NT - 25.05.1984, Síða 6
„Lít ekki á mig sem danskan
kvikmyndagerðarmann“
- segir leikstjórinn Lars von Trier, sem fékk sérstök
verðlaun fyrir tæknilegt framlag á Cannes hátíðinni
Gengið umhverfis Helgafell
GÖNGUDAGSGETRAUN. Hvað veist þú um Ferðafélag
íslands?
1. Hvaða ár var Ferðafélag íslands stofnað? ...
2. Hvað hét fyrsti forseti Ferðafélags íslands? .
3. Fyrsta skemmtiferð Ferðafélags íslands var farin 21.
apríl 1929. Hvert var þá farið? ............
4. Hvar byggði Ferðafélag íslands fyrst sæluhús?
5. Hvað gengu margir með Ferðafélagi íslands á fyrsta.
göngudegi þess 10. júní, 1979...............
Auðvelt er að finna svör við spurningunum í Árbókum
Ferðafélagsins. Lausnir sendist til Ferðafélags íslands,
Öldugötu 3,121 Reykjavík pósthólf 545, fyrir 12. júní n.k.
Dregið úr réttum lausnum og þrenn verðlaun veitt.
1. Vikudvöl í Þórsmörk fyrir tvo.
2. Helgarferð í Þórsmörk fyrir tvo.
3. Helgarferft í Þórsmörk fyrir tvo.
Nánari tilhögun göngudags er auglýst í félagslífi í
smáauglýsingum dagblaða.
Ferðaféiag Islands
■ „Maður á alltaf að stefna á
fyrsta sætið í öllu, sem maður
tekur sér fyrir hendur í lífinu“.
Þetta segir danski kvik-
myndaleikstjórinn Lars von
Trier, sem átti mynd í sam-
keppninni á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes á dögunum.
Myndin, The Element of.
Crime er fyrsta kvikmynd Lars
í fullri lengd og jafnframt
fyrsta danska myndin í mörg
ár, sem hefur náð því að kom-
ast í þcssa eftirsóttustu sam-
keppni kvikmyndanna.
Lars von Trier fékk að vísu
ekki fyrstu verðlaun fyrir mynd
sína, sjálfan Gullpálmanna, en
honum voru veitt sérStök verð-
laun fyrir tæknilegt framlag.
The Element of Crime vakti
töluverða athygli, þegar hún
var frumsýnd í upphafi hátíð-
arinnar, þótti óvenju þroskað
byrjendaverk. Litameðferðin
var ekki eins og maður á að
venjast, þar sem alls kyns blæ-
brigði af gulu voru yfirgnæf-
andi með einstaka rauðum og
bláum lit.
„Við höfum verið að vinna
að því í þrjú ár að gera East-
man-Kodak litina boðlega“,
segir Lars, og á þar við sjálfan sig
kvikmyndatökumanninn Tom
Elling, fyrrverandi listmálara,
og klipparann Tómas Gísla-
son, fslending, sem hefur búið
í Danmörku alla ævi.
The Element of Crime er
sakamálamynd, eða „film
noir“ eins og þessi tegund
kvikmynda er gjarnan kölluð
á erlendum tungumálum. í
upphafi myndarinnar er leyni-
lögreglumaðurinn Fisher kom-
inn til Kairó, örmagna eftir
erfiða morðrannsókn í Evr-
ópu. Með aðstoð sállæknis
hverfur hann til baka og reynir
að muna það, sem gerst hafði.
Evrópa er öll meira eða
minna undir vatni og stöðugt
bætist á með úrhellisregni svo
til allan tímann, þegar Fisher
rannsakar svokölluð happ-
drættismiðamorð. Hann ieitar
aðstoðar Osbornes, fyrrum
kennara síns á lögregluskólan-
um, sem hefur skrifað lærða
ritgerð um eðli gíæpsins, þar
sem gengið er út frá því, að
lögreglumaðurinn setji sig í
spor glæpamannsins og skilji
innviði glæpsins til að geta
komið upp um hann. Osborne
hafði áður rannsakað happ-
drættismiðamorðin og í tengsl-
um við þá rannsókn haft
gætur á Harry nokkrum Grey.
Fisher tekur upp þráðinn, þar
sem Osborne hvarf frá og með
aðstoð gleðikonunnar Kim
heldur hann af stað gegnum
forarpytti Evrópu í leit að
sannleikanum.
Lars von Trier er aðeins 28
ára gamall og þessi fyrsta mynd
hans lofar góðu um framhald-
ið. NT hitti Lars að máli nokkr-
um dögum eftir frumsýn-
ingu myndarinnar við morgun-
verðarborðið á Carlton hótel-
inu í Cannes, einu því fínasta
þar um slóðir. Úti var steypi-
regn.
The Element of Crime er öll
tekin á ensku og var Lars fyrst
spurður á hvaða stigi það hafi
verið ákveðið og hvers vegna.
„Hugmyndin um það kom
mjög snemma upp, en þar sem
dönsku kvikmyndalögin eru
ekki hrifin af slíku, þá ákváð-
um við að gera myndina bæði
á ensku og dönsku. Ástæðurn-
ar fyrir því að við gerðum
myndina á ensku eru fjölmarg-
ar. Ein þeirra er sú, að ekki
mátti líta svo út, að myndin
gerðist í Danmörku, heldur
einhvers staðar í Evrópu,
vegna þess að hún er um
Evrópu. Auk þessermikilvægt
að myndin fái nægilega marga
áhorfendur til að standa undir
kostnaði".
