NT - 25.05.1984, Blaðsíða 12

NT - 25.05.1984, Blaðsíða 12
Rás 2 föstudag kl. 16. -17. ■ í „læknamyndunum“ -"g Sir James Robertson svokölluðu háðu þeir inarga Justice, sem skemmti okkur hildina Dirk Bogarde... sv0 á8*‘a vel 1 síðus‘u fös‘u' dagsmynd, Viskíflóðinu. Sjónvarp föstudag kl. 21.05: Framabraut læknis- ins er síður en svo bein og breið ■ Læknir á lausum kili er íslenska nafnið á föstudags- myndinni að þessu sinni. Hún er bresk gamanmvnd, gerð árið 1957 eftir einni af lækna- sögum Richards Gordons. Breskar gamanmyndir hafa löngum átt upp á pallborðið hjá landanum og einmitt á árunum í kringum 1960 nutu mikilla vinsælda hér á landi svonefndar „læknamyndir", en þar var í nokkrum myndum rakið fyrst áhyggj ulítiö stúd- entalíf og síðar eilítið áhyggjumeira líf, þegar þeir eru að reyna að komast á framabraut innan læknastétt- arinnar. Höfuðóvinur lækna- nemanna var Sir Lancelot Spratt, yfirlæknir á St. Swithin's sjúkrahúsinu, en aðalhrakfallabálkurinn í liópi læknanema var Simon Sparrow. Sir James Robertson Justice fór með hlutverk hins fyrrnefnda, en Dirk Bogarde lék læknanemann seinheppna. Myndin í kvöld segir cinmitt frá því, þegar Simon cr búinn að ljúka kandídatsprófi og er að reyna að fikra sig í hærri stöðu á sjúkrahúsinu. Draum- ur hans er að fá stöðu sem skurðlæknir, og það alvöru skurðlæknir, ekki bara ein- hver, sem þarf að gera að minni háttar meiðslum á slysa- deildinni. En þar sem óheppn- in eltir hann, verður honum leiðin bæði löng og torsótt. Það verður honunt ekki til framdráttar t.d. að átta sig ekki á því, hver í hlut á, þegar formaður stjórnar spítalans kemur á slysadeild til að láta setja umbúðir á fingur að fyrir- rnælum Sir Lancelots. Simon ávarpar hann heldur óvirðu- lega og skammar hann fyrir að halda sig ekki á réttum stað í biðröðinni og bíða eftir því að röðin komi að honum. Þar rauk næsta stöðuhækkun. Simon gerist þá aðstoðar- maður sveitalæknis eins, en ávinnur sér meiri áhuga læknis- frúarinnar en honum er hollt og læknirinn getur fellt sig við. Þá liggur leiðin í hverfi ríka fólksins í Park Lane. Þar á Simon enn fullt í fangi með að verjast ásókn ímyndunar- veikra kvenna, sem ekki vita aura sinna tal, en líta svo á, að peningar séu heldur dónaleg nauðsyn. Þó að óheppnin sé tryggur fylgifiskur Simons, fer þó svo að lokum að honum gefst tæki- færi til að koma sér aftur í mjúkinn hjá stjórnarformanni St. Swithins sjúkrahússins með þeim alleiðingum, að honurn gefst aftur kostur á að hefja störf á sjúkrahúsinu því. En, því miður, í nákvæmlega sömu sporum og fyrr! Með aðalhlutverk í Læknir á lausum kili fara Dirk Bogar- de, Muriel Pavlow, Donald Sinden og James Robertson Justice. Leikstjóri er Ralph Thomas. Þýðandi er Krist- mann Eiðsson. Útvarp kl. 21.35 3. þáttur fram- haldsleikritsins endurtekinn ■ Sl. laugardag var fluttur þriðji þáttur framhaldsleikrits útvarpsins eftir Graham Greene, „Hinn mannlegi þáttur." Var hann nefndur Brúðkaup og dauði. Sá þáttur verður endurtek- inn í kvöld kl. 21.35. ■ ...Magnús Bjarnfreðsson eru kvöldgestirnir að þessu sinni. Útvarp kl. 23.15: Síðustu kvöld- gestirnir að sinni ■ í kvöld, föstudagskvöld, fáum við síðustu kvöldgestina í fylgd Jónasar Jónassonar, að sinni í heimsókn. Gestirnir í þetta