NT - 25.05.1984, Page 7
Undir eldfjallinu er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu breska rithöfundarins
Malcolm Lowry, sem kom út árið 1947,
eftir langa baráttu höfundarins fyrir að
fá hana birta. Alls liðu tíu ár frá því að
Lowry hóf að rita bókina og þar til hún
komst á prent. Skáldsagan er að miklu
leyti sjálfsævisöguleg og þegar hún kom
út voru gagnrýnendur ekki á einu máli
um'ágæti hennar. Einn sagði, að Lowry
hefði tekist að skrifa fremur góða eftir-
líkingu af mikilli skáldsögu, á meðan
annar sagði, að hún væri verk snillings.
Kvikmyndun bókarinnar hefur staðið
til frá því að hún kom út fyrir nær 40
árum og var Lowry fyrstur til að reyna
það. Hann stakk upp á því við MGM
kvikmyndafélagið, en ekkert varð úr
þeim áformum. John Huston er því
fyrstur manna til að gera mynd eftir
sögunni.
„Ég las bokina strax og hún kom út
árið 1947 og hún hafði mikil áhrif á mig.
En lengi vel gat ég ekki ímyndað mér
að ég myndi gera kvikmynd eftir henni.
Ég hugsaði meira að segja ékki út í það.
Þó kom að því, að menn fóru að koma
með handrit eftir bókinni til mín, ungir
aðdáendur , skáldsögunnar, háskóla-
kennarar og jafnvel rithöfundar. Hver
hafði eigin hugmyndir um hvernig ætti
að laga bókina að kvikmyndaforminu
og ég las um 25 handrit. En ekki eitt
einasta þeirra var nothæft. Á meðan á
þessu stóð fór mig að langa til að gera
kvikmynd eftir sögunni og þar sem ég
hefði ekki getað gert gott handrit eftir
henni sjálfur, beið ég bara eftir góðu
handriti".
Þetta segir Huston um áhuga sinn á
að gera mynd eftir skáldsögu Lowry.
Bið hans tók svo enda fyrir tveimur
árum, þegar ungur maður, Guy Gallo,
kom til hans með handrit. Huston leist
vel á þáð og þeir unnu að því að
betrumbæta það í heilt ár, áður en
myndin var tekin.
„Ég er auðvitað mjög
ánægður með þetta, en við,
skipulögðum gerð myndar-i
innar þannig, að við gætum
náð hingað í tíma. Við lukum
reyndar við myndinaásíðasta
degi umsóknarfrestsins fyrir
samkeppnina".
- Hefurður einhver áform
um nýja mynd?
„Við erum að skrifa handrit
að nýrri mynd, sem allt bendir
til að verði dýr. Ég þarf þess
vegna að finna peninga til að
gera hána, en ég held ég geri
það ekki í dag vegna rigningar-
innar“.
- Hvers konar mynd verður
það?
„Við Tomas og Tom Elling
höfum unnið saman að kvik-
myndagerð í þrjú ár og við
erum að reyna að búa til sér-
staka tegund kvikmyndar, og
The Element of Crime er að-
eins eitt skref á þeirri braut.
Nýja myndin verður lík henni
að einhverju leyti, en okkur
langar til að þróa tæknina enn
frekar".
■ Lars og félagi
hans Tómas Gísla-
son, klippari mynd-
arinnar.
NT-myndir: GB
■ Fisher leynilög-
reglumaður í slags-
málum við gleði-
konuna Kim. Leik-
ararnir heitaMicha-
el Elphick og
MeMe Lei.
Ert þú að leita að hillum í stofuna,
barnaherberqið, geymsluna, lagerinn
eða verslunina? Þetta er lausnin.
SRItlVlHHU
SOLUBOÐ
...vöruverð
í lágmarki
Fóstudagur 25. maí 1984 7
ber hvað mesta virðingu fyrir. En
frammistaða hans í myndinni fór langt
fram úr mínum björtustu vonum. Finn-
ey er leikari, sem ekki þarf að stjórna.
