NT - 04.06.1984, Qupperneq 14
Mánudagur 4. júní 1984 14
Breskir fata-
hönnuðir
hafa
áhyggjur:
■fl QCO ■ 1952 Elizabeth 26 ára og nýorðin drottning, en
I þá voru hattar ekki orðnir neitt vandamál fyrir hana,
því hin unga drottning var oftast berhöfðuð.
Eru hattar
drottningar
ekki al-breskir?
1984
■ 1984 Þrjátíu og tveimur árum seinna sést drol
framleidd í Bretlandi, - því annars verða fataframle
* Kjóllinn er ekki síður fall-
egur að aftan en framan
■ „Ég hef alltaf sóst eftir því
að vera miðpunktur athyglinn-
ar,“ segir Maria Conchita
Alonso, og nú virðist 'draumur
hennar vera að rætast fyrir al-
vöru. Hún hefur fengið aðal-
hlutverk í kvikmyndinni Mos-
cow on the Hudson og leikur
þar á móti Robin Williams.
Maria Conchita á fjölskrúð-
ugan feril að baki. Fimm ára
gömu! fluttist hún frá dýrðarríki
Castros á Kúbu ásamt foreldr-
um sínum og tveim eldri
bræðrum. Ákvörðunarstaður
var Caracas í Venezúela og þar
skyldi hefja nýtt líf með
aleiguna, 500 dollara að veði.
Fjölskyldan var framsækin í
besta lagi og innan tveggja ára
var hún búin að koma vel undir
sig fótunum með rekstri heilsu-
hælis. En Maria var metnaðar-
gjörn og hún setti markið hærra
en að vera bara dóttir efnaðs
innflytjanda í Venezúela. Hún
vann titilinn Ungfrú táningur
heimsins 1971 og fjórum árum
seinna varð hún Ungfrú Vene-
zúela. Þá fór hún að leika í
vinsælum framhaldsþáttum í
sjónvarpi þar í landi og hafði
það af að gefa út 4 diskóalbúm,
2 þeirra seldust í svo stóru
upplagi í Venezúela, að hún
hjaut gull fyrir. Enn var frama-
þrá Mariu Conchitu ekki
fullnægt, hún vildi leggja allan
heiminn að fótum sér og lagði
því leið sína til Bandaríkjanna
fyrir tveim árum.
Nú er Maria Conchita 27 ára
gömul. Hún var valin úr hópi
100 stúlkna til að fara með
hlutverk innflytjandastúlku í
fyrrnefndri kvikmynd, en sagt
er að stúlkur frá rómönsku
Ameríku eigi yfirleitt erfitt upp-
dráttar í Hollywood. „Maria
Conchita hefur styrk Sophiu
Loren til að bera og líf og fjör
Carmen Miranda,11 segir leik-"
stjórinn Paul Mazursky, sem er
viss í sinni sök að hann hafi
valið rétt.
London-Kculer:
■ Fatahönnuðir í Bretlandi
hafa nú stórar áhyggjur út af
því, að hattar Elizabethar
drottningar eru sagðir vera
ekki að fullu breskir! Samband
breskra klæðskera og fata^
framleiðenda tilkynnti,
að það hefði skrifað drottn-
ingu bréf, eftir að komið
hefði fram á blaðamannafundi,
að hinn konunglegi tískuvöru-
sali (aðall. hatta) Frederick
Fox, léti framleiða hatta eftir
sínum fyrirmælum og teikning-
um erlendis í Frakklandi eða
Ítalíu.
„Við vonum fastlega að
drottningin muni framvegis
styðja framleiðslu okkar
lands“, sagði talsmaður Sam-
bands breskra fataframleið-
enda.
Fox er einn af mörgum kon-
unglegum hattahönnuðum, og
er hann var spurður um sann-
leiksgildi fréttarinnar um fram-
leiðsluland hattanna, sagði
hann, að trélíkönin, sem
hann notar við að búa til
hattana, væru gerð í
Ítalíu og Frakklandi,
- en hann neitaði
að hattar hans væru framleidd-
ir erlendis.
Talsmaður hirðarinnar
sagði, að drottningin, - sem
sjaldnast sést úti án höfuðfats
- ætti viðskipti við marga
hattaframleiðendur, og þeir
væru yfirleitt breskir, en
reyndar væri Fox frá Ástralíu
- en það væri nú breskt sam-
veldisland. Hvar hattafram-
leiðendurnir létu svo gera
hatta sína væri þeirra mál,
sagði hirðmaðurinn.
■ Tískuteiknarinn Wendy
Mandy hefur hér gert kjól, sem
áreiðanlega vekur athygli. Hún
Wendy notar í búning þennan,
svartar sokkabuxur með svörtum
knipplingatoppi sem er fleginn í
bakið (samfestingur). Utanyfir er
svo knipplingapils - með engu
undirpilsi. í kjólnum eru ekta
Bali-knipplingar og er hann mjög
glæsilegur, og þykir alveg tilvalinn
til að nota í danskeppni eða í
öðrum sýningum, þar sem fallegir
fótleggir þurfa að fá að njóta sín.
Það er auð-
velt að sjá
í gegnum hana!