sinn eru þjóðkunnir, þau Kristjana Milla Thorsteinsson og Magnús Bjarnfreðsson og er ekki að efa að þau hafa frá mörgu forvitnilegu að segja. Þátturinn hefst kl. 23.15. Föstudagur 25. maí 1984 1 2 Franskur jazzpíanisti og kvenna- jazz í þætti Vernharðs Linnet leikari, það var píanistinn Mary Loue Williams. En þetta er að breytast á síðustu árum. Konur hafa í auknum mæli komið fram og þá fyrst og fremst sem píanist- ar, hljómsveitarstjórar og út- setjarar. Sérstaklega segir Vernharður tvær konur bera þar af. japönsku konuna Tok- iosi Hakiosi, sem stjórnar ásamt eiginmanni sínum þeirri stórhljómsveit, sem talin er best í jazzheiminum í dag og stúlku af sænskum ættum, Carla Bley, en hún kont einmitt hingað til lands í hitteðfyrra ásamt Charlie Haeden og hljómsveitinni, Liberation Music Orchestra. Þá kom hingað til lands sænsk kvenna-jazzhljómsveit- in Salamöndrurnar fyrir ári. Vinsælda- listi Rásar 2 ■ Að undanförnu hefur fólki þessum óskum hefur nú í gefist kostur á að hringja til fyrsta sinn verið unninn vin- Rásar 2 á fimmtudögum kl. sældalisti og birtist hann hér 12-14 og láta í Ijós, hvaða tvö með fyrir vikuna 18.-24. maí. lög það kysi helst að heyra. Úr 1. (1) I WANTTO BREAK FREE . . Queen 2. (6) DIGGY LO DIGGY LEY ..Herrey’s 3. (3) STRÁKARNIR Á BORGINNI . . Bubbi Morthens 4. (10) REFLEX...........Duran Duran 5. (4) FOOTLOOSE ........Kenny Loggins 6. (2) HELLO.............Lionel Ritchie 7. (-) HOLDING OUT FOR A HERO . . . Bonnie Tyler 8. (7) AGAINST ALL ODDS...Phil Collins 9. (5) THE KID’S AMERICAN.Matthew Wilder 10. (9) SEASONS IN THE SUN .Terry Jacks ■ í dag, föstudag, verður Vernharður Linnet með jazz- þátt sinn á Rás 2. Aðspurður um efni þáttarins að þessu sinni, gaf hann okkur þær upplýsingar að hann tæki þar mið af Listahátíð og ætlaði að kynna franska jazzpíanistann Martial Solal, sem heldur tón- leika í Norrná húsinu 2. júní nk. Þá ætlar hann einnig að kynna sænsk-íslenska kvenna- hljómsveit Quin-tetten, sem einnig sækir okkur heim á Listahátíð. Vernharður segir okkur að franski píanósnillingurinn Martial Solal sé eitthvert stærsta nafnið í evrópska jazz- píanistaheiminum. í þættinum rekur Vernharður ofurlítið fer- il lians, allt frá því hann byrjaði sem ungur að spila meö gömlum köppum, eins og Kenny Clark, sem var trommuleikari Modern Jazz kvartettsins. Kegar Kenny hætti í Modern Jazz kvartettin- um, fluttist hann til Parísar, og þar fór Solal að spila með honum. í tengslum við kynninguna á kvenna-jazzhljómsveitinni ætlar Vernharður síðan að ræða ofurlítið um kvennajazz. Hann segir ekki mikið af stór- kostlegum kvenhljóðfæraleik- urum í jazzsögunni. Þó að í jazzheiminum sé að finna stór- stjörnurnar Billie Holliday, Ellu Fitzgerald og Sarah Vaughan, séu þær allar söng- konur. Aðeins ein kona hefur verið talin til þeirra stærstu í jazzheiminum sem hljóðfæra- ■ Kristjana Milla Thor- steinsson og... ■ Lag þeirra Herrey bræðra, Diggy Lo Diggy Ley, sem tryggði þeim sigur í nýafstaðinni söngvakcppni evrópskra sjónvarpsstöðva, er í öðru sæti vinsældalista Rásar 2 þessa vikuna. ■ Vernharður Linnet kynnir okkur jazzista, sem koma á Listahátíð, í þætti sínum í dag. Föstudagur 25. maí 7.06 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leiktimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Marðar Árnasonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Gyða Jónsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Afastrakur" eftir Ármann Kr. Einarsson. Höfundur les (5). