NT - 22.06.1984, Síða 8
Föstudagur 22. júní 1984 8
Ml
Sjötugur:
Ragnar Stef ánsson
í Skaftafelli
Pað var á miðju sumri 1972
að leið mín lá í fyrsta sinn í
Skaftafell til móts við félaga
mína nýkjörnu Náttúruvernd-
arráði. Eg kom að austan land-
leiðina, en þeir í flugi að sunnan
í Fagurhólsmýri, - tvö ár þá enn
í það að lokið væri brúargerð á
Skeiðarársandi og engin telj-
andi ntannvirki risin vegna
ferðamannaaðstö'ðu í Skafta-
felli.
Þá lútti ég þau Ragnar og
Laufeyju í Hæðum, kvöldið
áður en aöalhópurinn kom, og
það var margt rætt áður gengið
var til náða. Övissa ríkti um
hvað nýir húsbændur þjóð-
garðsins '\ Skaftafelli hygðust
fyrir, og ég fann aö undir niðri
gætti nokkurs kvíða hjá fólkinu
í Hæðum. Ragnar hafði þá
samkvæmt kaupsamningi frá
árinu 1966 lifstiðarábúð á þess-
ari föðurleifð, þar sem forfeður
hans liafa búiö urn aldir. Hann
stundaöi hefðbundinn búskap í
Skaftafelli, og þaö var ekki ýkja
margt sem minnti á að stofnað
hefði veriö til þjóðgarðs á jörð-
inni 5 árum áður. Fyrir umsjón
með þjóðgarðinum haföi Ragn-
ar aðeins lítilsháttar þóknun og
hugmyndir um framtíðarskipu-
lag voru lítt mótaðar. Ferða-
mannastraumur fór vaxandi og
Ijóst að hann myndi margfaldast
við lúkningu vegarinsyfirSkeið-
arársand. Hvernigátti aöbregð-
ast viö þeirri þróun? Hvaða
áhrif hefði hún á náttúruvernd í
Skaftafelli og mannlíf í
Öræfum? Þessar spurningar
voru áleitnar og fyrir fáa skiptu
svörin meira máli en fólkið sem
búsett var á býlunum tveimur í
Skaftafelli, Hæðum og Bölta.
Það varð viðfangsefni mitt
næstu árin að lcita svara við
þessum spurningum sem trún-
aðarmaður Náttúruverndarráðs
í samvinnu við heimamenn. Þar
mæddi mest á Ragnari Stefáns-
syni, sem settur var í tvöfalt
hlutverk heimamanns og bónda
annars vegar og þjóögarösvarð-
ar hins vegar. Það var við þessar
aðstæður sem ég kynntist Ragn-
ari og hans fólki, og þau kynni
urðu náin og treystust með
hverju ári.
Þeir urðu margir dagarnir
sem ég dvaldi í Skaftafelli og
gekk með Ragnari ogsamverka-
mönnum um þjóðgarðslandiö,
mörg kvöldin sem setið var í
stofunni á Hæðum yfir teikning-
um, uppdráttum og hugmynd-
um um skipulag þjóðgarðsins,
allt frá þjónustumiðstöð niðri á
sandi tií göngidciða inn um
Skaftafellsheiðl og Morsárdal.
Önnur viðíangsefni enn n:í-
komnari heímafólki voru líka á
dagskrá.
Breytingar á búskaparhátt-
um, nýr samningur um réttindi
og skyldur þjóðgarðsvarðar,
hvað ætti að standa af húsum og
girðingum, hvað að hverfa cða
breytast í samræmi við nýtt
hlutverk Skaftafells.
Ég hygg að á fáa íslenska
bændur hafi í seinni tíð verið
lagt að svara jafn mörgum
spurningum á skömmum tíma
og Ragnar í Skaftafelli og aðlag-
ast stórfelldum breytingum
heima fyrir. Þetta próf stóðst
hann af mikilli prýði til ómetan-
legs ávinnings fyrir þjóðgarðs-
hugmyndina, en án þess að
missa sjónar á hag sinna nánustu
ogsveitarinnar. Þarkom honum
aö haldi ágæt greind og yfirsýn.
samhliða ríkum tilfinningum og
næmleika fyrir því, hvaða leiðir
séu helst færar. Reynsla vatna-
mannsins sem oft þurfti að
þræða yfir Skciðará eða sneiða
fyrir liana á jökli hefur komið
Ragnari að góöu haldi, einnig
við aðrar aðstæður.
Hann átti milli þess að velja
aö halda sínu striki sem bóndi á
ættarsetri og láta óskir náttúru-
verndarmanna lönd og leið, eða
taka undir kvaðningu þeirra.
Ragnar valdi síðari kostinn, og
ég vona að hann telji sig ekki
þurfa að sjá cftir því þegar á
heildina er litið.
