NT - 25.05.1984, Side 2
Föstudagur 25. mai 1984 2
Afurðalánin gufuðu upp hjá sumum:
Bankarnir hækka
ekki hlutfallið
■ Útflytjendur sjávarafurða
eru nú mjög uggandi vegna
lækkunar á hlutfalli afurðalána
til þeirra, sem greint var frá í
NT í gær. Athugasemdir vegna
málsins hlaðast upp í sjávarút-
vegsráðuneytinu og hagsmuna-
aðilar hafa óskað fundar um
málið með bæði sjávarútvegs-
ráðherra og viðskiptaráðherra.
„Þessi breyting hafði í för
með sér að súmir verkendur
fengu nákvæmlega ekkert út á
afurðir sínar núna um miðjan
mánuðinn. Það var nefnilega
ekki látið duga að lækka láns-
hlutfallið heldur var lækkunin
afturvirk, sem þýðir að það var
tekið af lánum, sem menn voru
þegar búnir að fá, vegna afurða
sem enn hafa ekki selst,“ sagði
Dagbjartur Einarsson, útgerð-
arntaður og fiskverkandi í
Grindavík, í samtali við NT.
Hann sagði að þessi ráðstöfun
bitnaði misjafnlega á fyrirtækj-
unum. Hún kæmi einna verst
niður á þeim sem sætu uppi með
miklar birgðir, en nú eru sem
kunnugt er miklar birgðir af
karfa í frystihúsum og einnig er
útlit fyrir að rækjan fari að
hlaðast upp vegna aukinna
rækjuveiða. „Pau hanga mörg á
horriminni fiskvinnslufyrirtæk-
in og þetta getur gert útslagið
hjá þeirn verst settu,“ sagði
Dagbjartur.
Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, sagði í gær að
skilningur ríkisstjórnarinnar
hefði alla tíð verið sá að við-
skiptabankarnir hækkuðu sift
lánshlutfall í kjölfar lækkunar á
endurkaupum Seðlabankans.
„Pað var forsenda samráðsins,
sem um þetta var haft í ríkis-
stjórninni," sagði Halldór.
Hann sagði að málið yrði tekið
upp í ríkisstjórninni strax á
mánudag, en þá verða forsætis-
ráðherra og viðskiptaráðherra
komnir heim frá útlöndum.
Gunnar Svanberg, forstöðu-
maður sjávarafurðalánadeildar
Útvegsbankans, sagði að vissu-
lega hefði verið reiknað með að
bankarnir kæmu þarna á móti.
„En meðan bindiskyldan í
Seðlabankanum er ekki lækkuð
hafa bankarnir alls ekki peninga
til að mæta þessari útgjalda-
aukningu. Og á meðan bindi-
skyldan er aukin eða óbreytt
veit ég ekki til að ætlunin sé að
okkar hlutur verði aukinn,"
sagði Gunnar.
Landhelgisgæslan fær þyrlu:
„Gleðitíðindi“
- segir Gunnar Bergsteins-
son, forstjóri gæslunnar
■ „Þetta eru gleðitíð-
indi. En ég get ekki sagt
nákvæmlega til um hvaða
þyrla verður keypt fyrr en
við höfum haft samráðvið
dómsmálaráðherrann. En
það vita allir að við höfum
mestan áhuga á að fá
franska þyrlu af gerðinni
Dolphin,,, sagði Gunnar
Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, í
samtali við NT í gær-
kvöldi.
Á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun var, áð frunt-
kvæði Jóns Helgasonar,
dómsmálaráðherra, af-
greidd heimild til handa
Landhelgisgæslunni til
þyrlukaupa. Gunnar
Bergsteinsson sagði, að ef
Dolphin þyrla yrði keypt
rnætti búast við að hún
kæmi til landsins sex til sjö
mánuðum eftir pöntun.
Þyrlan sem hér um ræðir
kostar með öllu nálægt 70
milljónum króna.
Enn lækka útsölubílar
-en hvenær koma þeir?
