NT - 25.05.1984, Blaðsíða 16

NT - 25.05.1984, Blaðsíða 16
Igin framundan Fóstudagur 25. maí 1984 20 Iðnó ■ ■ Gísl, Bros úr djúp- inu og Fjöreggið ■ I kvöld verður Bros úr djúpinu á fjölum Iðnó, en aðeins fáar sýningar eru eftir á þessu leikriti. Gísl verður sýnt annað, en sýningar á því fara að nálgast 50 og hefur verið uppselt á þær allar. Fjöreggið eftir Svein Einars- son verður svo á fjölunum á sunnudagskvöld og er það 9. sýning. Fjöreggið gerist á heimili vel efnaðrar fjölskyldu í Reykjavík og lýsir mismun- andi viðhorfum kynslóðanna til lífsins og lífsverðmætanna. Ný íslensk teikni- mynd, Innsýn, frum- sýnd í Regnboganum ■ Finnbjörn Finnbjörnsson heitir maður sem setið hefur undanfarin þrjú ár við að búa til teiknimynd. Myndinni er nú lokið, og verður hún frum- sýnd á laugardaginn í E-sal Regnbogans. Finnbjörn lærði animation eða teiknimyndagerð í San Fransisco, og hafði áður lært húsamálun hér. Mynd hans heitir Innsýn og samanstendur af 6000 teikningum sem Finn- björn hefur setið við að teikna eða mála með málningar- sprautu, air brush. Myndin er ekki fígúratív, heldur abstrakt, nærri því abstrakt málverk á hreyfingu. Að sögn Finnbjörns er þetta alveg nýt.t listform hér á landi, og ekki algengt erlend- is. Tónlistin í myndinni er eftir sænskan mann, Ingemar Fried- el, og er það elektrónísk tónlist. Finnbjörn hefur fengið samtals 175.000 kr. í styrk úr kvikmyndasjóði, og einnig hafa bankar verið honum lið- legir. Alls mun myndin kosta um eina milljón, og þurfa 10.000 manns að sjá hana til að náist upp í kostnað. Myndin verður sýnd á klukkutíma fresti og er hún hálftíma löng. Jafnframt verður sýning á mál- verkum sem unnin eru út frá myndinni, og munu um 70 málverk hanga uppi í Regn- boganum á meðan á sýningum myndarinnar stendur. ■ Finnbjörn Finnbjörnsson kvikmyndagerðarmaður við myndir úr kvikmyndinni Innsýn. NT-mynd Arni Bjarnason ■ F.v. Guðrún Ásmundsdóttir, Lilja Þórisdóttir og Þorsteinn Gunnarsson í Fjöregginu eftir Svein Einarsson. Þjóðleikhúsið: Uppselt ■ Ekkert lát er á aðsókn að söngleiknum Gæjar og píur, sem nú gengur í Þjóðleikhús- inu. 25. sýning verður annað kvöld og er uppselt á hana sem og einnig sýninguna í kvöld og sunnudagskvöld. Gæjar og píur er eftir þá félaga Fran Loesser, Jo Svverl- ing og Abe Burrows, en efni- viðurinn eru sögur D. Run- yons. Flosi Ólafsson þýddi leikritið. NT-mynd Arni Sæberg ■ FIosi Olafsson ásamt fleiri gxjum í Gæjum og píum. Sunnudagur 27. maí 8.00 Morgunandakt Séra Kristinn Hóseasson prófastur, Heydölum, flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög Tivoli-hljóm- sveitin í Kaupmannahöfn leikur lög eftir H.C. Lumbye; Svend Christian Felumb stj. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar: Frá alþjóð- legu orgelvlkunni í Nurnberg s.l. sumar a. Pólski organleikarinn Anna Vuczek leikur Prelúdíu, hug- leiðingu, inngang og Passacagliu af fingrum fram. b. Kammerkór St. Lorenz-kirkjunnar í Nurnberg syngur kórlög eftir Ludwig Senfl, Conrad Rein og Hans Buchner; Hermann Harrassovitsj stj. og Jos- et Bucher leikur á orgel. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls Jónssonar. 