Skaftafell er nú fremst í röð
íslenskra þjóðgarða og á hvergi
sinn líka. Ferðamenn innlendir
og crlendir róma staðinn og þá
aðstöðu sem þeim hefur verið
sköpuð til að njóta náttúru
svæðisins. Svör hafa verið veitt
viö mörgu af því sem í óvissu
var fyrir 10-15 árum og fáir hafa
lagt meira af mörkum við að
móta þau og núverandi svipmót
þjóðgarðsins en Ragnar í
Skaftafelli.
Ég hef margt að þakka Ragn-
ari og hans fólki nú þegar hann
stendur á sjötugu. Fátt hefur
veitt mér meiri ánægju en að
vinna með honum að málefnum
þjóðgarðsins um 6 ára skeið.
Gestrisni og glaðværð á heimil-
inu í Hæðum líður þeim ekki úr
minni sem notið hefur. Frásagn-
ir bóndans og þekking á liðinni
tíð bera vott um glöggskyggni
og tengsl þess manns sem á
djúpar rætur í Skaftafelli.
Bestu hamingjuóskir og
kveðjur frá okkur Kristínu
fylgja þessum línum til ykkar
Ragnars og Laufeyjar og auga-
steinsins Önnu á merkisdegi í
lífi bóndans. Megi framtíðin
verða ykkur gjöful og björt cins
og vormorgunn, þegar horft er
út yfir grænar brekkur og svart-
an sand >frá Hæðum.
Hjörleifur Guttormsson
t
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát móður okkar
Sigrúnar Jónsdóttur
frá Tungufelli
Hlöðver Magnússon
Sverrir Magnússon
■ Ekki verður annað sagt en
að hlutur íslendinga í hljóm-
leikum Listahátíðar liafi verið
mjög góður þótt hann væri að
því leyti frábrugðinn hlut er-
lendra listamanna, að ekkert
heyrðist nú frá íslensku tónlist-
arfólki sem ekki hefði mátt
lieyra hvenær sem var; hins
vegar voru tónleikar Luciu Val-
entini Terrani einstæðir og
hvorki Lundúnafílharmónían
né Modern Jazz Ouartet koma
hér endranær, svo dæmi séu
nefnd. Á hinn bóginn var Mús-
íkhópurinn, nýleg sarntök
ungra íslenskra tónskálda og
hljóðfæraleikara undir stjórn
Einars Jóhannessonar klarin-
ettuleikara, einn til þess að
hefja á loft merki framúrstefnu-
og nútímatónlistar á Listahátíð
1984, og það svo rækilega að
cinna helst minnti á dauðastríð
Musica Nova um árið. Munur-
inn var þó sá, að þessir tónleik'ar
Músíkhópsins voru haldnir
fyrir sæmilega fylltu húsi áhuga-
manna á ýmsum aldri, ekki síst
ungs tónlistarfólks sem trúir á
framtíðina og möguleikana, en
fyrir 20 árurn voru allir að drep-
ast úr leiðindum yfir kjánagang-
inum. Og 1965-70 var cinmitt
sérlega leiðinlegur tími í nú-
tímatónlist, eins konar vendi-
punktur þar sem Ijós varð sá
misskilningur smáskálda að
hávaði, tilviljanakenndar smá
uppákomur og smekkleysur
hefðu eitthvað með tónlist að
gera. Frá þessum tíma eru ein-
mitt tvö verkanna sem flutt
voru í Bústaðakirkju, Hymnos
fyrir klarinctt og píanó og Eight
songs for a mad king, bæði eftir
Bretann Peter Maxwell Davies.
Fyrra verkið er tileinkað
Alan Hacker klarinettista, sem
hingað kom ekki allsfyrir löngu,
og í vandaðri tónleikaskrá (sem
vareinsdæmi-á Listahátíð 1984)
er haft eftir honum að tónskáld-
ið „gjörnýti tónsvið og tjá-
ningamöguleika nútíma klarin-
etts og píanós". Eg hef áður
pirrast á bullinu í þessum hljóð-
færaleikara; vafalaust ei það
rétt að í þessu. verki eru bæði
hæstu og lægstu tónar hvers
hljóðfæris, en ég er ekki sam-
mála því að tónlist vsem er laus
við að vera falleg eða skemmti-
leg hafi „gjörnýtt tjáningasvið
nútíma klarinetts og píanós" -
og þaðjafnvel þótt sjálfur Einar
Jóhannesson legði sigallan fram
ásamt píanistanum David
Knowles. Eight songs for a mad
king er sérstakt og óneitanlega
dálítið óvenjulegt: John
Speight, baritonsöngvari, syng-
ur og leikur Georg III Breta-
kóng, sem bilaðist á geðsmun-
um, en verkið á að Iýsa geðveikis-
köstum hans. Svo er að skilja að
höfundur telji að kóngurinn hafi
m.a. reynt að kenna finkum
sínum að syngja Há'ndel (þess
má raunar geta, að páfagaukur
hér í bænum syngur iðulega
Eine kleine Nachtmusik eftir
Mózart, auk þess sem hann er
sagður hafa „músíserað" með
Jean-Paul Rampal flautuleikara
- en það er önnur tegund af
fugli). Finkurnar léku hljóðfæra-
leikararnir: Einar Jóhannesson,
Bernard Wilkinson, Guðný
Guðmundsdóttir og Carmil
Russill, en Árni Áskelsson
(slagverk) og David Knowles
(hljómborð) léku einnig með.
