NT


NT - 15.06.1984, Síða 6

NT - 15.06.1984, Síða 6
 Vonair vegir - Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri, skrifar ■ Hákon Sigurgrímsson Mikil er gleði okkar yfir þeirri iippbyggingu þjóðvega landsins sem nú er hafin. Gleðin vex með hverjum kílómetranum sem lagður er varanlegu slitlagi og innan fárra ára eygjum við það að geta ekið á sléttum vegum hringinn í kringum landið. Fátt er það á sviði opinberra framkvæmda hin síðari ár sem skiptir hinn almenna borgara og bíleiganda jafn miklu og þessi vegagerð og fátt er það sem gerir okkur enn sáttari við að bua í okkar ágæta landi en þessar framkvæmdir. Hinir vegirnir En til eru aðrir vegir sem ekki ríkir jafn mikil ánægja með. Þaö er hinn hluti þjóðvegakerf- isins, hliðarvegirnir sem liggja út um sveitir landsins. Sumir þessara vega rekja aldur sinn til þess tíma þegar bændur hópuðust saman með skóflur sínar og hestvagna, stungu kekki í mýrinni og hlóðu upp vegg. Ar eftir ár stunduðu menn þessa iðju og alltaf lengdist vegurinn um fáeina kílómetra á ári og smám saman fjölgaði bæjunum sem komust í vega- samband. Á stríðsárunum komu svo jarðýturnar og þá fór þetta að ganga greiðar. Þá var farið að nota jarðýtur til þess að ýta upp moldarhrygg sem síðan var sléttaður og borið ofan í eða þá að rudd var slóð og ofan- íburði ekið í. Þannig hafa flestir sveitavegir okkar lands orðið til a.m.k. í lágsveitum sunnanlands. Þeir eru flestir í raun aðeins moldar- hryggir með örþunnu malarlagi. „Tilkynning frá vegamálastjóra“ Hver kannast ekki við þessi Föstudagur 15. júní 1984 6 orð úr útvarpsauglýsingum á vorin. Hinn eða þessi vegurinn lokaður vegna aurbleytu eða að öxulþungi takmarkaður við fá- ein tonn. Það er orðinn árviss viðburður að stór hluti þessa „vegakerfis" sé ófær að vorinu vegna aurbleytu, þegar frost fer úr jörðu. Malarlagið er fokið í burt eða sokkið ofan í moldina og vegheflarnir skafa orðið niður í bera moldina. Aldrei hefur þetta verið verra en í vor. Heita má að flestir hliðarvegir í lágsveitum sunnan- lands og vestan hafi verið ófærir um nokkurra vikna skeið. Menn komust varla frá bæ, aflýsa þurfti mannfundum, með herkj- um var hægt að sækja mjólkina og flytja fóður og áburðarflutn- ingar töfðust. Til dæmis hafa ýmsir vegir í Flóanum verið að heita má ófærir á þriðja mánuð og öxul- þungi takmarkaður við 5 tonn. Þrátt fyrir hagstæða tíð undan- farnar tvær vikur eru sumir þessara vega tæpast akfærir venjulegum bílum ennþá. Af þessu er hinn mesti ami og tjón fyrir fólkið sem í hlut á. Það hefur tafist að menn gætu borið á túnin, framkvæmdum hefur seinkað og varla þarf að lýsa ástandi þeirra bíla sem reynt hefur verið að aka um þessa vegi í vor. Bændur eru ekki sífrunar- samir menn en nú hygg ég að þolinmæði þeirra sé á þrotum. Hvers vegna er þetta svona? Eins og áður er lýst eru margir þessara vega komnir til ára sinna og miðaðir við allt aðrar Æðarræktarfélag íslands: Full þörf er á aðleggja nið- ur allar stríðsyfirlýsingar og að velviljaðir menn setji reglur um það hvernig arnarstofninn skuli verndaður án þess að það bitni á æðarvarpinu ■ Nú stendur yfir varptími hjá íslenskum fuglum, og mikið um dýrðir í náttúrunnar ríki. Væntanlega munu nokkuð á annað hundrað þúsund æðar- hjón hreiðra sig í eyjum og á vernduðum svæðum, viðsvegar um strendur landsins á þessu vori. Dúnninn úr hreiðrum þeirra verður hirtur, og hreins- aður. Mun hann seljast án allra styrkja á 16-20 milljónir króna á erlendum mörkuðum. Hann er eftirsóttur og í hærra verði en allur annar dúnn, enda hafa íslenskir varpbændur iagt alúð við dúnframleiðsluna og æðar- rækt um tveggja alda skeið. Tvímælalaust hafa nytjar af æðarvarpi hamlað gegn byggð- areyðingu í sumum afskekktum sveitum og gætu gert það áfram, ekki síst ef áhugamönnum tekst að auka æðarvarp á ný. Það sýnist því allfurðulegt að í seinni tíð virðast ýmsir liafa mikla andúð á viðleitni æðar- ræktarmanna og reyna að setja fótinn fyrir hana. Þetta hefur jafnvel snúist upp í beinan áróður gegn æðarfugli, þar sem menn lýsa þcirri von sinni að dúnn verði óseljanlegur sem fyrst, svo hætt verði að vernda æðarfugl. Vandamál þeirra sem vilja viðhalda æðarvarpi og efla það eru margvísleg. Má þar einkum nefna tilkomu minksins og mikla fjölgun vargfugls. Víða hafa þau meindýr eytt æðarvarpi og öðru fuglalífi, ýmist að hluta eða að fullu á svæðum þar sem blómlegt varp var áður. Hvort tveggja er að þau eru sum hver afar sólgin í æðarungana og halda þannig stofninum niðri og önnur leggjast á varpstöðvar fuglsins og eyðileggja þær. Varpbændur hafa því löngum orðið að vernda æðarfuglinn, m.a. með fækkun vargdýra, þegar annað dugar ekki. Scm dæmi má nefna að á seinni árum hefurfjölgun hrafns leitt til þess að flokkar af honum hafa oft og víða lagst á varplönd og herjað með slíkum látum að engu er eirt. Mjög erfitt og jafnvel útilokað getur reynst að skakka þann leik nema með svefnlyfi. Með því að láta það í egg í varplandinu hefur tekist að svæfa hrafn hópum saman og aflífa síðan og verður það til þess að slíkir vargflokkar forð- ast svæðið á eftir. Fátt yrði um varnir ef ekki mætti nota lyf á þennan hátt, því hrafninn lærir fjótt að varast skotvopn. Á sama hátt leggst svartbakur frá svæðum þar sem svefnlyf hefur verið notað. Fullyrðingar um gagnleysi þess að nota lyfið við verndun varplanda eru því ekki á rökum reistar. Bent skal á að eyðing varps er ekki bundin við ■ ...„Með því að láta svefnlyf í egg í varplandinu hefur tekist að svæfa hrafn hópum saman og aflífa síðan og verður það til þess að slíkir vargflokkar forðast svæðið á eftir...“ ■ Æðarkolla á ungum

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.