NT - 22.06.1984, Síða 4
Föstudagur 22. júní 1984 4
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
„Atvinnurekendur eru að
grafa sjálfum sér gröf“
með þeim yfirborgunum sem tíðkast
■ „Þaðhefurorðiðmikiömis:
sig í íslensku efnahagskerfi. í
heilu atvinnugreinunum eru
menn yfirborgaðir, einkum
þeir sem betur mega sín“,
sagði Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, í Vest-
mannaeyjum í fyrrakvöld. „Ég
álít að vinnuveitendur séu að
grafa sjálfum sér gröf með þeim
yfirborgunum sem eiga sér
stað“.
Steingrímur lýsti þeim verk-
efnum sem blasa við ríkisstjórn-
tekst að bæta laun þeirra lægst
launuðu eins og Verkamanna-
sambandið hefur sett fram
kröfur um“, sagði Steingrímur
Hermannsson á opnum fundi í
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld,
„en erfiðleikarnir eru þeir að
kostnaðurinn kemur helst niður
inni. Það væri í fyrsta lagi að
treysta þann árangur sem hefði
náðst í baráttunni við verðbólg-
una. í öðru lagi að halda áfram
að vinna að hjöðnun hennar.
Þá þyrftu stjórnarflokkarnir að
koma sér saman um aðgerðir er
miðuðu að nýsköpun íslensks
efnahagslífs. Hann kvað það
hafa verið stórt skref hjá ríkis-
stjórninni að gefa fyrirfram út
línu um gengisþróun. Að gengi
yrði að hámarki breytt um 5%
á þessu ári. Við það ætlaði
á greinum sem ekki þola hann,
eins og t.d. fiskvinnslunni. Ann-
ars er það grundvallaratriði að
aðilar vinnumarkaðarins komi
sér sjálfir saman um kaup og
kjör.“
Eins og kunnugt er hefur
Framkvæmdastjórn Verka-
ríkisstjórnin aðstanda. Það væri
hins vegar svo að gengi íslensku
krónunnar væri of lágt skráð
gagnvart þjónustu og verslun.
A þessu ári hefði meðalgengi
íslensku krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum lækkað
um 2,56%.
Steingrímur áréttaði það að
ríkisstjórnin hefði sett sér það
markmið að verðbólgan yrði
10-11% ílok þessa ársogaðþví
markmiði væri unnið.
mannasambandsins sett fram
þá skoðun að lægstu laun þurfi
að hækka um 5-6% 1. septem-
ber til þess að ná kaupmætti
febrúarsamninganna, en for-
mannafundur sambandsins tel-
ur þessa hækkun þurfa að vera
um 8%.
■ Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra NT mynd Ella
Louisa Matthí-
asdóttir:
Milljóna-
salaá
Kjarvals-
stöðum
Forsætisráðherra um lægstu launin:
Fagna því ef það
tekst að bæta þau
■ „Ég fagna því mjög ef það
Söf n og
sýningar:
Stofnun Árna
Magnússonar:
■ Um þessar mundir stendur
yfir handritasýning í Árna-
garði og mun hún verða opin í
sumar á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum kl.
14-15. Á sýningunni er úrval
íslenskra handrita sem smám
saman erú að berast heim frá
Danmörku. Þar á meðal er
Konungsbók Eddukvæða og
Flateyjarbók, Gráskinna, blöð
úr Króksfjarðarbók o.fl. Enn-
fremur er sýnd frumútgáfa
Guðbrandsbiblíu frá 1584 sem
á fjögur hundruð ára afmæli
um þessar mundir.
10 gestir á
Kjarvalsstöðum:
■ Ákveðið hefur verið að
framlengja sýningu 10 gesta
Listahátíðar að Kjarvals-
stöðum til júlí loka. Sýningin
verður opin alla daga kl. 14-22,
fram til 29. júlí. ,
Listasafn fslands:
■ Á sunnudaginn er síðasta
tækifærið til að sjá verk hol-
lenska listamálarans Karels
Appel í Listasafni íslands. Á
sýningunni eru alls 48 verk og
eru flest þeirra unnin í olíu en
einnig akrýlmyndir, grafík og
myndir unnar í blandað efni.
Sýningin verður opin um helg-
ina frá kl. 13.30-22.00. Hún
verður ekki framlengd.
Ásmundarsalur:
■ Opnuð hefur verið sýning
á verkum hjónanna Carmen
og Elin Cornell en þau eru
arkitektar og sýna að þessu
sinni teikningar og hugmyndir
að byggingum á Norður-
löndum og í Kanada. Þar á
meðal eru verðlaunateikningar
af miðbæjarskipulagi í Vest-
mannaeyjum, en þau hjón
unnu í samkeppni sem efnt var
til 1977.
Norræna húsið:
■ Dagana 25. júní til 9. júlí
verður sýning í anddyri Norr-
æna hússins, á búningateikn-
ingum úr tveimur kvikmynd-
um sem teknar hafa verið hér-
lendis. Það er sænski búninga-
hönnuðurinn Ulla - Britt Sö-
derlund sem sýnir skissur að
búningum sem hún gerði fyrir
kvikmyndirnar „Rauða
skykkjan" og „Paradísar-
heimt."
