Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 15.11.1979, Qupperneq 26

Heimilistíminn - 15.11.1979, Qupperneq 26
Bernhard Stokke 35 STROKUDRENGIRNIR Þýðing: SIGURÐUR GUNNARSSON hann meðan Halli sá til, eins og fluga á vegg, með hnappalausan jakkann flaksandi frá sér, likt og vængi. Eftir nokkra stund tókst Villa með lagni að komast inn i vagninn, og varð þá brátt ljóst, að þetta var gripavagn, sem nokkur svin voru i, að þessu sinni. Svo vel vildi til, að svinunum hafði nýlega verið færður matur, og þá, meðal annars, soðnar kartöflur. Þetta notaði Villi sér strax og gat auðveldlega satt sárasta hungrið, með þvi að borða kartöflurnar. Siðan kom hann sér fyrir i vagninum, þar sem litið bar á, lagðist út af, breiddi vel yfir sig striga, sem þarna var, og sofnaði vært. 15. kafli. Gamall kunningi. Halli gekk spölkorn á eftir lestinni. Hann gat ekki að þvi gert, að hann var töluvert smeykur um Villa. Hver veit, nema hann hefði misst takið og dottið niður. Og þá gat illa farið, nema heppnin væri með. En þegar Halli hugsaði málið nánar, sá hann, að i rauninni gat hann ekkert gert annað en vonað hið hezta. Villi hafði lika verið mjög öruggur og beðið hann að hafa engar áhyggjur. Halli beindi þvi huganum brátt að eigin vandamálum. Nú þurfti hann að ráða fram úr þeim, — og var þá efst i huga hans að komast sem fyrst i samband við eitthvert gott fólk. Nú var komið miðnætti og þvi ekki hægt að hafa samband við neina i sveitinni, fyrr en að morgni. Hann gekk upp á veginn og rölti eftir honum i þungum þönkum. Það voru mikil við- brigði fyrir hann að vera einn, — að hafa ekki Villa, simalandi, á eftir sér. Villi var i rauninni bezti strákur, en það var eins og hann gæti alls ekki unað úti i sveit, — eins og hann tapaði þar 26 öllum áttum. Halli vonaði, að hann mundi spjara sig eins vel, eða betur, upp á eigin spýt- ur. Að nokkrum tima liðnum nam Halli staðar við hlið hjá bóndabæ einum. Uppi i hliðinni heyrði hann bjölluhljóm i sumarf jósinu. Hann gekk þangað, opnaði dyrnar og lagðist til hvild- ar, á auðum bási, með kýr i kringum sig. Þarna var hlýtt og notalegt. Og þó að hann væri sársvangur og hvilan hörð, sofnaði hann fljótt. En ekki svaf hann lengi, kýrnar sáu um það, með brölti sinu og bramli. Engu að siður hvild- ist hann töluvert og var mun hressari, þegar hann lagði af stað á ný, eldsnemma um morg- uninn. Ekki leizt Halla þannig á þennan bæ, að hann vildi gera þar vart við sig. Hann hélt þvi hik- laust áfram, þangað til hann kom að næsta býli, litlu en snyrtilegu. Bæjardyrnar voru opn- ar og þegar enginn svaraði, er hann drap á dyrakarminn, gekk hann hljóðlega inn i stofu. Þar var gömul og gæðaleg kona að búa út morgunhressingu. Þau skiptust á kveðjum og Halli sagði til nafns. Gamla konan sem var greind i bezta lagi, gerði sér strax grein fyrir, að hér var efnilegur piltur á ferð, þó að hún hefði aldrei séð hann fyrr. ,,Ungi maðurinn er snemma á ferli”, mælti hún. ,,Já, ég er að leita mér að atvinnu”, sagði Halli. Konan náði i kaffibolla og hellti i, handa þeim báðum. Svo náði hún i ljósmynd, sem var á kommóðunni, þurrkaði af henni rykið með svuntuhorninu og sýndi Halla. ,,Hérna sérðu son minn”, sagði hún. „Hann hét Haraldur, eins og þú. Það eru nú rétt tiu ár siðan hann fór til Ameriku”. Svo sagði hún honum sitt af hverju frá drengnum sinum, og þau töluðu margt saman, eins og þau hefðu

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.