NT - 22.06.1984, Blaðsíða 26
Viking mot medalj?
•RUDKO'I I - Mch! clt
.ast pá 92,42 i Austin,
cxas i början av april
ick isiándske
’vikingcn’* Kinur Vil-
ijalmsson upp I topp i
rcts viirldsstatístik i
pjut. Fftersom en rad
arldskastare sannolikt
ommcr att utebli fr&n
^os Angcles, framstár
ien 24-árjgc Texas-
tudentcn soin cn av se-
eraspiraulcrna i sin
.ren.
'ilhjalmssou var riia pá Ijol-
rcti vðildstina mcd 90,66.
lan var darmcd ivá placcringar
l'tcr. Kcnih Kldebrínk. Ársbás-
ii notcradcs vid kampcn
4ordcn-tJSA i Stockholms Sia-
iion júsi iiman VM i Hel.sing
ors.
-'al í VM slog det emctleröd
tim för islanníngcn, som bara
•lc'v 13;e. Detra benxidc, cnligl
ránarcn Tiijj Hamilton, pá
irutin. Vilhjalinssoji vill vara
láitrc förberedd í sommar föt •
larar han i iidníngcn Track
íf icld Ncws.
INGA PRÖBLHM
Ocksii nir jag.vaimei upp si-
iiulc'iai jag ait det gailcr OS.
ag ár van vid ait kasta flera
ipprSvnmingska.si, mcn hu be-
rönsar jag nng till tvð...l Hel-
ingfors kanske jag liadc för
nánga uppvarinningskast.
Jlöver detia tiar Viltijalmsson
ii atman mctod för ati incmali
örbereda sig pá ÍdfhátlantJena
Los Angdcs. Han iSnkci sig in
olíka lcknikdctaljer oéh fdre
tðiler sig hur lum ska uifora
iem. Diirför Hai han setl cu
Jtftngtl filmr «ncc’ otika kasta.re.
Mc'íi jag ftr vjínstcrliam, sá jag
i»r vímt j>á tllmerna o«:h íitrai
iá t*n spegelhHd av ciem. Pá sá
ált ha! jag intc haft nágia
aohk'm ati saita img i sarmna
ítuanoii tom ka:«taren ná iil •
Einar VUhjabnsson, Island - medaljaspirant i spju
OS. h'og ser han ul som cn viking?
idrottsman: han ár (aiatids hit-
tills ende olymj’iskc mcdaljör
genom silvermedaljen i OS i
Mclbournc 1956. Orcncn vai
trestcg.
t.inge Vilfjiaímsson. •som dr ic-
gciaiidc a?netikansk xiudent-
másiare, rii hosati i t-óivmtt
Stai>:rii;5 och siudcrar i Tcsas
Haii anser ati íie antctik<m >ka
kast.'irna iiáiiar fel.
. A>v«>: iýs>><msií I:t»v>Iftw*fclía;»s;
SLA RKKORD
Málet i OS?
- Att förhatira milt personli
rekord...
Dei bordc föislá gnnska ián
kauskc rcmav jHf ritedalj.
varsra konkutremerha lorck
amciíkanjirna íbf a ‘Jöm Pet
noi'f), finfiúnláma sarm vust
'k.:i uck (íorri)uiu. Och ti:n
ligtVis Kcnttl littlcbnnk. Sti
'<•>-..- iv*.i/.r S/t;,'U>i»i í '
lit
Föstudagur 22. júní 1984 26
Einar Vilhjálmsson
Víkingur í
verðlaunaleit
■ Hann berst víða hróður
okkar ágæta afreksmanns, Ein-
ars Vilhjálmssonar. Þessi úr-
klippa hér til hliðar er úr sænsku
blaði og fjallar hún um íslenska
„víkinginn“ sem nú er einn
aifremsti spjótkastari heims.
f greininni er m.a.talað um að
Einar sé níundi á lista yfir
bestu spjótkastara í heimi og þá
er minnst á að Einar sé sonur
Vilhjálms Einarssonar þess er
unnið hefur til einu verðlaunanna
sem Islendingar hafa fengið á
Olympíuleikum til þessa og varp-
að fram þeirri hugmynd hvort
sonurinn muni ekki líka vinna
til verðlauna á OL.
Einar segir í greininni þegar
hann var spurður hver stefnan
væri á Olympíuleikunum. „Ég
stefni að því að bæta mitt pers-
ónulega met“.
Evrópukeppnin í Frakklandi
Urslitin að hefjast
Einar Vilhjálmsson.
Nú erlokið riðlakeppni Evr-
ópukeppninnar í knattspyrnu og
standa fjórar þjóðir eftir og
munu leika tii úrslita um Evrópu-
Olympíuleikar fatlaðra í New York:
Sigrún hlaut bronsverðlaun
■ Sigrún Pétursdóttir hlaut
bronsverðlaun í 25 m baksundi
á Óiympíuleikum fatlaðra sem
nú eru haldnir í New York í
Bandaríkjunum.
Sigrún hlaut tímann 33,99
sek. en keppendur í þessari
grein voru 7.
Lokastaðan
í riðlunum
Jónas Óskarsson varð fimmti
í 100 m bringusundi, fékk tím-
A-riðill:
Frakkland . .