11.00 Messa í Háteigskirkju Prestur: Séra Arngrímur Jónsson. Organleikari: Ortulf Prunner. Há- degistónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.45 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón: Einar Karl Haraldsson. 14.25 Aristoteles norðursins. Þátt- ur um Emanuel Swedenborg, tek- inn saman af Ævari R. Kvaran. Lesari meö honum: Rúrik Haralds- son. 15.151 dægurlandi Svavar Gests kynnir tónlist fyrri ára. í þessum þætti: Vinsælustu lögin fyrir fimm- tíu árum. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt- ir. Umsjónarmenn: ÖrnólfurThors- son og Árni Sigurjónsson. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegistónleikar Fílharmon- iusveitin í Berlin leikur „Eldfugl- inn", balletttónlist eftir Igor Stravin- sky; Christoph von Dohnanyi stj. (Hljóðritun frá Berlínarútvarpinu). 18.00 Við stýrið Umsjónarmaður: Arnaldur Árnason. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjölmiðl- un.'tækni og vinnubrögð. Umsjón: Helgi Pétursson. 19.50 „I leit að lífsfytlingu“, Ijóð eftir séra Sigurð Helga Guð- mundsson Höfundur les. 20.00 Þúst. Umræðuþáttur unga fólksins. Umsjónarmenn: Þórodd- ur Bjarnason og Matthías Matt- hiasson. 21.00 Skúli Halldórson sjötugur Sigurður Einarsson ræðir við tón- skáldið og leikin verða verk eftir Skúla. 21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safninu í þýðingu Steingrims Thorsteins- sonar (17). 22.15 Veðuriregnir. Frétlir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Páls- dóttir (RÚVAK). (Þátturinn endur- tekinn i fyrramálið kl. 11.30.) 23.05 Blágrasadjass Ólafur Þóröar- son kynnir Tony Rice, mark O'Conner, David Grisman o.fl. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sunnudagur 27. maí 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Pjetur Þ. Maack flytur. 18.10 Afi og billinn hans Lokaþátt- ur. Teiknimyndaflokkur frá Tékkó- slóvakíu. 18.15 Tveir litlir froskar Lokaþáttur. Teiknimyndaflokkur frá Tékkó- slóvakíu. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. Sögumaður Sigrún Edda Björnsdóttir. 18.25 Nasarnir 4. þáttur. Sænsk teiknimyndasaga. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision - Sænska sjónvarpið) 18.35 Börnln á Senju 1. Vor. Norsk- ur myndaflokkur um leiki og störf á bóndabýli á eyju úti fyrir Norður- Noregi. Þýðandi Jóhanna Jó- hannsdóttir. (Nordvision - Norska sjónvarpið). 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu viku 20.55 Á efri árum Sænskir sjón- varpsmenn litast um á Eyrarbakka og hitta að máli tvo aldraða Eyr- bekkinga, þá Guðlaug Pálsson og Vigfús Jónsson. (Nordvision - Sænska sjónvarpið) 21.25 Collin - fyrri hluti Vestur þýsk sjónvarpsmynd í tveimur hlutum, gerð eftir sögu Stefans Heyms sem búsettur er í Austur-Þýska- landi en hefur gagnrýnt þær villi- götur sem kommúnisminn hefur lent á að hans mati. Leikstjóri Peter Schulze-Rohr. Aðalhlutverk: Curd Jurgens, Hans-Christian Blech og Thekla Carola Wied. Kunnur rithöfundur, Hans Collin, sem verið hefur fylgispakur flokki og valdhöfum, ákveður að reyna að skrifa ævisögu sína og daga ekkert undan. Þetta áform hans veldur ýmsum áhyggjum eins og best kemur í Ijós þegar rithöfundur- inn er lagður á sjúkrahús þar sem einn forkólfa öryggisþjónustunnar er fyrir en þeir Collin þekkjast frá fornu fari. Þýðandi Jóhanna Þrá- insdóttir. 23.03 Dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.