John Speight flutti þetta með
miklum tilþrifum, en verkið er
alltof öfgafullt með þrotlausum
hávaða og gargi til þess að mér
líkaði það — slíkur ungæðishátt-
ur væri meira í stíl við uppfærslu
eigin verks í breskum yfirstéttar-
heimavistarskóla. (Ekki þarf að
taka fram, að þetta eru mínar
einkaskoðanir, og sumum þótti
þetta dæmalaust sniðugt og
áhrifamikið).
Áskell Másson er meðal
vorra afkastamestu tónskálda
um þessar mundir, og á tónlcik-
unum voru tvö verk eftir hann:
Unnur Sveinbjarnardóttir flutti
Kadenzu fyrir einleiksvíólu, og
þótti mér það hápunktur tón-
leikanna, og Einar Jóhannes-
son, Guðný Guðmundsdóttir og
Unnur Sveinbjarnardóttir fluttu
eftir hann Tríó fyrir klarinettu.
fiðlu og lágfiðlu, sömuleiðis
hið ágætasta verk. Hinn fjölhæfi
John Speight átti að lokum eitt
verk, Sóló fyrir einleiksflautu,
sem Bernard Wilkinson flutti af
sinni vanalegu snilli.
Það virðist eiga ennþá fremur
við um „núti'matónlist" en hina
eldri, að hún stendur og fellur
með hljóðfæraleiknum: miklir
hljóðfærasnillingar geta enda
gert listaverk úr jafnvel hvers-
dagslegum efniviði, endá verður
því líklega ekki neitað að nú-
tímatónlist gerir allt aðrar, og
að sumu leyti víðtækari, kröfur
til flutnings sem stundum nálg-
ast leik (í hefðbundnum skiln-
ingi) og mímuleik í viðbót við
hljófæraleikinn. Umverkinsjálf
vill oft verða erfiðara að dæma,
því flest þeirra heyrir maður
ekki nema einu sinni á ævinni,
en sumt sem þarna heyrðist
vildi ég gjarnan heyra aftur.
Sigurður Steinþórsson
■ Sveinbjörg Hallvarðsdóttir
Níræð á
morgun
■ Á morgun, laugardaginn23.
júní, verður níræð Sveinbjörg
Hállvarðsdóttir, Reynisholti,
Mýrdal, V,- Skaftafellssýslu.
Hún. tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Eyrarlandi,
Reynishverfi, frá kl. 14- 19.
í fyrsta skipti á íslandi:
Alþjóðlegar sumarbúðir barna
■ Frá sumarbúðum CISV í Svíþjóð sumarið 1982, en eins og sjá
má voru þar mætt til kynningar og leikja börn af mismunandi
kynþáttum og ólíku þjóðerni.
■ í sumar verða starfræktar í
fyrsta skipti hér á landi Alþjóð-
legar sumarbúðir barna á vegum
CISV samtakanna, sem eru al-
þjóðasamtök sem vinna að
kynningu á milli landa, alþjóð-
legum skilningi og friði í heimin-
um. Eru samtök þessi óháð
trúmálum. stjórnmálum og lit-
arhætti og allt starf þeirra er
unnið í sjálfboðavinnu.
Að sögn Gunnars Sigurjóns-
sonar hjá CISV verða sumar-
búðirnar starfræktar að Hlíðar-
dalsskóla í Ölfusi, dagana 9.
júlí - 5. ágúst, og hefur skólinn
verið tekinn sérstaklega á leigu
í því skyni. Þar koma sama 11
ára börn frá 11 - 12 þjóð-
löndum. fjögur börn frá hverju
landi ásamt fararstjóra, og
dvelja við leiki og hópstarfsemi.
„Opinn dagur" er fastur liður á
svona mótum, en þá kynná
börn sín lönd. Að þessu sinni
koma þátttakendur frá Mexico,
Costa Rica, Bandaríkjunum,
Kanada, Spáni, Frakklandi,
Bretlandi, Danmörku, Noregi.
Færeyjum og íslandi, og jafnvel
Grænlandi. CISV á íslandi kost-
ar rekstur búðanna og nýtur til
þess stuðnings fyrirtækja og
stofnana, en hóparnir sem koma
verða sjálfir að greiða ferða-
kostnað til og frá Islandi.