■ Nú síðustu vikur hafa 163
kaupendur Fiat Panda bíla, ár-
gerð 1983, sem staðfestu pant-
anir sínar með 30.000 króna
greiðslu í lok apríl, beðið eftir
bílum sínum. Einn viðmælandi
blaðsins sagði að fyrst hefði
bílunum veirð lofað 18. maí en
síðan hefðu veirð seinkanir. En
bið þessa fólks hefur ekki verið
til einskis, umboðið hefur boðið
11.000 króna afslátt á bílunum,
sem í upphafi kostuðu aðeins
155.000 krónur.
Samkvæmt upplýsingum frá
bílasölum í borginni er gang-
verð á Panda-bílum af árgerð
1983 um 200.000 krónur.
Nú er allt útlit fyrir að ekki
takist að afhenda bílana fyrr en
mánaðarmótin júní-júlí. Bíl-
arnir eru í Phyrreus, hafnarbörg
Aþenu, en þar mun flutninga-
skipið Saga lesta í næstu viku.
að sögn Guðmundar Karlsson-
ar, útgerðarmanns, má reikna
með að útskipun verði lokið í
lok næstu viku.
Að sögn Davíðs Guðmunds-
sonar, sölustjóra hjá Fiat, er
seinkun þessi vegna þess að
verksmiðjurnar hafi ekki staðið
við að afhenda bílana í Kaup-
inn lög og 40% skerðingin
lagabókstafur, segir einn
helsti forystumaður lánþega
í prívatsamtali við- dropa-
mann að honum sé svo sem
alveg sama, hann taki hvort
sem er aldrei lán. Já, öðruvísi
mér áður brá, eins og kerl-
ingin sagði!
Undantekningin
sannar regluna
■ Það hefur lengst af verið
hald manna að nokkuð mætti
spara í heimilisinnkaupum,
með því að kaupa meira
magn í einu, þ.e. stærri
pakkningar.
Félagar í Neytendafélagi
Akureyrar hugðust sann-
prófa þessa kenningu um
daginn og snöruðust því inn
í matvöruverslun þar í bæn-
um og keyptu nokkrar vöru-
tegundir í mismunandi pakkn-
ingum.
Þegar farið var að reikna
út sykurverðið, brá mönnum
heldur en ekki í brún því að
sykurinn úr 25 kílóa pokan-
um reyndist kosta um það bil
5 prósentum meira, hvert
kt'ló, heldur en venjulegur
„óhagstæður" sykur í tveggja
kílóa pokum.
Erfið fæðing
■ Menn hafa verið að
mannahöfn fyrir 16. maí, en þá
hafi skip Hafskipa verið að lesta
í Kaupmannahöfn.
Davíð sagði að hringt hefði
verið í allflesta kaupendur og
þeim boðið að ganga frá kaup-
unum en aðeins einn hafi þegið
það. Einnig hafi kaupendum
verið boðinn 11.000 króna af-
sláttur.
En nú, sem sagt, eru bílarnir
að fara að leggja af stað og það
á aðeins krónur 144.000 - til-
búnir á götuna, með ryðvörn og
komnir á númer, að sögn
Davíðs.
velta því fyrir sér undanfar-
ið af hverju lagasafnið kemur
ekki út. Vitað er að nokkuð
er um liðið síðan Friðrik
Ólafsson, nývalinn skrif-
stofustjóri Alþingis, skilaði
verkinu frá sér en samt sem
áður bólar ekki á því. Sam-
kvæmt heimildum Dropa er
það margt sem veldur drætt-
inum. Svo mun hafa verið
deilt um formála fyrir útgáf-
unni. Þegar það mál virtist í
höfn datt einhverjum í hug
að ekki væri hægt að gefa
safnið út öðru vísi en forseta
íslands væri afhent eintak í
skinnbandi. Þá var farið í að
binda gripinn inn. Nú mun
því verki vera lokið og sam-
kvæmt síðustu fréttum er
fátt því til fyrirstöðu, að
menn geti sett safnið í sölu
annað en tímaskortur þeirra
sem eiga að sjá um að hrinda
málinu í framkvæmd.