Við ræddum atriðin saman, en ég lét
hann síðan einan um að æfa. Og ég
þurfti aldrei að setja út á túlkun hans á
hlutverkinu“, segir John Huston.
Hlutverk Bisset og Andrews eru mun
veigaminni, en bæði skila þau þeim með
mikilli prýði.
UMFERÐARMENNING
>
Ökum jafnan
á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
UMFERÐAR
RÁÐ
Ný plata Samhjálpar.
Æurágóði rennur
tiínjálparstarfsins.
fómhjálp
kvikmyndagerð sem mótvægi
við myndir gerðar fyrir fjár-
magn frá mörgum löndum, og
amerískar myndir, sem flæða
yfir Evrópu. Mig langar því til
að spyrja þig hvort þú lítir á
þig sem danskan leikstjóra,
sem gerir danskar myndir, eða
aðeins sem leikstjóra sem gerir
kvikmyndir?
„Ég lít ekki á mig sem
danskan leikstjóra og ég er
ekki sammála því, að kvik-
myndir þurfi að vera þjóðlegar
til að vera góðra gjalda verðar.
Hinir sönnu meistarar áttu sér
ekkert þjóðerni, en þeir komu
úr mismunandi umhverfi. Ég
lít svo á, að það sé ekkert til,
sem heitir sérstök dönsk kvik-
myndagerð, heldur miklu
fremur evrópsk kvikmynda-
gerð og ég lít á mig sem
Evrópumann. Og maður eins
og Carl Dreyer var alls ekki
danskur kvikmyndagerðar-
gerðarmaður, hann var ekki í
neinum tengslum við danska
kvikmyndahefð.“
- Þú dregur upp nokkuð
dökka mynd af Evrópu í kvik-
mynd þinni...
„Já, en mér finnst hún líka
falleg...“
- Aðalpersóna þín virðist
alltaf fara til Kairó, til annars
menningarsvæðis, þegar hún á
í vandræðum í Evrópu. Hvers
vegna? Finnst þér Evrópa vera
að fara í hundana?
„Nei, ég lít svo á, að Evrópa
eigi ekki lengur við þankagang
Fishers. Hann er menntamað-
ur (intellectual) og húmanisti
og þegar hann fer aftur til
Evrópu, fer allt í handaskolum
hjá honum“.
- Evrópa er sem sé ekki á
niðurleið?
„Nei, en hún er kannski að
komast aftur á fyrra þróunar-
stig. Valdastrúktúrinn er meira
eða minna hruninn og fólk lifir
næstum því í litlum þjóðflokk-
um, eins og hér áður fyrr. Eins
og segir í myndinni, þá liggur
fólkið í móki og ég held, að
það sé vísbending um að fólk
muni snúa sér í auknum mæli
að trúnni og að því að lifa
meira í snertingu við náttúr-
una. Annars er ég ekkert of
hrifinn af því að vera að greina
myndina. Hún á að standa
fyrir sínu“.
- Það rignir nær stöðugt í
myndini og vatnið er alls
staðar, hvers vegna?
„Mér fannst regnið vera við
hæfi, ef náttúran væri að taka
völdin. En auk þess er regnið
auðvitað hluti klisjanna í „the
film noir“. Mér finnst mikil-
vægt að skírskota til gömlu
myndanna".
- Nú er þetta fyrsta kvik-
myndin þín í fullri lengd og
hún var í samkeppninni. Kom
það þér á óvart að þú skyldir
ná svona langt?
Hillustærðir: 30x80 og 50x80
Uppistöður: 61, 112 og 176 cm.
ÚtsölustaSlr: REYKJAVÍK: Liturinn, JL-Húsið, KÖPAVOGUR: BYKO, Nýbýla-
i/egi 15, HAFNARFJÖRÐUR: Málmur, Reykjavíkurvegi, AKRANES: Verslunin
Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfiröinga, STYKKISHÓLMUR: Húsið,
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr. Einarsson, ÍSA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga,
EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin
Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin
Pór, VlK I MYRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldurog
Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.