NT

Ulloq

NT - 25.05.1984, Qupperneq 25

NT - 25.05.1984, Qupperneq 25
_LL_____Útlönd_________ El Salvador fær bandaríska aðstoð eftir dóm yfir morðingjum bandarískra nunna YVa.shington-Reuter. ■ Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að veita stjórnvöldum í El Salvador 61,7 milljóna dollara aukafjárveitingu til hermála. Hernaðaraðstoð Bandaríkjamanna til El Salva- dor mun því nema samtals 126,5 milljónum dollara nú í ár. Hinn mikli stuðningur, sem þessi aukafjárveiting fékk í þinginu, sýnir þá breytingu sem orðið hefur á afstöðu þing- manna eftir heimsókn Jose Napoleons Duartes, forseta El Salvadors, til Bandaríkjanna. Dómur yfir fimm hermönnum í El Salvador fyrr í gær, vegna morðs á fjórum bandarískum nunnum árið 1980, hafði einnig mikil áhrif á afstöðu þingsins. Hernaðarstuðningurinn verð- ur notaður í E1 Salvador til að styrkja herinn í baráttu við vinstri sinnaða skæruliða, sem lengi hafa barist gegn stjórn- völdum. Pótt fulltrúadeildin hafi þann- ig breytt afstöðu sinni til aukins hernaðarstuðnings til El Salva- dors neitaði hún í gær að sam- þykkja tillögur Reagans um 21 milljóna dollara fjárveitingu til hægrisinnaðra skæruliða sem berjast gegn Sandinistastjórn- inni íNicaragua. 241 þingmaður greiddi atkvæði gegn fjárveit- ingunni til skæruliðanna, en aðeins 177 þingmenn studdu hana. Bandarískir þingmenn hafa þannig tekið skýra afstöðu gegn því að Bandaríkin greiði fé til stríðsreksturs sem banda- menn Bandaríkjanna séu á móti og „breytt hafi Mið-Ameríku í hernaðarsvæði“ eins og banda- ríski þingmaðurinn, Edwald Boland, komst að orði í um- ræðum um fjárveitinguna til skæruliðanna í fulltrúadeild þingsins í gær, en liann er frá Massachusetts-fylki. Ekki eru heldur allir ánægðir í Bandaríkjunum yfir niður- stöðum réttarhaldanna í E1 Sal- vador, þar sem fimm hermenn voru sagðir einir um skipulagn-, ingu og framkvæmd morðsins á bandarísku nunnunum fjórum fyrir fimm árum. Talsmaður utanríkisráðuneytisins, John Hughes, sagði í gær, eftir að niðurstöður dómsins voru kunnar, að Bandaríkjamenn myndu halda áfram að kanna hvort hátt settir menn í E1 Salva- dor hafi ekki verið blandaðir í málið. Skýrsla sem utanríkis- ráðuneytið hefur látið gera, er sögð benda til þess að hátt settir menn í hernum hafi gert tilraun til að breiða yfir hlutdeild her- manna í morðinu. ■ Alþjóðaolympíunefndin gerði í gær lokatilraun til að fá ellefu sósíalísk ríki undir forystu Sovétríkjanna til að breyta þeirri ákvörðun sinni að senda ekki lið til Olympíuleikanna. Það tókst ekki en eftir fundinn tilkynntu Rúmenar þó að þeir myndu ekki fylgja fordæmi vopnabræðra sinna heldur myndu þeir senda lið til leikanna. Þessi mynd var tekin við upphaf fundarins sem var haldinn í Prag. Símamynd-POLFOTO Rúmenar taka þátt í Olympíuleikunum Genf-Reutcr. ■ Rúmenar tilkynntu í gær- kvöldi að þeir myndu taka þátt í Olympíuleikunum í Los Ange- les í sumar þótt hvorki Sovét- menn né flest önnur Austur- Evrópulönd sendi lið til leik- anna. Varaformaður Olympíu- nefndar Rúmena, Alexandru Siperco, sagði við fréttamenn í Genf í gær að Rúmenar hefðu tekið þátt í öllum Olympíu- leikum fram til þessa og þeir myndu því einnig senda lið til Olympíuleikanna nú í sumar. Alexandru Siperco er jafnframt einn af þremur varaformönnum Alþjóðaolympíunefndarinnar. Rúmenía er þannig eina fylgi- ríki Sovétríkjanna sem hefur ákveðið að taíca þátt í Olympíu- leikunum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Alþjóðaolym- píunefndinni ekki tekist að fá önnur sósíalísk ríki til að breyta ákvörðun sinni um að senda ekki lið til leikanna. Fundur Alþjóðaolympíu- nefndarinnar með fulltrúum sósíalískra ríkja, sem var hald- inn í gær í Prag, reyndist árang- urslaus. Framkvæmdastjóri nefndarinnar, frú Monique Berlioux, sagði eftir fundinn að eina góða fréttin af honum væri ákvörðun Rúmena um að taka þátt. Kína og Júgóslavía eru einu sósíalísku ríkin auk Rúmeníu sem tilkynnt hafa að þau ætli að taka þátt í Olympíuleikunum í Bandaríkjunum. Nú bíða menn spenntir eftir ákvörðun Norður- Kóreu