NT


NT - 15.06.1984, Side 28

NT - 15.06.1984, Side 28
Föstudagur 15. júní 1984. Enn um danska sjóliðann: Borga - kannski - málið komið til dönsku ríkisstjórnarinnar ■ Danski sendiherrann á íslandi tilkynnti í gær að danska ríkisst jórnin hefði til athugunar að bæta tjón Einars Hákonarsonar. Sendiherrann gekk á fund Ingva Ingvarssonar ráðuneytisstjóra í utanríkis- ráðuneytinu í gærmorgun og ræddu þeir þá málið. Síðan hafði sendiherrann samband við ríkisstjórn sína og flutti Ingva boð hennar seinni partinn í gær. Áður en ákvörðun Dana liggur fyrir þarf að skila grcinargerð um tjónið. Það er Könnun hf., umboðsfyrir- tæki Lloyd’s á íslandi sem metur tjónið og skilar áliti. Síðan tekur utanríkisráðu- neytið saman greinargerð og sendir til Danmerkur. Einar Hákonarson skilaði nú í morgun kröfugerðsinni, byggðri á mati Könnunar hf. Einar sagði NT í gær að nú sæist glæta í málinu en of snemmt væri að segja nokkuð. Hann sagði að hann hefði fengið bréf frá danska sendiherranum þarsem hann harmar atburðinn og tilkynn- ir Einari ákvörðun danska ríkisins. Eins og lesendum NT er kunnugt, stal drukkinn danskur sjóliði bát Einars á mánudagskvöld og eyði- lagði. Báturinn var ótryggð- ur enda sjósettur á sunnu- dag. Kaupverð bátsins er rúm ein milljón króna. Danska freigátan hélt áleiðis til Grænlands í gær með sjóliðann innanborðs. Einar hafði fallið frá kyrr- setningarkröfu enda hefði hann þurft að kosta uppihald hans hér á iandi. Freigátan verður við eftirlitsstörf við Grajnland í tvo mánuði. Albert Guðmundsson: Reiknar með sátt í hunda- málinu ■ „Ég reikna með því að gera dómssátt en fyrst vil ég fá að vita hvað það þýðir. Eg hef heyrt að fólk hafí verið sektað hvað eftir annað út af sama málinu - ef það er dómssátt þá vil ég frekar láta dæma mig,“ sagði Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra í samtali við NT í gær- kvöldi. Frestur sá er Albert var gef- inn til að ljúka máli vegna kæru um hundahald, er liðinn en hann hefur tvisvar boðað forföll. í samtali við Helga Jónsson hjá Sakadómi kom fram að málið yrði afgreitt nú bráðlega og sagði hann að Albert hefði boðað lögleg forföll. Albert sagði NT að hann hefði verið lasinn upp á síðkast- ið og að hann hefði hug á að ljúka þessu máli. En eins og fram kemur hér að ofan, vill Albert vita hvað felist í dómssátt. Hann sagðist vera þakklátur fyrir þann frest sem honum var gefinn til að Ijúka málinu. Eins og fram kemur í NT nú í dag er unnið að reglugerð um hundahald í Reykjavík. Hvað líður hundafrelsinu í Reykjavík? Reglugerð um hunda- hald á næstu grösum ■ „Menn hafa hringt talsvert og spurst fyrir um skráningu hunda en skráning getur ekki hafist fyrr en reglugerðin hefur verið sett“ sagði Ólafur Jónsson, fulltrúi hjá Reykja- víkurborg er NT innti hann eftir framvindu „hundamálsins“. Eins og kunnugt er af fréttum þá samþykkti borgarstjórn fyrii nokkrum vikum að heimila tak- markað hundahald í borginni með ákveðnum skilyrðum. Sjálfsagt hafa einhverjir orðið þeim málalyktum fegnir, en síð- an samþykktin var gerð hefur lítið spurst af framvindu málsins, þ.e. hvort borgarbúar geti nú þegar tekið að halda hunda í fullri sátt við lög og reglugerðir. Þegar NT fór á stúfana til að kanna þetta hjartansmál núver- andi lögbrjóta og væntanlegra löghlýðenda fengust þær upp- lýsingar að drög að reglugerð um hundahald hafi þegar verið samin en hafi þó enn ekki verið lögð fyrir borgarstjórn. Enginn skyídi þó örvænta því að sögn Ólafs Jónssonar er sennilegt að næsti borgarstjórn- arfundur fjalli um reglugerðai- drögin 21. júní næstkomandi. íslendingar hefna 14-2tapsins á Idtredsparken: Unnu Dani ■ Islensku konurnar hafa nú tryggt sér 3ja sætið á Norðurlandamótinu í bridge. Þá stóð karlasveitin sig feikna vel í gær. Rúllaði Dönum upp 20--J-2 og gerði síðan jafntefli við Norðmenn 10-10. Hún á nú mikla möguleika á þrjðja sætinu. í fyrri leiknum í Opna fl. unnu Norðmenn Færeyinga 20-^-5, Svíar unnu Finna 18-2 og íslendingar Dani 20-^2 (77- 20 og 33-19, samtals 110-39). í seinni umferðinni unnu Finnar Færeyinga 19-1 Svíarunnu Dani 19-1, og Norðmenn og íslend- ingar 10-10. Hjá konum: Svíar-Finnar 11- 9, Danm.-ísl. 16-4. Nor.-ísl. 14-6 og Danm.-Finnl. 