NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 15.06.1984, Qupperneq 8

NT - 15.06.1984, Qupperneq 8
Jón Árnason Föstudagur IS.júni 1984 ' 8 Colcíus. Ingvar Grétarsson leikur á gítar og spilar í Rokk- bandinu. Sjálfur sér Siggi Helgi um söng og bassaleik o.fl. Lögin er flest eftir hann, einnig nokkrir textar. Af lögum á plötunni má nefna „Eiginkona“, „Lífið“, og „Tvöfaldur brennivín í kók“. Jón Árnason nefnist harm- onikkuleikari, og gefur Stúdíó Bimbó út plötuna Kleifaball með honum. Jón er fæddur á Syðri Á á Kleifum við Ólafs- fjörð árið 1928. 12 ára fór Jón að spila á harmonikku, og fljótlega fór hann að spila fyrir dansi, einn og með öðrum og síðan í hljómsveitum. Jón spil- ar ekki eftir nótum en hefur Sigurður Helgi Jóhannsso Eövarð F. Vilhjálinsson ■ Á næstunni mun Studio Bimbo senda frá sér fjórar hljómplötur. Stúdíó Bimbo er á Akureyri og er í eigu Pálma Guðmundssonar. Fyrsta platan heitir Feti framar og er með Sigga Helga, eða Sigurði Helga Jóhanns- syni. Þetta er fyrsta plata hans. Siggi Helgi söng með hljóm- sveitinni Casanova frá Kefla- vík um skeið. Hann hefur nú fengið í lið með sér þekkta hljóðfæraleikara til að leika undir á plötunni. Það ber fyrst að nefna Sigfús Óttarsson úr Bara-flokknum. Kristján Guðmundsson leikur á hljómborð, og hefur áður spil- að með Póker, Haukum og engu að síður verið undirleik- ari og leitt söng hjá félags- samtökum á Ólafsfirði. Á plöt- unni, sem hefur að geyma valsa, polka, tangó, ræl o.fl. leika þeir Einar G. Jónsson á trommur, Ingvar Grétarsson á gítar og Grímur Sigurðsson á bassa. Einar hefur leikið með ýmsum þekktum hljóm- sveitum eins og K.K. Sextett, og hljómsveit Jóns Sigurðsson- ar,ogGrímurhefurm.a. leikið með Ingimar Eydal, Ragnari Bjarnasyni, Örvari Kristjáns- syni. Tvófeldm nefmst plata sem Eðvarð F. Vilhjálmsson frá Keflavík leikur og syngur á. Hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum, þ.á.m. Box, Kjarnorkublúsurum og Qtsí Qtsí. Á þessari plötu leikur hann á öll hljóðfærin sjálfur - bassagítar, trommur, hljómborð, gítar og syngur einnig. Á plötunni eru 8 lög, öll eftir hann sjálfan. Tónlist Eðvarðs er sögð flokkast undir svipaða stefnu og hjá Bara- flokknum, Dire Straits o.fl. Þetta er í fyrsta sinn hér á landi svo vitað sé að einn og sami maður leiki inn á plötu og spili allt sjálfur. Síðast en ekki síst er það svo sjálfur Hallbjörn Hjartarson frá Skagaströnd sem verður með plötu á Stúdíó Bimbó-út- gafunm. Nefmst hún Kantrý 3. Á þessari plötu er einfaldleik- inn allsráðandi. Fá hljóðfæri eru notuð til að ná fram sem best ekta kántrý-stíl. Gítar. fiðla, bassi og trommur eru uppistaðan. Hluti upptökunn- ar fór fram undir berum himni. Útsetningarnar eru eftir Snorra Guðvarðsson, en hann sá um allan gítarleik á plötunni ásamt því að spila á slagverk og radda. Með honum leika þeir Mattías Henriksson á trommur, Kristján Jónsson á bassa, Michael Clark á fiðlu og Ingimar Eydal á hljómborð. Lögin eru flest eftir Hallbjörn, og upptakan fór fram á Akur- eyri dagana 14.-22. maí.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.