Heimilistíminn - 01.11.1979, Qupperneq 3
ALvitur. ,,
svaiarbrélum
Kæri Alvitur!
Getur verið, að þér hafi orðið eitt-
hvað á I messunni, þegar þú sagðir
okkur nýlega að áskriftarverð blað-
anna væri aðeins 3500 krónur á
mánuði, og í lausasölu væru þau seld á
180 krónur?
Mig langar til þess að spyrja þig um
unga naggrfsa. Fæðast þeir hárlausir
og biindir, eða eru þeir loðnir allt frá
byrjun?
Svo langar mig að lokum til þess aö
spyrja þig hvaö það táknar að dreyma
slys? Er slfkur draumur til ills eða
góðs?
Óvitur.
Kæri Óvitur!
Mikiö rétt, Alvitur fór illa út úr þvi
að ræöa áskriftarverð dagblaðanna I
dálki slnum nú fyrir skömmu.
Viðkomandi bréfi, sem gaf tilefni til
þessa svars, hafði verið svarað fyrir
alllöngu, og þaö fariö sína leið i
gegnum handritalestur og setningu i
prentsmiðju. Þegar það svo birtist
loks i Alviturs-dálkinum höfðu blöðin
veriö hækkuð i 4000 krónur á mánuði,
og lausasöluverö þeirra er nú 200
krónur. Þaö sem annars stóö i þessu
svari er rétt, og breytir verðið ekki
þvi, aö alltaf hlýtur að vera betra að
vera áskrifandi að Tlmanum og fá þar
með Heimilis-Tlmann örugglega á
hverjum fimmtudegi, heldur en eiga á
hættu að gleyma að kaupa hann einn
dag, og svo gæti hann verið búinn þann
næsta. Vegna glöggskyggni sinnar er
óvitri hér meö boðið afleysingastarf
næst þegar Alvitur þarf að fá sér fri.
Naggrisungarnir fæðast alhærðir og
hinir fallegustu. Þeir eru heldur ekki
blindir þegar þeirfæðast eins og ungar
margra annarra smádýra. Fáum
klukkutimum eftir að þeir koma i
heiminn fara þeir að hlaupa um og
meira aö segja að borða.
Ef þig dreymir slys er það i raun
aðvörun um, að þú þurfir að fara
heldur varlegar I viðskiptamálum en
þú hefur gert til þessa. Ef slysið á að
hafa gerzt I bæ eöa borg fjarri heima-
byggö þinni, er það ef til vill lika vis-
bending um, aö ástamálin verði eitt-
hvað erfið viðureignar stuttu eftir að
þig dreymir þennan draum.
Og hvernig væri svo, að þið sem eruö
i vanda, settust niður og skrifuðuö Al-
vitri. Þið vitið, að hann leysir úr hvers
manns vandræðum, á fljótan og góðan
hátt.
Kæri Alvitur,
Geturöu sagt mér, hvort óhætt er að
fara i megrun á meðan kona gengur
með barn? Getur það ekki vera barn-
inu hættulegt á einhvern hátt? Svo
langar mig lika til þess að spyrja þig,
hvort konur geti ekki fitnaö af pillunni,
og hvað er þá til ráða?
Ein búttuð
Læknisfræöilegar upplýsingar eru
ekki sterkasta hlið Alviturs, en þó er
óhætt að segja að ekki er taliö heppi-
legt fyrir ófrfskar konur að fara i
strangan megrunarkúr. Að sjálfsögðu
er allt óþarfa át óæskilegt, vegna þess
að þegar barniö er fætt situr móðirin
uppi með alla umframvigtina. Hins
vegar eiga verðandi mæöur aö boöa
hollan mat, mjólk, eða osta, kjöt fisk,
ávexti, grænmeti og gróft brauð.
Sleppið ölium sætindum og feitmeti, og
þá ættuð þið ekki að þurfa aö fitna
meira en góðu hófi gegnir, og þá veröið
þið grannar og spengilegar, þegar upp
er staðið.
Sumar konur fitna af pillunni, eöa
kannski ætti frekar að segja að vatn
setjist að i llkama þeirra, óþarfa vatn.
Til þess aö bæta úr sliku getur nægt aö
skipta um pillutegund. Annars ráðlegg
ég öllum, sem ekki eru alveg vissir um
hluti sem þessa, að leita til heimilis-
lækna sinna. Til þess eru þeir, og til
þess fá þeir borgaö úr sjúkrasamlagi,
og fyrir hverja heimsókn sjúklingsins.
Leyfið þeim að vinna fyrir laununum
sinum.
uT
Meðal efnis í þessu blaði:
Ný Shirley Temple fær dollar á viku
Hvaö er heitt í 20 stiga hita?.....
Begónfur með barritón og f jólur
bls. 4 Sveippilsá litla stelpu bls. 12
bls. 6 Náttkjóll og náttsloppur bls. 13
bls. 8 Rauðsprettur í karrírjóma bls. 14
bls. 10 Heimsins auðveldasta rúlluterta bls. 14
Sendi f löskuskeyti og eignaðist konu .. bls. 16
bls. 11 Fæðing Bitlanna bls. 21
bls. 12 Kvöldbæn— Ijóð bls. 28
3