en það er eina sósíalíska ríkið sem enn hefur ekki til- kynnt hvort það muni taka þátt. Föstudagur 25. maí 1984 29 ■ Þessir firnm hermenn voru í gær fundnir sekir um morðið á fjórum bandarískum nunnum í El Salvador árið 1980. Réttarhöldin fóru fram í smábænum Zacatecouca skammt frá þeim stað sem lík nunnanna fundust. Simamynd-i'oi.roro Nígería: Vill auka olíu- framleiðsluna Lagos-Reuter. ■ Sendinefnd frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum yfirgaf Níge- ríu án þess að samið væri um 2 milljarða dollara lán, sem ríkis- stjórnin hefur farið fram á að fá hjá sjóðnum. Ein aðalástæðan til þess að ekki var samið er sú, að daginn áður en sendinefndin kom, yfirgaf fjármálaráðherra Nígeríu landið svo og ráðuneyt- isstjóri fjármálaráðuneytisins. Sendinefndin dvaldi í viku- tíma í Lagos og ráðherrann og ráðuneytisstjórinn komu aðeins nokkrum klukkustundum áður en fulltrúar Alþjóðagjaldeyris-. sjóðsins fóru heim. Talið er að Nígeríumenn liafi viljað draga samningsviðræður um lánið, en vilja ekki afasala sér möguleika á að fá það. í júlí verður ráðherrafundur OPEC ríkja í Vín og þar munu Níge- ríumenn fara fram á að fá að auka olíuframleiðslukvóta sinn um 100 þúsund tunnur á dag, en nú er framleiðslan 1.3 milljónir tunna. Ef þeir fá að auka olíu- framleiðsluna uhi þetta magn mun það þýða eins milljarðs dollara hagnað á ári umfram það sem nú er og þýðir það að ef leyfið fæst þurfa Nígeríu- mennékki á láninu frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum að halda. Rússar njósna um Dani Kaupmannahöfn-Reuter. ■ Utanríkisráðuneytið í Danmörku sagði frá því í gær að tveir starfsmenn sovéska sendiráðsins hefðu verið reknir úr landi vegna ólöglegrar njósna- starísemi. Þeim var gefinn tveggja vikna frestur til að yfirgefa Danmörku. Utanríkis- ráðuneytið vildi ekki birta nöfn mannanna, en sagði að þeir hefðu starfað við verslunardeild sendiráðs- ins. Þeir eru ásakaðir um að hafa stundað iðnaðar- njósnir í Danmörku. Norðursjór: Deilt um síldar- kvóta Biussel-Reuter. ■ Sjávarútvegsráðherrar flestra Efnahagsbandalags- landanna hafa samþykkt að leyfa veiðar á 155 þúsund tonnum af Norðursjávarsíld á sumarvertíðinni í ár. Norðmenn hafa mótmælt þessu harðlega og segja að Efnahagsbandalagsríkin hafi ofveitt sem nemur 174 þúsund tonna magni af smásíld í fyrra. Bretaróttast að ef Norðmenn halda fast við mótmæli sín muni þeir takmarka mjög veiðar á þorski og ýsu á þeim svæð- um í Norðursjó sem heyra undir norska lögsögu. Því vilja Bretar fallast á að dreg- ið verði úr síldarkvótanum. ítalski fulltrúinn fylgir Norðmönnum. Norðmenn og Efnahags- bandalagið hafa haldið tvo fundi á þessu ári um síld- veiðikvóta í Norðursjó og telja Norðmenn hann alltof háan og mikil ofveiði eigi sér stað. í ár er lagt til að veidd verði 230 þúsund tonn af Norðursjávarsíld. Umsjón: Oddur Ólafsson og Ragnar Baldursson Chile: Stjórnarandstæðing- ur leitar verndar Santiago-Reuler. ■ Leiðtogi sósíaldemókrata- flokksins í Chile hefur leitað verndar í sendiráði Venezuela, að því er utanríkisráðherra landsins hefur upplýst. Hann segir að engin ákæra hafi verið gefin út á flóttamanninn og engin ástæða hafi verið fyrir hann að leita verndar. Starfsmaður í sendiráði Venesuela segir að Jorge Quin- zio, en svo heitir leiðtogi sósíal- demókrata, dvelji sem gestur í sendiráðinu. Talsmaður sósíaldemókrata- flokksins segir að lögreglan hafi um skeið fylgst með Quinzio og að leynilögreglumenn séu sífellt á hælum hans. Tvisvar hefur verið brotist inn á heimili Qu- inzio og öllu umturnað þar. Sósíaldemókrataflokkurinn í Chile hefur myndað bandalag með fjórum öðrum stjórnmála- flokkum, sem berst fyrir því að lýðræði verði endurreist í Chile, en herforingjastjórnin hefur stjórnað með harðri hendi þar í áratug. Samband stjórnarand- stöðuflokkanna viðurkennir ekki stjórnarskrána frá 1980, en þar er gert ráð fyrir að einhvers konar lýðræði verði komið á í Chile 1989 og gefur forsetanum möguleika á að sitja í valdastóli allt til 1997.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.