Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 13

Heimilistíminn - 12.07.1979, Side 13
og ætti að hugsa vel, áður en það fer að úöa i sig aukabitunum. Hálfur grillaður kjúklingur meðeinum skammti af frönsk- um kartöflum og flaska af kóki gefur i aðra hönd 765 hitaeiningar. Þá er sá, sem þetta hefur borðaö langt kominn með dag- skammtinn sinn. Ef þú hefðir gaman af að borða brauö gætir þú fengið þér 12 þurrar brauðsneiðar með sama hitaeiningainni- haldi. Fáir myndu þó boröa svo margar brauðsneiðar i einu, en hver slær hendinni á móti kjúkling og frönskum!!! Til samanburðar má svo geta þess, að miðlungs málsverður með kartöflum, grænmeti, kjöti eöa fiski er venjulega um 900 hitaeiningar, og venjulegur, fullkom- inn morgunverður um 300 hitaeiningar. Fljótt eykst þyngdin Ef þú ert tiður gestur á veitingastöðum og grillstöðum, eða þar sem seldar eru pylsur og hamborgarar máttu búast við aö þyngjast áður en varir. 500 umfram- hitaeiningar á dag gefa af sér hálft kiló á viku i þyngdaraukningu. Þess vegna ætt- um viö öll að gæta okkar, þegar freisting- arnar verða á vegi okkar, og hugleiða það af alvöru, hvort við höfum „ráð á” likam- lega að innbyröa allan þennan aukamat. Ef við stæöumst freistingarnar i nokkrar vikur myndu kilóin hverfa eins og dögg fyrir sólu, svo fremi að við færum ekki að heimsækja bakariin eða gotterisbúðirnar i staðinn. Munið svo, að ef þið borðið ekki hollan og góðan mat, fer ykkur fljótlega að skorta öll nauðsynleg bætiefni, og það er ekki betra en hvað annað. Einhvern tima, þegar þú ert i ró og næði, ættir þú að líta á eftirfarandi töflu um hitaeiningar: Hitaeiningar ölflaska ca 305 Pylsa, 1 stk. (CA 50g) ca 140 Kartafla, 1 stk. (25 gr) ca 85 Hamborgari, 1 stk. ca 150 Franskar kartöflur, 100 g ca 255 Kartöfluflögur, 100 g 555 Kartöflumús, 100 g ca 95 Laukur, 100 g ca 110 Tómatsósa, 100 g ca 110 Sinnep, 100 g ca 85 Rækjusalat, 100 g ca 840 Pikklissósa, 100 g ca 70. Pizza, meö kjöti 100 g ca 70' Grillaður kjúklingur, 100 g ca 170 Grillaður kjúkiingur, ca 600 g ca 1020 Ef við svo berum saman nokkra holla ávexti: Banani, 100 g 105 Epli, 100 g 51 Vinber, 100 g 71 Perur, 100 g 52 Appelsinur, 100 g 50 Klementínur/mandarínur 49 Hver veit nema þið hugleiöiö næst, þeg- ar þið kaupið ykkur poka af kartöfluflög- um eða þá kókflösku, hvort ekki væri betra að sleppa þessu og fá sér þess I stað eitthvaö sem bæði er hollara og inniheldur færri hitaeiningar. Þfb Tjörn í garðinn og blóm í Fleiri og fleiri virðast leggja fyrir sig garðyrkju alls konar, ef dæma má af þvi, hvað fólk fer fljótt að laga lóðir i kringum ný- byggð hús sin, bæði til sjáv- ar og sveita. Hér áður fyrr liðu oft ár, ef ekki áratugir áður en menn fóru að huga að lóðinni i kringum húsið. Margir hafa löngun til þess að gera eitthvað óvenjulegt eða frábrugðið á lóðinni sinni, en venjulega er ekki um margt að velja, þar sem lóðirnar eru yfirleitt heldur litlar.Þaö verður þó æ tiðara, að fólk fái sér litlar tjarnir eða bolla úr plasti og setji niður einhvers staðar á lóðinni. Þessar plasttjarnir eða plastlaugar hafa fengizt hér i' nokkrum stærðum, og eru meira að segja framleiddar hérlendis. Þótt teikningin, sem hér fylgir með, sé ekki af einni slfkri laug, gefur hún vel til kynna, að mikið lif og fjör getur verið i kringum svonatjörn. Liklegagetum viðþóekki reiknað með að hafa I henni fiska, hvorki gullfiska eins og tiðkast viöaerlendis né nokkra aðra fiska. Þaö er tæpast von til þess að við eigum eftir að sjá hér i pollum úti i göröum gullfiska allt að 6 kg aö þyngd, eins og viða má til dæmis sjá austur i' Klna. Slika fiska sá ég þar i tjörnum, og komu mennoggáfu þeim brauð, eins og við gefum öndunum á tjörninni i Reykjavik um helgar. En hér er veðráttan heldur kaldari, og ekki von til þess að gullfiskarnir lifðu lengi, ekki einu sinni I polli úti i garði. Umhverfi tjarnanna getur verið mjög skemmtilegt. Þar má hlaða upp steinhæðir, eða búa til hóla úr mold- inni, sem mokað hefur verið upp und- an plastlauginni sjáifri, áður en hún hefur verið sett niður i jörðina. Þegar búiðer að koma tjörninni vel fyrir ætt- uð þið að bregða ykkur Ut fyrir bæinn og leita þar að náttUrulegum gróðri, sem lifir viö vötn eða tjarnir, og færa hann heim með ykkur og setja niður i kringum heimatjörnina ykkar. Sumir vilja leyfa börnunum að njota tjarnarinnar, og þá þýðir lfklega ekki að vera með mikinn gróður að m innsta kosti ekki allt i kring um hana, þar sem ekki er hægt annað en að reikna með að börnin troði hann niöur að ein- hverju eða öliu leyti, þegar þau eru að fara niöur i' eða upp Ur tjörninni. Litið nú út i garöinn, og gáiö að þvi, hvort ekki er einhvers staðar rúm fyr- ir tjörn, steinbeð eða hól við hana og hefjizt svo handa um að bylta jörðinni og færa til plöntur i samræmi við þetta.og áður en varir veröið þiö bU- in að eignast ykkar eigin (jörn. fb. 13

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.