20--h2. Danir eru efstir í kvenna- flokki með 127 stig, þá Svíar 123 (spila innbyrðis í dag), ís- lendingar þriðju með 74 stig (fá 12 stig með yfirsetu í síðustu umferð). Finnar fjórðu með 65 og Norðmenn fimmtu mcð 59. Svíar eru efstir í Opna fl. með 13416, Finnar 116, Norðmenn 98. íslendingar og Danir í 4-5 sæti með 93 stig og Færeyingar síðastir með -t-31 stig. Islending- ar keppa við þá í dag þannig að góður möguleiki er á 113 stigum alls. Eru stjórnarmyndunarvið- ræðurá bak við tjöldin? ■ Nú á vordögum hefur öðru hvoru lyft sér á flug sá orðrómur að viðræður færu fram um nýja stjórn milli nokkurra forystumanna Sjálfstæðisflokksins og forystu- manna Alþýðuflokks og Alþýðubandalags og e.t.v. fleiri flokka. Vitað er að allmargir forystumenn Sjálfstæðis- flokksins eru óánægðir með núverandi stjórn einkum þeir yngri sem í heild fengu enga ráðherrastóla. Telja margir í þeim hópi lífsnauðsyn fyrir Þorstein Pálsson að stjórn- armynstri verði breytt, fari svo að enginn af ráðherrum flokksins standi upp fyrir honum í sumar eða haust. Þá er mönnum í fersku minni skrif varaþingmannsins Guðmund- ar H. Garðarssonar er hann nánast krafðist þess að stjórnarsamstarfinu yrði slitið og undir þau orð hans tóku sumir af yngri mönnum flokksins í viðtali við NT. Úr lausu lofti gripið „Þetta er algjörlega úr lausu lofti gripiðþ sagði Friðrik Zop- husson er NT spurði hann að því hvort að viðræður hefðu farið fram á bak við tjöldin um nýja stjórn. „Upprunalegu heimildirnar er að finna í kjafta- dálki í Helgarpóstinum þar sem sagt var að formaður Sjálf- stæðisflokksins ætti í einhverj- um viðræðum við Alþýðu- bandalagið og Alþýðuflokk, en þetta á sér enga stoð í veruleik- anum og Alþýðubandalagið hefur t.d. mótmælt því opinber- lega að slíkar viðræður hafi átt sér stað. Við erum í samstarfi við Framsóknarflokkinnþ hélt Friðrik áfram „þó mönnum líki það misvel og meðan við eigum í því samstarfi og teljum sam- starfsgrundvöllinn þess virði að starfa á honum, þá munum við starfa með þeim af heilindum. Pessa sögu hefur hver étið eftir öðrum án þess að það sé nokkur fótur fyrir þessu. Ég veit ekki hver smíðar svona sögur, en hún er greinilega smíðuð til þess að veikja stjórnarsamstarf- ið.“ Enginn þreifað á mér „Það hefur enginn þreifað á mér allavegana," sagði Guð- rún Agnarsdóttir „Eg hef ekkert heyrt neitt um þetta, enda ný- komin í bæinn. Við höfum hins vegar alltaf verið til viðræðu við alla um margt. Við höfum opin augu og eyru og erum í þessu til þess að reyna að koma okkar málstað fram og þess vegna höfum við aldrei útilokað viðræður eða hafnað viðræðum við neina.“ Fyrr ætti Alþýðubanda- lagið að hætta i pólitík... Ekki náðist í höfuðpaura Al- þýðubandalagsins í gær, en menn sem standa þeim nærri vildu ekki aftaka að einhverjar viðræður hefðu farið fram í vor. Það var vilji fyrir því í Sjálf- stæðisflokknum, sagði einn, að svissa yfir í stjórnarsamstarf við AA flokkanna án kosninga, en þó að þessi möguleiki hafi e.t.v. verið ræddur meðal Alþýðu- bandalagsmanna fyrr í vor, þá kemur hann alls ekki til greina lengur. Nú stefnir allt í átök á vinnumarkaðinum i haust. Allir samningar verða lausir 1. sept- ember og sá tími er greinilega liðinn að menn gefi ríkisstjórn- inni frið til áframhaldandi kjara- skerðinga. Ef Alþýðubandalag- ið tekur sér ekki stöðu með verkalýðshreyfingunni og reynir að notfæra sér upplausnina til fylgisaukningar þá getur það alveg eins hætt pólitík og það strax. Þess vegna kemur ekki til greina að ræða við sjálfstæðis- menn um annað en kosningar. Nei, því miður „Nei, því miðurý' sagði Jón Baldvin Hannibalsson að- spurður um hvort hann hefði tekið þátt í einhverjum stjórn- armyndunarviðræðum og í sama streng tók Jóhanna Sig- urðardóttir alþingismaður. Þau könnuðust hvorugt við að hafa heyrt um neinar slíkar við- ræður. Ekki náðist í forystumenn Bandalags Jafnaðarmanna í gær. Þeir eru á þeytingi um landsbyggðina að kynna stetnu sína og starfshætti. Nýr forstöðumaður Norræna hússins: „Glaður og stoltur" ■ „Ég er mjög glaður og stoltur yfir að hafa fengíð þetta starf og mun leggja aðaláherslu á að styrkja sambandið á milli Norður- Iandanna“, sagði norska ijóðskáldið Knut Ödegárd í samtali við NT í g*r, en hann hefur verið ráðinn forstöðumaður Norræna hússins i Reykjavtk tii nxstu fjögurra ára. Hann kvaðst ekki vera með neinar ákveðnar áætl- anir á prjónunum hvað varðaði dagskrá hússins, til þess væri ailt of stuttur tími liðinn frá því hann fékk að vita um stöðveit- inguna, en þó vildi hann [ gjarnan hefja nornena Ijóðagerð til vegs og virð- ingar. Aðspurður um hvernig starfið legðist t hann svaraði Knut að hann þekkti vel til Nor- ræna hússins og þeirra sem hefðu gegnt þessu starfi áður. Það væri álit dug- mikið fólk og vonaðist hann til að sér tækist jafn vel upp.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.