Og námsmönn-
um er sama
■ Þeir gömlu góðu dagar
’68 kynslóðarinnar, þegar
stúdentar börðust með kjafti
og klóm fyrir réttindum
sínum, eru liðnir. í þá tíma
létu menn sig ekki muna um
að yfirtaka sendiráð í barátt-
unni fyrir því að geta lært
hvað sem er, hvar sem er og
hvenær sem er. En nú er
öldin önnur. í nýgerðum
bandormi, sem varð að
lögum á síðustu dögum þing-
haldsins við Austurvöll, var
ákveðið að skerða lán
námsmanna um 40%. Og
námsmönum er sama. Frést
hefur að einhverjir stjórnar-
andstöðuþingmenn hafi ætl-
að að mótmæla þessari
skerðingu á kjörum náms-
manna en hurfu frá því þegar
engin vísbending barst um
að slíkt væri í samræmi við
vilja toppforystu náms-
mannahreyfingarinnar. Að
minnsta kosti sýndi enginn
lit. Seint og um síðir kölluðu
stúdentar þó til fundar við
Alþingishúsið þar sem örfáir
mættu og ræðumenn létu
meðal annars þau orð falla
að það gæti bara ekki verið
að stjórnvöld væru svona
vond!
Þegar svo allt er um garð
gengið, bandormurinn orð-
I Reykvíkingar fengu í gær að vita að geimverur þurfa ekki endilega að vera óvinveittar. Þessi blés
júfum tónum úr saxafóni í stað þess að beina geislabyssu að forviða mannskapnum fyrir neðan...
Þýski eggjaþjófurinn kyrrsettur, skítblankur-
Hver boraar
brúsann?
■ Ekki hefur enn verið
ákveðið hver muni bera
kostnaðinn af veru þýska
fálkaeggjaþjófsins, Mirosl-
avs, sem nú er kyrrsettur í
landinu með úrskurði Saka-
dóms í morgun. Enginn vafi
leikur á að íslenska ríkið
borgar brúsann en velt er
vöngum yfir hvaða stofnun
innan þess tekur það á sig.
Hliðstætt mál hefur aldrei
komið upp áður á íslandi og
og því er um að ræða for-
dæmi, sem vafalaust verður
látið gilda þegar lík mál
koma upp í framtíðinni.
í gær staðfesti Sakadómur
Reykjavíkur kröfu ríkis-
saksóknara um farbann á
Miroslav uns dómur er geng-
inn fyrir hæstarétti, en Öm
Clausen, lögfræðingur hans,
hefur kært úrskurðinn.
Reiknað er með að hæstirétt-
ur taki afstöðu til farbanns-
ins innan tíðar og verði sá
úrskurður samhljóma úr-
skurði Sakadóms er líklegt
að Þjóðverjinn þurfi að
dvelja hér til hausts, því ekki
eru taldar lfkur á því að
hæstarétti takist að afgreiða
mál hans fyrir sumarfrí.
Þessa dagana dvelur Mir-
oslav á Hjálpræðishernum
og verður reikningur fyrir
dvöl hans þar sendur hlutað-
eigandi þegar yfirmenn í
dómsmálaráðuneyti hafa
tekið ákvörðun um það hver
borgi brúsann. í Útlendinga-
eftirlitinu fengust í dag þær
upplýsingar að hver sem
skikkaður yrði til að taka
framfærsluna á sig væru eng-
ar líkur á að þeim seka verði
úthlutað meiru til framfærslu
en nauðþurftafólki, sem í
Reykjavík hefur sagt sig til
sveitar. Ekki eru taldar líkur
á að Miroslav geti fengið
atvinnu né atvinnuleyfi þar
eð hann hefur gerst brot-
legur við íslensk lög.
Eins og fram hefur komið
í fjölmiðlum er kona Mirosl-
av, Gabrielle, farin af landi
brott. Guðmundur Jónsson,
verjandi hennar, gekkst í
ábyrgð fyrir sekt hennar,
sem nam 200 þúsund
krónum. Að sögn Guð-
mundar á Gabrielle fjöl-
skyldu bak við sig, sem getur
staðið straum af sektinni.
Miroslav er aftur á móti
eignalaus flóttamaður frá
Tékkóslóvakíu.