Heimilistíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 4
sæluhafisé&dagsinsljós. Þa& var haustiö
1977.
Samtök þessi eru ekki rekin með það
fyrir augum að græða peninga. Þau til-
heyra ekki neinni sérstakri kirkju deild en
byggja þóstarfsemi sina á boðskap Bibli-
unnar. 1 framhaldi af þvi reynir fólkið að
léttast og tekst það. Fólk ræður sjálft,
hvort það vill gera þetta eitt með sjálfu
sér eða i hópi.
Starfsmenn Ofætanna sigursælu bjóða
fólki ráðleggingar hvort sem er bréflega
eða i simtölum. Sums staðar i Banda-
rikjunum starfa smáhópar sem koma
saman einu sinni i viku til þess að fá gagn-
kvæman stuðning og hafa sameiginlega
bænastund. Neva Coyle segir að um 1600
manns hafi þegar tekið þátt i starfseminni
með góðum árangri og 800 séu nú i með-
ferð.
— Tilgangur okkar, segir hún, — er að
kenna og veita fólki kraft. Við trúum þvi i
raun og veru að ofátið byggist á andlegu
vandamálien ekki likamlegu. Ef þú losn-
ar ekki við þetta andlega vandamál þá fer
fólk bara úr einu æðinu i annað. Fólk
veröur að breytast innan frá. Þú verður
að gera þér ljóst að þú ert þú sjálfur og
hver þú ert og sú þekking, sem þannig
fæst mun hafa i för með sér breytingu.
Ofæturnar sigursælu ætlast til þess að
meðlimir eyði stuttri stund á degi hverj-
um i bæn og innhverfa ihugun. Ár tekur að
fara yfir allt efnið, sem samtökin dreifa,
en um helmingur þeirra, sem reynir
þessa nýstárlegu megrunaraðferð þarf
ekki nema þrjá mánuði til þess að leysa
fituvandamálin. Prógrammið allt, eða
námsefnið, sem fyrir liggur, er i sex hlut-
um. Reiknað er með, að það aukist i átta
hluta áður en lýkur.
Greiða þarf 25 dollara fyrir fyrsta hlut-
ann, og fær fólk þá i hendurnar ýmiskonar
nauðsynleggögn. Fyrir 30 dollara fær fólk
sjö segulbandsspólur að auki, sem hópur
fólks getur notað sameiginlega. Odýrara
er að taka þátt i siðari 5 námshlutunum,
og fer kostnaðurinn nokkuð eftir þvi
hversu margar segulbandsspólur fólkið
kaupir með hverri kenrislueiningu eða
-hluta.
Peningarnir, sem inn koma, eru notaðir
til þess að greiða efniskostnað, og til þess
að greiða laun til frú Coyle og aðstoðar-
fólks hennar. Með henni vinna tveir
Eru þær eins?
menn i fullu starfi og sex, sem vinna þetta
20-25 stundir á viku.
Ofæturnar sigursælu hafa sálfræðing i
framkvæmdastjórn sinni. Gefnar eru
upplýsingar um gott og einfalt mataræði
og siðan er fólki bent á hvað það á að lesa i
Bibliunni til þess að fá andlegan styrk og
kjark til þess að berjast gegn vandanum.
Einnig eru gefnar upplýsingar um heilsu-
far, og hvernig má reikna með að heilsa
manna sé verri eftir þvi sem þeir eru feit-
ari.
Frú Coyle segir, að sterk sektartilfinn-
ingbærist venjulega með þeim, sem feitir
eru, og mun meiri heldur en með grönnu
fólki. Ráðgjafarstarfsemi kemur sér þvi
mjög vel fyrir þetta fólk.
— Allt i lagi, þér mistókst og þú fórst að
borða. Hvaða máli skiptir það? Haltu
áfram þar sem frá var horfið. Þú hefur
tekið upp nýja hætti, sem eiga ekki aðeins
og gilda i viku eða mánuði, heldur allt
lifið. Þetta stendur i bókinni Free to Be
Thin, sem fólkið, sem tekur þátt i þessari
kristilegu megrun, fer eftir. — Drottinn
fylgir þér og hann elskar þig, hvernig sem
allt fer. Hann mun sjá til þess að þú
sökkvir þér ekki aftur niður i hugsanir um
sektog örvæntingu vegna þess að þú borð-
aðir of mikið i þetta skipti.
Coyle segir: — Guð elskar jafnt feita
sem mjóa. Hann elskar aila. Ekki stendur
i Bibliunni, að þaðsé syndsamlegt að vera
feitur, aðeins að græðgi eða ofát sé synd.
Ég persónulega þjáðist vegna þess að ég
var allt of þung. Guð sá það, og hjálpaði
mér, vegna þess að hann elskar mig, ekki
vegna þess að honum standi ekki á sama
hvort ég er feit eða mjó.
Hún segir, að Ofæturnar sigursælu geri
mest fyrir þá, sem eru fullir örvæntingar
og þá, sem vilji hlusta á Guðs orð.
4