Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 01.11.1979, Qupperneq 8

Heimilistíminn - 01.11.1979, Qupperneq 8
Nýjasta stjarna Hollywood fær ekki nema einn dollar i Iaun á viku. Henni hefur einnig verið fyrirskipað að búa um rúmið sitt, og fata- skápurinn hennar er svo sannarlega ekki að springa utan af nýtizkulegum fötum, eins og yfirleitt gerist um fataskápa stórstjarnanna. Hún kvartar þó ekki — vegna þess að hún er ekki nema sex ára gömul Sara litla Stimson var valin úr hópi fimm þúsund litilla stúlkna viðs vegar að úr Bandarikjunum til þess að fara með alaðhlutverkið I endurtöku hinnar merki- legu myndar frá 1934, Little Miss Marker, sem var upphafið aö frægöarferli Shirley Temple, sem upp frá þeim degi var dáðastabarnastjarna kvikmyndanna fyrr og siðar. Vel getur verið, aö þessi nýja mynd eigi eftir aö færa Söru sams konar frægð. Stjörnurnar Walter Matthau— Julie Andrews, Tony Curtis og Bob Newhart leika með Söru I kvikmyndinni. Sara er frá smáþorpinu Helotes i Texas, en ibúa- tala þorpsins, ef þorp skyldi kalla er að- eins 25 manns. Hún haföi aldrei ieikið áöur, þegar hún var valin til þess að leika 1 þessari kvikmynd. Eftir fyrstu daga kvikmyndatökunnar sagði móðir hennar, frú Dana Floyd: — Mér finnst henni ganga bara vel. Hún er ekki farin að segja neitt I myndinni ennþá, en þegar hún þurfti að gera það I prófun- inni, tókst það ágætlega. Ekki hefur verið látiö uppskátt, hversu mikil laun Söru veröa fyrir leikinn, en móðir hennar gætir þess vandlega að henni sé ekki spillt með eftirlæti. — Sara hefur ekkert vit á peningum, segir hún. — Hún fær einn dollar i vasa- peninga á viku, ef hún stendur sig vel í skólanum. Hvort sem Sara á eftir að verða fræg fyrir leik sinn i þessari mynd eöa ekki, þá er enn sem komið er enginn greinarmun- ur gerður á henni og átta ára bróður hennar Bobby, né heldur þirggja ára bróðurnum Breland. Hún verður aö búa sjálf um rúmið sitt, og vera komin I rúmið klukkan átta á hverju kvöldi. En það er sitthvaö gott sem fylgir þvf að vera frægur... eins og t.d. það að eiga Walter Matthau að vini. — Hann er sllk ágætismanneskja, og sérstaklega er hann góður við börn. Hann hefur náð góöum tökum á Söru,og þeim kemur mjög vel saman, segir frú Floyd, sem er skilinn við mann sinn, föður Söru. — Við skemmtum okkur mjög vel I sambandi viö kvikmyndatökuna. Þetta er hreinasta ævintýri fyrir hana, enda er hún ekki nema sex ára. Hún hefur svo gaman af að ýta á alla hnappana I lyftunum, þegar hún er að fara i upptökusalinn. Hversu ungar eða gamlar sem stúlkur 8

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.