NT - 15.06.1984, Page 10

NT - 15.06.1984, Page 10
Notaðir Voivo bílar Volvo 244 dl árg 1983 sjálfskiptur meö vökvastýri, ekinn 11.000. Verð: 465.000. Ath. skipti á ódýrari Volvo. Volvo 244 gl árg. 1982 sjálfskiptur meö vökvastýri, ekinn 35.000. Verö: 435.000 Volvo 244 dl árg. 1982 sjálfskiptúr meö vökvstýri, ekinn 19.000. Verö: 410.000. Ath. skipti möguleg. Volvo 244 gl árg. 1981 sjálfskiptur meó vökvastýri, ekinn 59.000. Verö: 390.000. Bíll meö fjölda aukahluta. Ath. skipti möguleg. Volvo 244 dl árg. 1981 sjálfskiptur meö vökvstýri, ekinn 97.000. Verö: 355.000. Ath. skipti möguleg. Volvo 244 gl árg. 1980 beinskiptur meö vökvastýri, ekinn 65.000. Verð: 320.000. Volvo 244 gl árg. 1980 sjálfskiptur með vökvastýri, ekinn 40.000. Verö: 320.000. Volvo 244 dl árg. 1980 beinskiptur meö vökvastýri, ekinn 46.000. Verð: 280.000. Volvo 244 dl árg. 1979 beinskiptur með vökvastýri, ekinn 88.000. Verö: 265.000. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 244 dl árg. 1979 beinskiptur með vökvastýri, ekinn 61.000. Verð: 250.000. Volvo 244 dl árg. 1978 beinskiptur, ekinn 50.000. Verö: 225.000. Ath. yngri Volvo. Volvo 244 dl árg. 1978 sjálfskiptur, ekinn 88.000. Verö 225.000. Volvo 244 dl árg. 1977 beinskiptur, ekinn 100.000. Verð: 170.000. Volvo 245 gl árg. 1982 sjálfskiptur með vökvastýri, ekinn 37.000. Verö: 400.000. Bíll meöfjölda aukahluta. Volvo 245 gl árg. 1980 sjálfskiptur með vökvastýri, ekinn 95.000. Verð: 360.000. Volvo 245 gl árg. 1979 beinskiptur meö vökvastýri, ekinn 89.000. Verö: 275.000. Volvo 345 gls árg. 1982 beinskiptur, ekinn 20.000. Verð: 320.000. Volvo 345 dl árg. 1982 beinskiptur, ekinn 29.000. Verð: 280.000. Volvo 343 dl árg. 1979 sjálfskiptur, ekinn 70.000. Verð: 170.000. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 Okkur vantar úrval notaðra bíla á söluskrá. Bílasala Baldurs Eyrarvegi 14 Sauðárkróki Sími: 95-5935 ■ Matra-Renault Espace. Myndina tók Hans Lehmann, Þjóðverji sem lifir á því að ná mvndum fyrir blöð og tímarit af nýjum bílum sem ekki má mynda. Lehmann eyðir miklum tíma í Lapplandi og annars staðar í norður-Skandinavíu þar sem flestir bílaframleiðendur reyna nýjar bílgerðir við vetraraðstæður. Lehmann eltir uppi tæknimenn verksmiðjanna með risa-aðdráttarlinsur og nær yfírleitt fyrstu myndum af bílum sem oft eiga mörg ár eftir í prófun og hönnun. Nú orðið eru framleiðendur farnir að dulbúa frumsmíðarnar ef þær þurfa að fara út fyrir verksmiðjudyrnar, en í þetta skipti er bíllinn nakinn og augljós nærri tveim árum fyrir áætlaða afhjúpun. Matra hannar háþekju- bíl fyrir Renault ■ Hvað er nú þetta? Sendibíll? Nei, Renault verksmiðjurnar ætla ekki að láta Japanina eina um „háþekju“-markaðinn sem skapaður var með td. Nissan Prairie og Toyota Model-F., og hafa þessvegna falið Matra að hanna fólksbíl með nýja sniðinu. Þótt lengdin sé svipuð og á Renault 9 sem ekki þykir stór, á þessi bíll að rúma allt að 8 manns vegna þess hve mikið hann er byggður fram og upp. Matra er lítið þekkt nafn á lslandi, sennilega þekkja það flestir fyrir sérstakan þriggja sæta sportbíl, Matra-Simca Bag- heera sem eitt eintak er til af hérlendis, eða fyrir stationbílinn