NT - 15.06.1984, Síða 16
Föstudagur 15. júní 1984 1 6
Útvarp og sjónvarp á sunnudag:
Þjóðhátíðarefni
ríkisfjölmiðlanna
■ Frá þjóðhátíðinni 1944
■ Á þjóðhátíðardaginn 17.
1 júní, sem er á sunnudag, gera
fjölmiðlarnir ýmislegt til há-
tíðabrigða. Þennan dag verða
40 ár liðin frá því að lýðveldi
var stofnað á Islandi, svo að
ástæða er til að hafa nokkuð
við.
í sjónvarpinu er mynd sem
nefnist „Land míns föður" og
er sú mynd kynnt sem mynd-
leiftur úr íslenskri lýðveldis-
sögu. Byrjað er á filmubút sem
sýnir stofnun íslenska lýðveld-
isins á Þingvöllum 17. júní árið
1944, og síðan sýndir ýmsir
stuttir myndbútar úr hinum
ýmsu merkisatburðum lýð-
veldissögunnar, eldgosum.
þorskastríðum, hersetu
o.s.frv. Höfundar og umsjón-
armenn eru þeir Eggert Þór
Bernharðsson og Valdimar
Unnar Valdimarsson sagn-
fræðingar, en dagskrárgerð-
armaður Maríanna Friðjóns-
dóttir.
1 útvarpinu er hins vegar
dagskrárþáttur, klukkutíma
langur, nteð þjóðlegu efni í
ljóðum, tónlist og lausu máli.
Nefnist þátturinn „Svo aldrei
framar fslands byggð sé öðrum
þjóðum háð“. Það er Baldur
Pálmason sem tekið hefur
saman, en lesarar með honum
eru Helga Þ. Stephensen og
Stefán Jökulsson.
Um morguninn er svo út-
varpað frá hátíðarathöfn á
Austurvelli, og síðan er guðs-
þjónusta í Dómkirkjunni.
Vigdís Finnbogadóttir
Útvarp kl. 13.30 á sunnudag:
Reykjavík bernsku minnar
- Guðjón Friðriksson ræðir við
Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands
■ Á sunnudag, þjóðhátíðar-
daginn 17. júní er viðtalsþáttur
sem nefnist Reykjavík bernsku
minnar. Þá talar Guðjón Frið-
riksson blaðamaður við Vig-
dísi Finnbogadóttur forseta
íslands.
„Ég verð með svona þætti
einu sinni í viku í sumar“,
sagði Guðjón í samtali, „og
þennan þátt bar upp á þann 17.
Því þótti viðeigandi að fá
forsetann í viðtal.
í þessu spjalli rifjar hún upp
minningar um bernsku sína og
sitt æskuheimili. Hún fæddist í
Tjarnargötunni, en flyst mjög
ung í Ásvallagötu í svokallaða
samvinnubústaði. Hún rifjar
upp umhverfi sitt þarna, leiki
barna og andrúmsloftið í
Reykjavík á þessum árum.
Þegar hún var að alast upp þá
var fyrst kreppan og svo
stríðið, og síðan var lýðveldis-
hátíðin þegar Vigdís var 14
ára, svo að hún man hana vel.“
„Þetta er þriðji þátturinn
sem ég verð með, og áður hef
ég talað við Elías Mar og
Þorvald í Síld og fiski.“
Þátturinn verður á dagskrá
kl. 13.30 á sunnudag.
Útvarp kl. 17.10
á sunnudag:
Modern
Jazz
Quartet
Síðari hluti
tónleika í Laug-
ardalshöll
kvöldið áður
■ Á sunnudag klukkan tíu
mínútur yfir fintm er á
dagskrá síðari hluti útsending-
ar frá hljómleikum Modern
Jazz Quartet í Laugardalshöll
kvöldið áður. Bein útsending í
sjónvarpi og útvarpi fellur
niður, en þess í stað sent út
seinna á laugardagskvöld, fyrri
hluti, og sjónvarpsupptökunni
sjónvarpað síðar.
