NT - 08.06.1984, Blaðsíða 7

NT - 08.06.1984, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. júní 1984 ÁBÓT NTskoðarfomarslóðir í miðborg Reykjavíkur: „Ævintýri a gönguferð“ - Perlur Rey kj avíkur - Eða bara fúaspýtur 1 Hafnarstræti 1-3 - FALKAHUSIÐ ■ Hversu oft leggjum við ekki leið okkar um miðbæ Reykjavíkur, hvort sem það er með strætó úr Breiðholtinu til vinnu, eða til að spóka sig í mannlífinu. En ætli margir renni hugan- um til húsanna, sem þeir stika framhjá í annríki hvunndags- ins? Húsin eru svo sjálfsögð þar sem þau standa, lítil og stór, gömul og ný. Hvernig væri að „skreppa í bæinn“ án erinda í banka, sleppa búða- rápi, en leiða hugann að sögu og fortíð hinna fáu, en fallegu, gömlu húsa, sem byggð voru á þeim árum, þegar aðeins hundruð, eða fáein þúsund manns bjuggu í höfuðstað landsins. Blaðamaður NT brá sér einn sólríkan, svalan maídag, í fylgd eins safnvarðar Árbæjar- safnsins í skoðunarferð um bæinn, og sýnir kortið, hvert ferðir okkar lágu. Blaðamanni fannst gangan vera sann- kölluð skemmtiganga, enda um margt að fræðast á leið- inni, og oft staldrað við og skoðað það sem fyrir augu bar. Þess var hins vegar saknað, að óvíða var hægt að tylla sér á bekk eða grasflöt, og endaði gönguferðin á kaffi- húsi, yfir tebolla og kökusneið, og rabbi um hin fornu tún. Meðfylgjandi texti byggist að verulegu leyti á Reykjavík- urkafla Páls Líndals í bókinni „Landið þitt ísland". Þeir sem fýsir að fræðast meira um sögu og fortíð Reykjavíkur, verða ekki sviknir af lestri þeirrar bókar, eða af bókum Arna Öla um gömlu Reykjavík. Þá skal einnig vakin athygli á hinum bráðskemmtilegu bókum Hendriks Ottóssonar, „Frá Hlíðarhúsum til Bjarma- lands“, og bókunum um Gvend Jóns. Lýsir höfundur í þessum endurminningum sín- um hinum gamla vesturbæ um aldamótin síðustu. Öldum saman var það ein af skyldum íslendinga við kon- ung sinn að sjá honum fyrir veiðifálkum. Þóttu íslenskir fálkar hinir mestu kjörgripir, og notaði konungurfálka til gjafa. Hvítir fálkar veiddust aðeins á íslandi, og joeir þóttu öðrum fálkum glæsilegri. Fálkahúsið, sem upphaflega stóð á Bessa- stöðum, var flutt til Reykjavik- ur árið 1763. Voru fálkarnir geymdir í húsinu meðan þeir biðu útflutnings. Eftir aldamót- in 1800 lagðist þessi útflutn- ingur niður og var húsið selt. Það var síðan innréttað til verslunar. Árið 1868 lét eig- andinn, N.Chr: Havsteen kaupmaður rífa gamla Fálka- húsið og reisa þarna nýtt versl- unarhús, sem siðan var talin einhver laglegasta búðin í bænum. Um 1880 eignaðist Brydesverslun húsið, og var þá gengið frá því í núverandi mynd. A þak miðhússins var sett líkan af víkingaskipi, en á stafnanafjóra, útskornirfálkar. OKKAR VERÐ ERU ATHYGLIS - VERÐ Aflangt form kr. 65-69 Aflangt form mynstrað kr. 79 Hringlaga form kr. 160 Mynstur form hringlaga kr. 87 Hringlaga stórt form kr. 56 Svartar pönnur emeleraðar 22 cm. kr. 394 Svartar pönnur emeleraðar 24 cm. kr. 469 Svartar pönnur emeleraðar 28 cm. kr. 521 Svartir emeleraðir pottar 2 Itr. kr. 575 Svartir emeleraðir pottar 3 Itr. kr. 714 Svartir emeleraðir pottar 4 Itr. kr. 844 Ofnbakkar emeleraðir 3 stærðir kr. 475-541 -613 Servettur 20 stk. pk. kr. 36 Kerti kr. 11 pr. stk. Tertuhjálmur kr. 76 Tertuspaði kr. 182 Hitakanna kr. 397 Rjómasprauta m/patrónu Vi Itr. kr. 710 Klappstóll fivítur-rauður-brúnnkr. 378 Veggljós 4 litir kr. 265 SENDUM í PÓSTKRÖFU SÍMI: 686112 Vörumarkaðurinn hf. ÁRMÚLA 1A, REYKJAVÍK. Kommóður furufilma 4 skúffur breidd 75 cm. kr. 1990 4 skúffur breidd 75 cm. kr. 2595 4 stólar + 4 litlar skúffur breidd 75 cm. kr. 2929 Vaxbornir kassar kr. 79 - 86

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.