Sumarsýning
■ Sumarsýning Norræna
hússins fjallar að þessu sinni
um ísland, land og þjóð, séð
með augum íslenskra grunn-
skólanemenda. Sýningin er ár-
angur samstarfs við Félag ís-
lenskra myndmenntakennara
um sumarsýningu hússins í ár.
Viðfangsefnið er hvernig ís-
lensk börn skynja landið sitt,
náttúruna og fólkið en þáttak-
endur eru 4-14 ára börn úr 16
grunnskólum landsins. Sýning-
in stendur frá 23. júní til 22.
júlí og verður opin daglega frá
kl. 14-19.
■ Sláttur grænna svæða í höfuðborginni er í fullum gangi og þrátt fyrir stórvirk tæki, hafa státtumcnn
ekki undan sprettunni. NT-mynd Róbert
■ Louisa Matthíasdótt-
ir, sem tekur þátt í sam-
sýningu íslenskra mynd-
listarmanna á Kjarvals-
stöðum, hefur snert rétta
strengi í hjörtum listunn-
enda. Flest, ef ekki öll
málverk hennar á sýning-
unni, 50 talsins, eru seld
nú þegar.
Verk Louisu eru af
mörgum stærðum og kosta
þau frá 60 þúsund upp í
um 300 þúsund krónur
stykkið. Það er Knútur
Bruun í Listmunahúsinu,
sem hefur annast milli-
göngu um sölu verkanna
fyrir Louisu Matthíasdótt-
ur. ______r
Útivistarsvæðin 331 hektari:
Heyin fara að
mestu forgörðum
■ „Öll grænu svæðin, sem við
erum með í hirðingu, voru
331.22 hektarar um síðustu ára-
mót“, sagði Hafliði Jónsson
garðyrkjustjóri Reykjavíkur,
þegar hann var spurður um
stærð grænu svæðanna í höfuð-
borginni.
Þetta eru útivístarsvæði, þar
með taldir skrúðgarðar, en ekki
leikvellir, skólalóðir eða lóðir
stofnana og fyrirtækja. Stærsta
græna svæðið er Laugardalur-
inn.
Hafliði sagði, að byrjað hefði
verið að slá bletti þessa þann 9.
maí síðastliðinn og hefðu sláttu-
menn ekki undan vegna mikillar
sprettu. Skipta þó státtuvélar
borgarinnar tugum.
Lítið af heyinu, sem kemur af
grænu blettum borgarinnar er
nýtt.
„Við reynum að losna við það
sem hægt er. Við látum hesta-
menn nýta það, sem þeir hafa
ágirnd á. Hinu er hent“, sagði
Hafliði.
■ Rut Rebekka Sigur-
jónsdóttir sýnir verk unnin
með silkiþrykki og í akrýl í
bókasafninu í Mosfells-
sveit. Þetta er fyrsta einka-
sýning Rutar og stendur
hún til 29. júní og er opin
kl. 13-20 virka daga og
14-19 um helgar. Rut stund-
aði myndlistarnám í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur og
í Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
ÆttarmótaðReykjum
■ Ættarmót afkomenda hjónanna Ingigerðar Eiríksdóttur
og Þorsteins Þorsteinssonar bónda og smiðs að Reykjum á
Skeiðum verður haldið 14. júlí nk. að Reykjum.
Dagskrá mótsins er í undirbúningi en ákveðið er að hittast
að Reykjum kl. 11.00 fh. og verður staðurinn skoðaður og
minningarsteinn um þau hjónin afhjúpaður. Æskilegt er að
allir ættingjar mæti og mikilvægt er að þátttaka tilkynnist til
Ingvars Þórðarsonar á Reykjum, sími 99-6551, fyrir 1. júlí
nk. I ár eru 60 ár liðin frá því að síðast var haldið ættarmót
að Reykjum.
Tónlist:
Kjarvalsstaðir:
■ { vikunni framundan verð-
ur efnt til raf - og tölvutónleika
á Kjarvalsstöðum. Þar verður
kynning og sögulegt yfirlit yfir
íslenska tæknitónlist. Flutt
verða verk eftir ýmsa þekkta
höfunda innlenda. Tónleikarn-
ir verða haldnir miðvikudaginn
27. júní, fimmtudaginr. 28.
júní, föstudaginn 29. júní kl.
27.00 og endurteknir kl. 20.30
og síðan á laugardaginn 30.
júní kl. 15 og 17. Ný efnisskrá
verður á hverjum degi. Þor-
steinn Hauksson hefur undir-
búið tónlistardagskrána.
Einsdæmi
endurreist:
■ í sumar verður hljómsveit-
in Einsdæmi endurreist, en
hún starfaði á Austurlandi á
árum áður. Hjómsveitin hefur
aðsetur á Seyðisfirði og mun
þaðan koma og leika á dans-
leikjum víða um Austurland í
sumar. I hljómsveitinni eru:
Ólafur Már Sigurðsson, Gylfi
Gunnarsson, Grétar Örvars-
son, og Árni Áskelsson.
Sumarstarf hljómsveitarinnar
hefst um þessa helgi með dans-
leik í Herðubreið, Seyðisfirði
á föstudagskvöld og Félags-
lundi, Reyðarfirði á laugar-
dagskvöld.