NT - 15.06.1984, Page 7

NT - 15.06.1984, Page 7
Vettvangur aðstæður en nú eru. Pegar þeir voru byggðir voru aðeins örfáir bílar til í hverri sveit, eins og hálfs til tveggja tonna vörubílar voru algengastir og mjólkurbíl- arnir voru tveggja og hálfs tonns. Flutningabílarnir sem dag- lega aka um þessa vegi nú flytja 10-15 tonn og umferðinni er ekki hægt að jafna saman. ís- lendingar munu vera ein bílrík- asta þjóð í heimi. Áður fyrr voru flestir þessara vega í umsjá sýslufélaganna en seint á sjöunda áratugnum tók ríkið við umsjá þeirra. Menn vonuðu að þá kæmi betri tíð og viðhald veganna myndi skána en það finnst mörgum hafa brugðist. Að vísu hafa ýmsar lagfæring- ar verið gerðar, en mjög víða er umhirðu veganna sárlega áfátt eins og að framan er lýst. Átaks er þörf Þótt öll viljum við að slitlagið á hringveginum haldi áfram að lengjast má ekki vanrækja aðra hluta þjóðvegakerfisins. Varla verður lengur undan því vikist að gera stórátak í að lagfæra þá vegi sem verst eru farnir. Við þéttbýlisbúar sem fár- umst yfir minnstu ójöfnu í mal- bikuðum götunum okkar, megum gjarnan hugleiða að- stöðu þess fólks sem í strjálbýl- inu býr. Enda þótt vegirnir séu ekki sem verstir á sumrin þegar við skreppum í sveitina á sunnu-. dögum þarf sveitafólkið að búa við þá hálf ófæra mikinn hluta ársins, ýmist af snjó eða aur- bleytu. ■ Bændur í Flóanum bjarga ein- um fóðurbflnum upp úr hvarfi. Myndimar er teknar um 20. maí í vor. Ljósm. GÍ Það tilheyrir sjálfsögðum mannréttindum að hafa nothæfa vegi og er raunar undirstaða þess að fólk geti búið við sæmi- legt öryggi. Við ættum líka að hafa það í huga að þetta vegakerfi er ein undirstaða þess að við getum daglega fengið ferska mjólk og mjólkurvörur og notið annarrar þjónustu sem sveitirnar veita. ■ Æðarfugl í Hafnarfjarðarhófn eitt ár, afleiðing hennar nær til margra næstu ára, og getur líka orðið algjör og óbætanleg. Þó að notkun lyfja og eitur- efna sé eitt áhrifaríkasta ráðið til að verjast vargfugli er notkun þeirra varasöm. Því ætti trúlega ekki að leyfa meðferð þeirra öðrum en trúnaðarmönnum sem kunna með þau að fara. Æðarræktarmenn eru ekki mót- fallnir reglum um síkt. Á þann hátt mætti nota lyfin án áhættu, enda mun slíkt vera gert erlend- is af mönnum sem bera náttúru- vernd fyrir brjósti. Varpeigendur og aðrir æðar- ræktarmenn óska ekki eftir, frekar en aðrir landsmenn að hafarnarstofninn deyi út. Þeir telja hins vegar ósanngjarnt og þarflaust að fórna verðmætum landsnytjum til að koma í veg fyrir það. Því miður getur örn orðið mikill skaðvaldur í æðarvarpi og eru næg dæmi um stórtjón af hans völdum, og sum nærtæk. Reynt hefur verið að setja lög um það hvernig koma megi í veg fyrir slíkt tjón. Málsvarar arnarins brugðust illa við því og af mikilli óbilgirni. Þeir hafa kosið að reka áróður gegn þeim sem fyrir tjóninu verða, í stað þess að ræða málin og finna á þeim lausn. Hætt er við að slík afstaða sé tvíeggjuð og kunni að bitna á því sem verið er að verja. E.t.v. á hún einhvern þátt í að: „á undanförnum árum hafa fundist 6-7 sjórekin hræ af ungum haförnum" eins og segir í nýbirtum yfirlýsingum. Auðvitað þarf þó ekki að vera að dauði þeirra sé á nokk- urn hátt af mannavöldum, þar sem ernir geta farist af ýmsum orsökum, ekki síður en önnur dýr. Full þörf er á að leggja niður allar stríðsyfirlýsingar og að vel- viljaðir menn setji reglur um það hvernig arnarstofninn skuli verndaður án þess að það bitni á æðarvarpinu. Þá ágætu og verðmætu bú- grein eigum við ekki að van- rækja heldur efla sem mest og stuðla að áframhaldandi forystu íslendinga á dúnframleiðslu, á sem myndarlegastan hátt. Æðarræktarfélag íslands. Föstudagur 15. júní 1984 iV>T Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórarinn Þórarinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 686387 og 686306. Verð í lausasölu 25 kr. Áskrift 275 kr. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent hf. Framkvæmda er þörf ■ Á undanförnum misserum hefur átt sér stað á íslandi öfgafull umræða um landbúnaðarmál bæði í fjölmiðlum, meðal almennings og jafnvel á hinu háa Alþingi. Þessi umræða hefur oft einkennst af einföldun, vankunnáttu og skilningsleysi á málefn- um landbúnaðarins eins og NT hefur oft áður bent á. Til viðbótar má benda á, að íslenskir bændur og landbúnaður þeirra á sér marga sterka andstæð- inga, sem hafa einskis svifist til aðrægjalandbúnað- inn og þá, sem tengjast honum mest, með margvíslegum aðferðum. Þessir aðilar hafa beitt auðskiljanlegum gagnrýnisslagorðum, sem hinn almenni borgari á létt með að móttaka og því hefur áróðurinn gegn landbúnaðinum óneitanlega hlotið hljómgrunn. Staðreyndin er hins vegar, að landbúnaðarmál eru mjög flókin í eðli sínu og því verður málflutn- ingur forsvarsmanna landbúnaðarins óhjákvæmi- lega oft of ítarlegur, þannig að hinn almenni borgari á erfiðara um vik en ella að setja sig vel inn í málið. Til er þó eitt mjög mikilvægt atriði, sem andstæðingar íslensks landbúnaðar hafa viljandi vanrækt að nefna í áróðri sínum, þrátt fyrir að það hafi grundvallarþýðingu í allri umræðu um sam- drátt í landbúnaðarframleiðslu. Það er sú einfalda staðreynd, að landbúnaðarframleiðsla snertir þús- undir annarra fjölskylda en þeirra, sem starfa beinlínis að sjálfri landbúnaðarframleiðslunni. Hér er átt við alla þá, sem vinna við þjónustustörf kringum landbúnaðinn, ekki aðeins úti á lands- byggðinni heldur einnig á Reykjavíkursvæðinu. Óhætt er að fullyrða, að allir á þessu svæði kannast við einhvern, sem kemur nálægt landbúnaðarfram- leiðslu á einhvern hátt, beinan eða óbeinan. Þeir, sem styðja þær furðulegu raddir, er krefjast frjáls innflutnings á landbúnaðarvörum ættu að íhuga betur þær gífurlegu afleiðingar, sem slík aðgerð myndi hafa á atvinnuhorfur þúsunda íslendinga. Hver á ekki vin eða kunningja, sem starfar við eitthvað er tengist þj ónustu við landbún- aðinn? Vilja menn virkilega setja störf þeirra í hættu með því að þóknast heildsalaöflunum með því að leyfa innflutning á erlendum landbúnaðar- vörum, eins og markaðshyggjumennirnir í Sjálf- stæðisflokknum vilja? Það er yfirlýst skoðun NT, að jafnhliða sam- drætti í framleiðslu hefðbundinna landbúnaðar- vara, eigi að vinna skipulega að uppbyggingu annarrar framleiðslu í byggðum landsins. Þessi samdráttur er þegar kominn til sögunnar og almenningur gerir sér ef til vill ekki grein fyrir þeirri staðreynd, að hann er verulegur bæði hvað varðar mjólk og sauðfé. En hitt verður að segjast, að þessum samdrætti hefur ekki verið fylgt eftir með uppbyggingu nýrra búgreina. Stjórnvöld sem aðrir tala mikið og endalaust um loðdýrarækt og fiskeldi og er nú svo komið að menn eru orðnir þreyttir á öllu þessu tali um nýjar búgreinar meðan ekkert skipulegt er framkvæmt. Kominn er tími til að hætta að tala og fara að framkvæma.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.