Modern Jazz Quartet er
fjögurra manna jazzhljómsveit
frá Bandaríkjunum sem er ein
sú virtasta á sínu sviði. Þeir
hættu starfsemi 1976 eftir að
hafa starfað saman í 20 ár, en
koma öðru hvoru saman til að
rifja upp gamla daga.
Sjónvarp kl. 22.00 á sunnudag:
Allt er fertugum fært
Skemmtidagskrá L.R. í tilefni 40 ára afmælis lýðveldisins
■ Að kvöldi þjóðhátíðar-
dagsins bregður sjónvarpið á
leik og flytur skemmtidagskrá
þá sem Leikfélag Reykjavíkur
hafði flutt þá um daginn í
tilefni af 40 ára afmæli lýðveld-
isins við Arnarhól. I þessari
dagskrá verða flutt vinsæl dæg-
urlög frá fyrstu árum lýðveldis-
ins með nýjum söngtextum
sem tengjast atburðum þeirra
tíma, eftir Karl Ágúst Úlfsson.
Flytjendur eru: Aðalsteinn
Bergdal, Guðbjörg Thor-
oddsen, Guðmundur Ólafs-
son, Guðmundur Pálsson,
Hanna María Karlsdóttir, Jó-
hann Sigurðarson, Jón Sigur-
björnsson, Lilja Þórisdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Pálmi
Gestsson, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Sigríður Hagalín
og Soffía Jakobsdóttir. Tón-
listarmenn eru Guðmundur R.
Einarsson, Hallberg Svavars-
son og Jóhann G. Jóhannsson
sem útsetti lögin og stjórnar
tónlistarflutningi. Leikstjórier
Þórunn Sigurðardóttir.
■ Leikfélag Reykjavíkur verður með dagskrá í sjónvarpinu á sunnudagskvöld.
■ Úr fínnsku teiknimyndasögunni.
Sjónvarp kl. 18.10:
Barnaefni frá Norðurlöndum
■ Barnaefni sjónvarpsins á
sunnudag samanstendur af
tveimur norrænum myndum.
Önnur er þriðji þáttur finnsks
teiknimyndaflokks sem aðal-
lega snýst um lirfur, dúfur,
ketti og fiðrildi. Þetta er næst-
síðasti þáttur myndaflokksins,
sem Kristín Mántylá hefur þýtt
og er Helga Thorberg sögu-
maður.
Hin myndin er lokaþáttur
myndaflokksins Börnin á
Senju, sem fjallar um leiki og
störf á eyju úti fyrir Norður-
Noregi. Þýðandi þess mynda-
flokks er Jóhanna Jóhanns-
dóttir og þulur er Anna Hin-
riksdóttir.
útvarp J
Sunnudagur
17. júní
8.00 Morgunandakt Séra Kristinn
Hóseasson prófastur, Heydölum,
flytur ritningarorö og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurlregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Sinfóníu-
hljómsveit Islands leikur; Páll P.
Pálsson stj.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.40 Frá þjóðhátíð I Reykjavík a.
Hátíðarathöfn á Austurvelli. b. Kl..
11.15 Guðsþjónusta i Dómkirkj-
unni. Prestur: Séra Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Organleikari:
Marteinn H. Friðriksson. Dómkór-
inn syngur. Einsöngvari: Ellsabet
F. Eiríksdóttir.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Reykjavík bernsku minnar -
3. þáttur Guðjón Friðriksson ræðir
við forseta islands, Vigdísi Finn-
bogadóttur. (Þátturinn verður
endurtekinn í fyrramáliö kl. 11.30).
14.00 Ættjarðarlög
14.15 „Svo aldrei framar íslands-
byggð sé öðrum þjóðum háð“
Dagskrárþáttur á 40 ára afmæli
lýðveldisins með þjóðlegu efni í
Ijóöum, tónlist og lausu máli. Bald-
ur Pálmason tók saman. Lesarar
með honum: Helga Þ. Stephensen
og Stefán Jökulsson.
15.15 Ungir tónlistarmenn í út-
varpssal a. Elín Ósk Óskarsdóttir
syngur lög eftir Pál Isólfsson, Rob-
ert Schumann, Richard Strauss og
Giacomo Puccini. Ólafur Vignir
Albertsson leikur með á píanó. b.
