NT - 25.05.1984, Qupperneq 14
líl’
Föstudagur 25. maí 1984 1 4
Átti George Washing
ton í ástasambandi
fram hjá konu sinni?
■ Þá hafa Ameríkanar tekið fyrir í kvikmynd
elstu kjaftasöguna frá stofnun Bandaríkjanna
- en hún er um fyrsta forsetann, George
Washington og æskuvinkonu hans Sally Fair-
fax og hvort samband þeirra var meira en
venjulegur vinskapur. Miklar sögur gengu á
sínum tíma um ástasamband Washingtons og
Sally, - en hún var gift besta vini forsetans -
og hann giftur Mörtu sinni forsetafrú.
ekki að spyrja hann út í þetta
fyrr en við hefðum fengið okk-
ur nokkur glös saman, því
hann var mikill skapmaður.“
Patty Duke Astin (Molly
lögfræðingur í þáttunum í
blíðu og stríðu) leikur forseta-
frúna. Hún segist álíta, eftir
því sem hún hafi lesið um
George Washington og líf
hans, að þarna hafi verið um
vináttusamband að ræða, en
ekki ástasamband - eins og
kvikmyndahöfundar viiji vera
láta „Washington tel ég að hafi
verið svo heiðarlegan í öllu
tilliti að framhjáhald hafi ekki
komið til greina“, segir Patty
Duke Astin vera skoðun sína.
Hún segist halda frekar að
forsetinn hafi ekki viljað láta
bréf Mörtu, eiginkonu sinnar,
koma fyrir almenningssjónir,
því hún hafði litla menntun og
bréfritun hennar var eftir því.
„Auðvitað er ekki hægt að líta
fram hjá því, að hann bar alla
tíð ást í brjósti til Sally - en
mér finnst erfitt að trúa því að
þau hafi verið elskendur.
Leikkonan Patty Duke Ast-
in segist reyna í leik sínum að
halda vissu jafnvægi á milli
sögulegra heimilda um forseta-
frúna og gæða persónuna
meira lífi og fjöri en fram
kemur um Mörtu í heimildum.
Það kemur fram að hún var
róleg og skapgóð kona en það
hefur samt verið mikill dugur
og kraftur í henni, sem Patty
vill að komi fram.
Pessi spurning um ástasam-
band forsetans verður aðalefni
í átta klukkutíma kvikmynd,
sem sýnd verður sem fram-
haldsmynd í CBS sjónvarps-
stöðinni í Bandaríkjunum.
Barry Bostwick leikur
Washington á aldrinum 19 til
51 árs. Hann segist vera búinn
að lesa sér til það sem hann
hafi fundið um þetta efni, en
sé litlu nær, en þó finnist sér á
öllu að þarna hafi verið um
ástasamband að ræða. Mér
finnst einkennilegt og nærri
grunsamlegt að forsetinn skip-
aði að öll einkabréf sín yrðu
eyðilögð er hann lá banaleg-
una. Ef ég hitti George í dag“,
sagði Bostwick „yrði fyrsta
spurningin sem ég legði fyrir
liann - Hvað var í þessum
bréfum? En kannski þyrði ég
■ Patty Duke Astin, sem leikur forsetafrúna, þekkja íslenskir sjónvarpsáhorfendur betur
sem Molly lögfræðing í þáttunum í blíðu og stríðu. Hér sjáum við hana með eiginmanni
sínum í þáttunum.
■ Barry Bostwick, sem leikur
George Washington, og Patty Duke
Astin, sem leikur Mörtu eiginkonu
■ Carmela sveiflar nautabanaklæðinu yfir hausinn á tuddanum.
■ Carmela (t.v.) og Carmen Murcia hafa komið sér upp hinum fegurstu nautabanabúningum
og þær eru ásjálegar í hinum marglitu ísaumuðu jökkum.
SPÆNSKAR FEGURÐARDÍS■
IR GERAST NAUTABANAR
■ Carmen Murcia bregður sér flmlega undan er nautið vill ráðast á hana.
■ Nautabanar á Spáni
hafa alla tíð vérið taldir
miklar hetjur og almenn-
ingur hefur dáð þá sem
hin mestu karlmenni.
Nú hafa konur meira
frjálsræði á Spáni en áður
þekktist þar í landi, og þar
af leiðir, að þeim þykir
sem sér séu allar leiðir
færar, hvort heldur við
störf eða íþróttir. Því hafa
margar af hinum nýfrjálsu
spænsku konum t.d. tekið
tuddunum tak og standa
sig sumar hverjar með
mestu prýði.
Tvær eru mjög vel
þekktar í nautahringum
Spánar, og þær koma fram
á hátíðum víðs vegar í
landinu, ýmist báðar sam-
an eða ein sér. Þær heita
Carmela og Carmen
Murcia. Þær koma oft
fram sem aukanúmer á
undan nautaati þar sem
frægir nautabanar ráða
niðurlögum tuddanna við
mikil fagnaðarlæti áhorf-
enda, en sagt er að stúlk-
urnar veki miklu meiri at-
hygli en hinir þekktustu
spænsku nautabanar. Þær
fá þó ekki nándar nærri
svipuð laun og karl-nauta-
banar. Má tii dæmis nefna
það, að Carmela og Carm-
en fá um það bi! 2.000
krónur og upp í 4.200 kr.
fyrir bardaga í hringnum
þegar aðalnautabaninn
fær allt upp í 420.000
krónur!
- Þetta á eftir að breyt-
ast segja þær hinar hress-
ustu, og margar stúlkur á
Spáni hafa hug á að fylgja
í fótspor þeirra.