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Það er svo margt að minnast á“ Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.15Tónleikar 11.35 Heimaslóð. Ábendingar um ferðaleiðir. Umsjón: Ari Trausti Guðmundsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn- ar Egilssonar; seinni hluti Þor- steinn Hannesson les (32). 14.30 Miðdegistónleikar St. Martin- in-the-Fields hljómsveitin leikur þrjá þætti úr Svítu oþ. 40 eftir Edvard Grieg; Neville Marriner stj. 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Ei- riksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Pierre Fo- urnierog Filharmoníusveitin í Vín- arborg leikar Sellókonsert í h-moll op. 104 eftir Antonin Dvorák; Raf- ael Kubelik sti. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegisvakan. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- urðardóttir. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. „Tíbrá“ Úlfar K. Þorsteinsson les úr Ijóðmælum Einars Benediktssonar. b.Dala- mannarabb Ragnar Ingi Aðal- steinsson ræðir við Pétur Olafsson í Stórutungu á Fellsströnd, um trúarskoðanir hans og trúar- reynslu. 21.10 Hljómskálamúsik Guðmund- ur Gilsson kynnir. 21.35 Framhaldsleikrit: „Hinn mannlegi þattur " eftir Graham Greene Endurtekinn III. þáttur: 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Djassþáttur Umsjónarmaður: Gerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.15 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónassonar 00.05 Fréttur. Dagskrárlok Næturútvarp frá RÁS 2 hefst með veðurfregnum kl. 01.00 og lýkur kl. 03.00. Föstudagur 25. maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir og Arnþrúður Karlsdóttir. 16.00-17.00 Jazzþáttur Stjórnandi: Vernharður Linnet. 17.00-18.00 I föstudagsskapi Stjórnandi: Helgi Már Barðason. 23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2 Stjórnandi: Ólafur Þórðarson. (Rásir 1 og 2 samtengdar með veðurfregnum kl. 01.00 og heyrist þá i Rás 2 um allt land.) Föstudagur 25. maí 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum Þriðji þáttur. Þýskur brúðu- myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 21.05 Læknir á lausum kili (Doctor at Large) Bresk gamanmynd frá 1957, gerð eftir einni af lækna- sögum Richards Gordons. Leik- stjóri Ralph Thomas. Aðalhlutverk: Dirk Bogarde, Muriel Pavlow, Don- ald Sinden og James Robertsson Justice. Simon Sparrow læknir er kominn til starfa á St. Swithins sjúkrahúsinu þar sem hann var áður léttúðugur kandídat. 22.40 Setið fyrir svörum í Washing- ton f tilefni af 35 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins svarar George Shultz, utanrikisráðherra Bandaríkjanna spurningum frétta- manna frá aðildarríkjum Atlants- hafsbandalagsins, e.t.v. ásamt einhverjum ráðherra Evrópurikis. Af hálfu islenska sjónvarpsins tekur Ögmundur Jón- asson þátt í fyrirspurnum. Auk þess munu nokkrir kunnir stjórn- málamenn og stjórnmálaritstjórar ræða málefni bandalagsins i þætti- num.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.