Heimilistíminn - 01.11.1979, Page 21

Heimilistíminn - 01.11.1979, Page 21
Fæðing Bítlanna ný kvikmynd í uppsiglingu Nú fer aö styttast i aö menn fái aö horfa á sögu Bitlanna á hvita tjaldinu. Veriö er aö ljúka gerö myndar um þá, og lýsir hún lifi þeirra allt frá fátækt til rikidæmis. Kvikmyndin heitir The Birth of The Beatles. Kvikmyndin hefur veriö tekin i Liver- pool og Hamborg, og i vetur veröur hún frumsýnd viöa um heim samtimis. Sjálfir hafa Bltlarnir komið fram i kvikmyndum um sjálfa sig, en þessi mynd veröur sú fyrsta, sem segir söguna um þaö hvernig frægasta „popp-grúppa” heimsins komst upp á stjörnuhimininn hægt og sigandi. Framleiðandi The Birth of The Beatles er Dick Clark, sem er einn þekktasti kvikmyndaframleiöandi fyrir sjónvarp I Bandarikjunum og hefur sérstaklega vakib athygli fyrir popp-þætti þá, sem hann hefur gert fyrir sjónvarp. 1 þáttum sinum i bandarisku sjónvarpi kynnti Clark marga popp- listamenn, og eiga þeir ófáir honum mikið aö þakk. Hann litur sjálfur þannig á, að popp-stjarna, sem aldrei hefur komiö fram i þáttum hans, geti ekki verið þess viröi, aö um hana sé talaö. En þó eru undantekningar frá þessar reglu, þarsem hann fékk aldrei i þætti sina Bitlana né heldur Elvis Presley, og enginn getur neitaö þvi, aö þeir urðu allir miklar stjörnur. Clark hefur nú gert kvikmynd um Elvis, og ber hún aöeins nafn stjörnunnar. Og nú hefur hann sem sagt einnig gert mynd um Bitlana, þótt hvorki þeir né Elvis hafi viljaö ver I þáttum hans i sjónvarpinu. Hér sjáiö þiö Ray Ashcroft (Ringo), John Altman (George), Rod Culbert- son (Paul) og Stephen Mackenna (John). Kvikmyndin um Bitlana hefst áriö 1961, þegar þeir komu fyrst fram i Hamborg. Þar kemur vel i ljós, hvilik áhrif óvenjuleg, fjörleg og skritin framkoma Bitlanna haföi á Þjóðverja. Siðan fjallar myndin um það, hve erf- iðlega Bitlunum gekk i byrjun, en hvernig vinsældir þeirra jukust smátt og smátt. Svo fóru þeir aö syngja og leika inn á plötur og frægöin varð aö veruleika. Myndinni lýkur þegar komið er fram á áriö 1964 og Bitlarnir fóru i fyrsta sinn til Bandarikjanna, þar sem þeim var mjög vel tekið. 1 myndinni fer Stephen Mackenna með hlutverk John Lennons, John Altman er George Harrison, Ray Ashcroft er Ringo Starr og Rod Culbertson leikur Paui McCartney. Leikararnir eru ekkert sérlega likir hinum raunverulegu Bitlum, en þeir hafa hins vegar lagt sig alla fram um að likjast þeim i töktum og hreyfingum. Leikarar þessir eru ekki miklir hljómlistarmenn, svo hljóm- sveitin Rain hefur ver ð fengin til þess að annars tónlistina. Alls veröa flutt 24 lög i myndinni, og liklega verður sett á markaðinn plata með þessum lögum.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.