NT - 25.05.1984, Page 28

NT - 25.05.1984, Page 28
— Vonbrigði: Aðeíns óbeinar send* ingar frá ÓL í sumar ■ „Fyrst skal nefna tímamismuninn, 7-8 tímar, þannig að.viö yrð- um að senda út á nótt- unni“, sagði Hörður Vil- hjálmsson fjármálastjóri Útvarpsins er NT spurði hann hvort að beint sjónvarp yröi frá Ólympíu- leikunum í Los Angeles í sumar. „í öðru lagi yrði kostn- aðurinn gífurlegur, þarna yrði að hafa hafsjó af tæknimönnum og leggja í gífurlegan kostnað viö að ná þessu efni upp og koma því upp í fjarskiptahnött. Þá er þeirra sjónvarpskerfi annað en okkar og það þyrfti að útvega sérstakt tæki „converter" til þess að koma útsendingunni yfir á evrópska kerfið". í stað þessa munum við eins og síðast hafa mann hjá danska sjónvarpinu sem tekur efnið upp á myndband og síðan verð- ur flogið með það heim. Þá ættu íslenskir áhorl'- endur að geta séð atburöi daginn eftir að þeir eiga sér stað“. HRINGDU ÞÁ í SÍMA 8-65-38 Vid tökum við ábendingum um ffréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur ffyrir hverfa ábendingu sem leiðir til fráttar í bladinu og 10.000 krónur ffyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fráttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gaett N "JP. .£? ■ Nei!!....hvert þó í logandi. NT-mynd Ari. Landbúnaðarráðherra er tilbúinn til samninga - þrátt fyrir „hótunarbréf“ kaupmanna í gær ■ Landbúnaðarráðherra er enn tibúinn til samninga við matvörukaupmenn, þrátt fyrir bréf þeirra í gær, sem ráðherr- ann segir að nánast megi skoða sem „hótun um að brjóta niður gildandi skipulag". „Við óskuðum eftir því“, sagði Jón Helgason, við NT í gærkvöldi, „að þeir létu okkur í té upplýsingar um það, hvað mikið þeir vildu flytja inn, til þess að við gætum tekið tillit til þeirra óska, en því höfnuðu þeir“. Kaupmenn segja meðal ann- ars í bréfi sínu, að þeir muni „halda áfram innflutningi svo sem verið hefur“ og að þeir hafi „þegar undirbúið samstarf við íslenska kartöflubændur um sölu á uppskeru þeirra á næsta hausti“. Landbúnaðarráðherra sagði þetta hvort tveggja í andstöðu við gildandi lög og ef kaupmenn hygðust brjóta gegn gildandi lögum, eins og virtist mega lesa út úr bréfinu, lægju að sjálf- sögðu viðurlög við slíku. Ráðherrra kvað þó ekki standa á ráðuneytinu að ræða þessi mál við kaupmenn, það hefði frá upphafi verið meining ráðuneytisins að koma til móts við þær óskir sem fram kæmu, eftir því sem unnt væri, án þess að skapa ringulreið. Jón kvaðst aldrei hafa ætlað sér „í neitt stríð“ við kaupmenn og sagðist telja vænlegra til árangurs að menn settust niður og ræddu málin, heldur en þær „bréfaskriftir í fjölmiðlum“, sem kaupmenn hefðu valið. Norræna húsið: Öde- gárd for- stöðu- maður ■ Á fundi stjórnar Nor- rænahússins, sem haldinn var í Færeyjum í gær, var ákveðið að mæla með því að Knud Ödegárd, ljóðskáld, verði næsti for- stöðumaður Norræna hússins í Reykjavík. Sjö- tíu umsækjendur voru um stöðuna. Formlega er það Norræna ráðherranefnd- in, sem ræður í stöðuna, en talið er næsta víst að hún staðfesti val stjórnar- innar. Það verður gert á fundi nefndarinnar 12.-13. júní næst komandi. Knud Ödegárd tekur við rekstri hússins þann !. nóvember næst komandi og mun hafa stjórn þess með höndum næstu fjögur árin. Guð- laugur Þorvaldsson, form- aður stjórnar hússins, sagði í samtali við NT í gærkvöldi að hagur húss- ins væri nokkuð góður nú þegar Ann Sandelin lætur af störfum og bar hann mikið lofsorð á störf henn- ar undanfarin ár. Hann sagði að erfitt hefði verið að velja úr hópi hinna mörgu umsækjenda en sagði að niðurstaðan hefði verið einróma. Annar um- sækjandi, sem sterklega kom til greina var Njörð- ur P. Njarðvík. Knut Ödegáard, næsti forstöðu- maður Norræna hússins, er kvæntur Þorgerði Ing- ólfsdóttur, kórstjóra. Neitar að aka 100 kílómetra krók með áburðinn ■ Núeftiraðbúiðeraðlétta þungatakmörkunum af flest- um vegum á Suðurlandi, stöðva þeir ennþá umferð um Grímsnesið þannig að vegal- engdin sem fara þarf með áburðinn verður allt að 100 kílómetrum lengri,“ sagði Jón Ingileifsson, vöruflutningabíl- stjóri úr Grímsnesinu, en í vikunni var hann stöðvaður af lögreglunni þegar hann ætlaði á bíl sínum frá Selfossi upp Grímsnes. Jón hefur nú í mótmætaskyni kyrrsett bifreið sína á plani vegagerðarinnar á Selfossi. Þar hefur hún staðið frá því um miðja vikuna. Að sögn Jóns vantaði ekki nema nokkur hlöss í veginn á einum stað til þess að hægt væri að opna hann á sama tíma og aðra aðalvegi um Suðurlandsundir- lendi. Að vonum kemur þessi lokun sé illa þar eð áburðar- flutningar til bænda erunú t fullum gangi. Leiðin, sem Jón þarf að fara frá Selfossi og t Grímsnesið, er upp Skeið og allar Tungur, niður hjá Múla, út Hlíðar og niður hjá Laugar- vatni. Sú leið ér eitthvað um eða yfir 110 kílómetrar á með- an ekki eru nema nokkrir kílómetrar frá Selfossi að hreppamörkum sveitarinnar. Hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi fengust þær upplýs- ingar að vegir í Grímsnesi yrðu yfirleitt seinna færir en aðrir vegir vegna rauðamalar- innar, en frost fer seinna úr slíkum vegum. Heimildarmað- ur NT hjá vegagerðinni taldi ekki að vörubifreið Jóns hefði getað farið upp sveitina með fullt hlass án þess að valda þar verulegum spjöllum. Öxul- þungatakmörkun á veginum miðast við 7 tonn en þann þunga ber hálfhlaðinn vörubíll með áburði. ■ Jón Ingileifsson hefur kyrrsett bifreið sína fullhlaðna túnáburði, sem bændur bíða eftir, til þess að mótmæla þungatakmörkun á Grímsnesveginum. NT mynd Sig. Sigurjúnsson.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.