Matra-Simca Rancho. En nú eru hin langvarandi tengsl Matra við Simca (nú Talbot) rofin þar sem Matra er komið í eigu ríkisrekna risans Renault eins og hin sportbílasmiðjan franska, Al- pine. Það er ekkert nýtt að Renault feli öðrum fyrirtækjum hönnun og þróun bíla fyrir sig. Fyrir um 10 árum hannaði Alpine sportbíl með Renault V6 afturí sem seldur hefur verið sem Alpine-Renault A310, og er Alpine nú að Ijúka við hönnun arftaka A310. Fyrir Renault hefur Matra þó ýmislegt umfram Alpine, aðallega það að hinn litli en afar færi kjarni reyndra tæknimanna hjá Matra býr yfir óvenjumikilli þekkingu á háþróuðum gerfiefnum og framleiðslu- aðferðum vegna geimferðarannsókna og framleiðslu á eldflaugum og tæknibúnaði fyrir geimferðastofnun Evrópu og fleiri. Þar að auki á Matra langa reynslu aó baki í kappakstrit.d. formúiu 1 þar sem þeir hönnuðu bæði bíla og mótora. Af þessari mynd sem við sjáum hér er augljóst að víðtæk þekking Matra á dularfullu eðli loftstraumanna er vel nýtt til þess að gera Matra-Renault Espace að þeim sleipasta af öllum frambyggðum bílum hvað varðar loftmótstöðu. Renault hefur annars nú nýverið slegið met Audi í loftmótstöðuleysi venjulegra fólksbíla með því að gefa upp stuðulinn 0,28 fyrir ódýrustu útgáfuna af Renault 25 á móti 0,30 fyrir Audi 100. Reikna má með að Matra-Renault Espace setji einnig ný met í þessari grein. Enn hefur þó ekki spurst hvort löng reynsla Matra í meðferð styrktra plastefna verði nýtt við fram- leiðslu á Espace, að minnsta kosti mun Renault nýta sér þá kunnáttu óspart í framtíðinni. Rannsóknarbílarnir sem sýndir voru í fyrra vísa veginn og er reiknað með að Renault verði bráðum í fararbroddi meðal evrópskra stórframleið- enda í nýtingu plasts í stað ryðsækins blikks. í byrjun árs 1986 er þess vænst að Espace komi á almennan markað. Nafnið lilýtur að teljast vel valið, því Espace þýðir ekki bara rými, heldur líka geimur sem er bein skírskotun til tengsla við geimferðir. Nú næstu helgar birtist í NT reynslu- akstursgrein um alla háþekjubílana sem komnir eru á markað á íslandi. Ari Arnórsson NOACK RAFGEYMAR FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI Saensku bilalramleiðendurnu VOLVO, SAAB oq SCANIA nota NOACK ralgeyma vegna kosta þeirra SKEIFAN Hjarta bílaviðskiptanna 1M Saab Turbo árg. 1983 ekinn 28.000 km. Verö: 610.000 - skipti. Honda Accord EX árg. 1983 ekinn 7.000 km. Verð: 430.000 - skipti. Galant 2000 GLS árg. 1982 ekinn aðeins 8.000 km, sjálf- skiptur. Verð:345.000-skipti. Galant 2000 GLS station árg.1982 ekinn 30.000 km. Verð 350.000. skipti. Toyota Tersel árg. 1980 3ja dyra, sjálfskiptur, ekinn 65.000 km. Verð: 200.000. Peugeot 505 GR árg. 1980 vökvastýri, sóllúga og fl. ekinn 64.000 km. Verö: 330.000. - skipti. Pontiac Trans Am árg. 1979 einn sá glæsilegasti á götun- um m/öllu. Verð: 550.000. - skipti. BMW 320 árg. 1978 ekinn 96.000 km fallegur bíll í skiptum fyrir ódýrari konubíl. Verö: 260.000. Alveg sérstaklega fallegur Range Rover árg. 1976 ekinn 140.000 km. Verð: 410.000. - skipti möguleg. Bílasalan SKEIFAN Skeiíunni 11 Sintar 84848 oij 35035. Fljót og góð þjónusta

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.