carter var ! átta vikur á SjUkra- húsisjóhersinsá Long Beach iKaliforntu. Þegar hann kom þaðan út var hann hress og skireygður liklega i' fyrsta sinn i þau tnttugu ár, sem hann hefur drukkið I óhófi. Hann hafði létzt um 11 pund og var á alian hátt mun unglegri en áður en hann er aðeins 41 árs gamall þótt enginn geti trúað þvi. Hann fór sjálfviljugur á sjUkra- hUsiðog þar hætti hann meira að segja að revkja. Það eina sem ekki hafði breytzt við- dvölina á sjúkrahUsinu, var, að hann er jafnhreinskilinn og gamansamur og hann hefur verið. Hann sagðist vera endur- reistur drykkjusjUklingur. — Það erfiðasta við þetta var, þegar ég ákvað að ég skyldi hætta að drekka. — Guð einn veit, að þar með hafð' ég snUið baki við einhverjum minum bezta vini — flösk- unni. Ég er læknaður svo lengi sem ég fæ mér ekki sopa og ég hef heitið þvi að fá mér ekki i glas framar. Vinir hans eru vissir um, að hann muni reyna að standa við þetta heit sitt. — Hann hefur mikið viljaþrek,segir einn af fyrrverandi drykkjufélögum hans frá Plains í Georgiu. — Honum var orðið ljóst, að hann var farinn aðverða bróður slnum til skamm- ar og reyndar allri fjölskyldunni. Þetta var þeim mun erfiðara fyrir alla vegna þess að fólkinu þykir öllu mjög vænt um hann. Billy sem á sex börn fór á sjúkrahUsið þar sem eru 189 s jUkrarúm — þar af milli 50 til 80 fyrir drykkjusjúklinga. — Fyrstu dagarnir voru erfiðastir, segir hann. — Ég hugsaði ekki um annað en að komast heim aftur. Erfiðast var að ákveða, að hætta alveg að drekka. Mikil áherzla er lögð á það á þessu sjúkrahUsi að fjölskyldan taki þátt I með- ferð sjúklingsins. Þess vegna ræddi Cart- er forseti nokkrum sinnum viö Billy og vinir þeirra segja, að hann hafi reynt að hvetja hann ogstyrkja. Sybil kona Billys, yar i fjórar vikur á sjúkrahUsinu og sagt er að hUn hafi tekið virkan þátt i fjöl- skyldumeðferðinni þar. Mikil áherzla er lögð á að bæta likam- lega liðan drykkjusjUklinganna. Þeir þurfa að hlaupa eða ganga að minnsta kosti tvo kilómetra á degi hverjum. Billy Carter segist hafa haft mikinn áhuga á þessum lið lækningarinnar. Undir lok meðferðarinnar, sem venju- lega tekur sex til átta vikur eru sjUkling- amir hvattir til þess að vera mikið Uti á meðal fólks og þar sem mikiðer drukkið. — Ég fór i veizlu, segir Billy og komst að raun um, að það var næstum eins skemmtilegt að fylgjast með hinum fylli- byttunum eins og það hafði verið áður að vera fullur sjálfur. Þfb Billy Cartergengur ákveðnum skrefum út af sjúkrahúsinu i Kalifornlu eftir að hafa dvalizt þar i átta vikur I afvötnun og endurhæfingu. Hann er viss um, að hann hafi nú ráðið niðurlögum á drykkjusýk- mni sem hefur hrjáð hann undanfarin ár. Nú er hann grennri og hressari en hann hefur lengi verið og búinn að safna yfir- vararskeggi. 5

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.