- Lágu þá einungis fjárhags-
legar ástæður að baki þessari
ákvörðun?
„Nei, aðalástæðan er sú, að
þessi mynd er skyld hinum
gömlu „films noirs“ og þeirra
tungumál var enska“.
- Að undanförnu hefur mik-
ið verið talað um þjóðlega
Med dauðann á hælunum
Undir eld-
fjallinu eftir
John Huston:
■ John Huston var kampakátur, þegar hann mætti á fund með
fréttamönnum eftir frumsýningu myndar sinnar. Langþráður
draumur hans hafði ræst. NT-mynd GB.
■ Bandaríski kvikmvndaleikstjórinn ;
John Huston var sérstaklega heiðraður
af dómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes við lokaathöfnina í fyrrakvöld.
Kvikmynd Hustons Undir eldfjallinu
var talin sigurstranglegust allt fram á
síðustu stundu, en svo fór þó að Wim
Wenders fékk Gullpálmann. Einnig áttu
flestir von á, að Albert Finney, sem
leikur aðalhlutverkið í Undir eldfjallinu
fengi verðlaun fyrir bestan leik í karl-
hlutverki. Svo varð þó ekki. Undir
eldfjallinu er engu að síður framúrskar-
andi mynd og hér á eftir er lítillega
fjallað um hana.
„Hvílík eymdarörlög".
Hetjur kvikmyndanna hafa lagt það í
vana sinn að segja nokkur fleyg orð á
banabeði sínu. Geoffrey Firmin, aðal-
persóna kvikmyndarinnar Undir eld-
fjallinu eftir John Huston er engin
undantekning, þar sem hann liggur í
drullunni fyrir utan vesælt hóruhús ein-
hvers staðar í Mexíkó með nokkrar
kúlur í skrokknum. En þessi eymdarör-
lög voru óumflýjanleg.
Undir eldfjallinu segir frá síðasta
sólarhringnum í lífi Geoffrey Firmin,
fyrrverandi konsúls Bretaveldis í Mexí-
kó. Firmin er kominn fram á ystu nöfn,
aðframkominn af drykkjuskap, sokka-
laus í fínum smókingnum. Myndin ger-
ist þann 1. nóvember 1938 í Mexíkanska
bænum Cuernavaca, á Degi hinna
dauðu, degi þegar mexíkanar gleðjast
með burtkölluðum úr þessum heimi.
Örlög Firmins eru því ráðin þegar í
upphafi og beinagrindurnar, sem gerðar
hafa verið í tilefni dagsins speglast í
dökkum gleraugum hans.
■ Albert Finney vann eitt mesta leik-
afrek, sem sögur fara af í hlutverki
konsúlsins í mynd Hustons Undir eld-
fjallinu, þó svo að hann fengi ekki
verðlaun. Hér er konsúllinn með sálu-
félaga sínum, áfengisflöskunni.
Þennan dag kemur hin fagra Yvonne,
eiginkona konsúlsins, til þess að reyna
að koma lagi á hjónabandið, eftir
nokkra fjarveru. Sama dag kemur einn-
ig á staðinn hálfbróðir konsúlsins,
Hugh, blaðamaður'nýkominn frá Spáni,
þar sem tekið var að halla undan fæti
fyrir lýðveldissinnum. Og þá er vofa
nasismans farin að teygja anga sína alla
leið til Mexíkó.
í þessu andrúmslofti vitfirringar reyna
persónurnar að ná saman, einkum þó
Firmin og kona hans, en á Degi hinna
dauðu ná þau aðeins saman í dauðan-
um. Firmin reynir að berjast á móti í því
helvíti, sem heimurinn er orðinn og
flaskan er hans eina lausn. En enginn
fær flúið örlög sín.
Undir eldfjallinu var fyrsta myndin á
hátíðinni, sem vakti einhverja verulega
athygli og ekki að ófyrirsynju. Hér
hefur Huston gamla tekist einkar vel
upp og hann sýnir að þrátt fyrir árin 77
setur Elli kerling engin mörk á verk
hans. Myndin er full af krafti og lífi til
mótvægis við dauðann, sem vofir yfir
persónunum.
Aðalhlutverk myndarinnar eru í
höndum Alberts Finney, sem leikur
konsúlinn, Jacqueline Bisset, sem leikur
eiginkonuna og Anthony Andrews, sem
leikur hálfbróðurinn. Mest mæðir á
Finney, sem er frammi fyrir myndavél-
inni svo til allan tímann. Túlkun hans er
í einu orði ógleymanleg.
John Huston segir sjálfur, að persóna
konsúlsins sé ein sú erfiðasta, sem hann
hafi nokkurn tíma glímt við í kvikmynd
og túlkun Finneys á hlutverkinu sé einn
besti leikur, sem hann hafi séð um
ævina. Og hann ætti að vita hvað hann
syngur, búinn að gera kvikmyndir í
meira en 40 ár.
„Ég áleit Finney passa vel í hlutverk-
ið. Hann er einn þeirra leikara, sem ég