Sigurður Flosason og Valgerður
Andrésdóttir leika Sónötu op. 19
fyrir altsaxafón og píanó eftir Paul
Creston. c. Reynir Guðmundsson
syngur lög eftir Soutullo og Vert,
Amade Vives, Charles Gounod,
Georges Bizet og Giacomo Pucc-
ini. Ólafur Vignir Albertsson leikur
með á pianó.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt-
ir. UmsjónarmenmÖrnólfurThors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Listahátið 1984: „Modern
Jazz Quartet" Hljóðritun frá síðari
hluta tónleika i Lauaardalshöll
kvöldið áður - Kynnir: Asgeir Sig-
urgestsson.
18.00 Það var og... Út um hvippinn
og hvappinn með Þráni Bertels-
syni.
19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjölmiðl-
un, tækni og vinnubrögð. Umsjón:
Helgi Pétursson.
19.50 „Gamli bærinn“ Séra Emil
Björnsson les frumsaminn Ijóða-
flokk.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
20.45 Ustahátfð 1984: „örlagagát-
an“ eftir Björgvin Guðmunds-
son Söngdrápa fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit við texta Steph-
ans G. Stephanssonar. Flytjendur:
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Þuríður
Baldursdóttir, Jóhann Már Jóh-
annsson, Michael J. Clarke, Krist-
inn Sigmundsson, Passíukórinn á
Akureyri og Sinfóníuhljómsveit
islands; Roar Kvam stj. - Kynnir:
Jón Örn Marinósson (Hljóðritun
frá tónleikum í Háskólabíói, 8.
þ.m.)
22.35 „Risinn hvíti“ eftir Peter
Boardman Ari Trausti Guðmunds-
son les þýðingu sína (9). Lesarar
23.05 Danslög
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
17. júní
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Tefknimyndasögur Þríöji
þáttur. Finnskur myndaflokkur í
fjórum þáttum. Þýðandi Kristín
Mántylá. Sögumaður: Helga Tor-
berg (Nordvision - Finnska sjón-
varpið).
18.30 Börnin á Senju 4. Vetur loka-
þáttur myndaflokks um leiki og
störf á eyju úti fyrir Norður-Noregi.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Þulur: Anna Hinriksdóttir. (Nordvis-
ion - Sænska sjónvarpið).
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Þjóðhátíðarávarp forsætis-
ráðherra, Steingríms Her-
mannssonar
20.45 Myndlistarmenn Bragi Ás-
geirsson, listmálari
21.00 „Lands mins föður...“ Mynd-
leiftur úr íslenskri lýðveldissögu.
Höfundar og umsjónar-
menn: Eggert Þór Bernharðsson
og Valdimar Unnar Valdimarsson,
sagnfræðingar. Dagskrárgerðar-
maður Maríanna Friðjónsdóttir.
22.10 Allt er fertugum fært
Skemmtidagskrá á vegum Leikfé-
lags Reykjavíkur í tilefni 40 ára
afmælis lýðveldisins, tekin upp við
Arnarhól á þjóðhátíðardaginn.
Flutt verða vinsæl dægurlög frá
fyrstu árum lýðveldisins með nýj-
um söngtextum sem tengjast at-
burðum þeirra tíma, eftir Karl
Ágúst Úlfsson. Flytjendur: Aðal-
'steinn Bergdal, Guðbjörg Thor-
oddsen, Guðmundur Ólafsson,
Guðmundur Pálsson, Hanna Mar-
ía Karlsdóttir, Jóhann Sigurðsson,
Jón Sigurbjörnsson, Lilja Þóris-
dóttir, Margrét Ólafsdóttir, Pálmi
Gestsson, Ragnheiöur Steindórs-
dóttir, Sigríður Hagalín og Soffia
Jakobsdóttir. Tónlistarmenn:
Guðmundur R. Einarsson, Hall-
berg Svavarsson og Jóhann G.
Jóhannsson sem útsetti lögin og
stjórnar tónlistarflutningi. Leikstjóri
Þórunn Sigurðardóttir.
23.05 Dagskrárlok.