Danmörk . . .
Belgía.......
Júgóslavia . .
B-riðill:
Spánn .......
I’ortúgal . .
V-Pýskaland ,
Kúmenía . . .
,3 3 0 0 9-2 6
.3 2 0 1 8-3 4
3 1 0 2 4-8 2
3 0 0 3 2-10 0
3 1 2 0 3-2 4
3 1 2 0 2-1 4
3 1112-23
3 0 1 2 2-4 1
Platini
efstur
■ Markaskorarar í
riðlakeppninni á EM í
knattspyrnu:
7 mörk Michel Platini
(Frakklandi)
3 mörk Frank Arnesen
(Danmörku)
2 mörk Preben Elkjær
(Danmörku), Rudi Vöil-
er (V-Þýskalandi)
1 mark Klaus Berggreen
(Danmörku), Ladislau
Boloni (Rúmeníu),
Kenneth Brylie (Dan-
mörku), Francisco Car-
rasco (Spáni), Jan Ceul-
emans (Belgíu), Marcel
Coras (Rúmeníu), Luis
Fernandez (Frakklandi),
Alain Giresse (Frakk-
landi), Georges Grun
(Belgíu), John Lauridsen
(Danmörku), Antonio
Maceda (Spáni), Tam-
agnini Nene (Portúgal),
Carlos Santillana'
(Spáni), Milos Sestic
(Júgóslavíu), Antonio
Sousa (Portúgal), Drag-
an Stojkovic (Júgósl-
avíu), Ervin Vanden-
bergh (Belgíu), Frank
Vercauteren (Belgíu).
lAskoraði9
■ ÍA vann Víking 9-1 í
1. deild kvenna í knatt-
spyrnu á Akranesi í
gærkvöld. Laufey Sigurð-
ardóttir skoraði 4, Ragn-
heiður Jónasdóttir skor-
aði einnig 4 og Pálína
Þórðardóttir gerði 1.
Jóna Bjarnadóttir skor-
aði mark Víkings úr
þeirra eina upphlaupi í
leiknum.
Þá léku einnig KR og
Valur í 1. deild kvenna.
KR sigraði 1-0 með marki
Kristrúnar Heimisdóttur.
Völsunga-
sigur
■ Völsungur sigraði KS
í bikarkeppninni í
gærkvöld, 2-1 eftir fram-
lengingu. Helgi Helgason
og Jónas Hallgrímsson
skoruðu mörk Völsungs,
en Óli Agnarsson skoraði
fyrir KS.
ann 1:37,32, keppendur voru
18. Snæbjörn Þórðarson varð
11. af 18 í 100 m skriðsundi fékk
tímann 1:11,20 mín. Jónas varð
13. af 23 í sömu grein, fékk
tímann 1:13,74 mín.
Oddný Óskarsdóttir varð 5. í
25 m baksundi og í 100 m
bringusundi varð hún þriðja af
þrem með tímann 3:35,13.
Fleiri voru skráðir í sundið en
mættu ekki, þar sem þær kepptu
í næsta sundi á undan.
Eysteinn Guðmundsson varð
14. af 16 í 100 m skriðsundi.
í landsliðakeppni kvenna
kepptu þrjú lönd. ísland varð í
þriðja sætinu eftir hörku keppni
við Bretland, töpuðu þeim leik
3-2. í liðinu voru þær Hafdís
Ásgeirsdóttir og Hafdís Gunn-
arsdóttir.
Þátt í leikunum taka 2000
þátttakendur frá 54 þjóðum.
„Þessi árangur íslensku kepp-
endanna er betri en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona“,
sagði Arnór Pétursson formað-
ur íþróttafélags fatlaðra í sam-
tali við NT í gær, en Arnór er
staddur í New York með ís-
lensku keppendunum.
Evrópukeppnin í kvennaknattspyrnu:
ísland ekki með
■ „Ég harma þessa afstöðu
stjórnarinnar og er henni að
sjálfsögðu mjög mótfallinn,“
sagði Árni Þorgrímsson for-
maður kvennanefndar KSÍ og
varaformaður KSÍ, í samtali við
NT í gær, um þá ákvörðun
stjórnar knattspyrnusambands-
ins að taka ekki þátt í Evrópu-
keppni kvennalandsliða sem
hefst á þessu ári.
„Ég vona að þetta verði ekki
til þess að ríða kvennaknatt-
spyrnunni að fullu, en þetta er
mjög svekkjandi fyrir landsliðs-
konurnar okkar,“ sagði Árni.
Þessi keppni hefur einu sinni
áður verið haldin og þá var
ísland meðal þátttökuríkjanna.
Ákvörðun KSÍ frá því í gær er
endanleg, þannig að undir-
skriftasöfnun landsliðskvenna
verður ekki tekin til greina.
Það er eins og svo oft áður
peningahliðin sem setur strik í
reikninginn hjá íþróttafólkinu,
en hve lengi eiga þau mál ein-
göngu að bitna á kvenfólkinu.
Alltaf fá karlmennirnir að taka
þátt í sínum mótum þrátt fyrir
að árangurinn sé oft á tíðum
ekki til útflutnings.
mcistaratitilinn. Ekki eru
þetta allt þjóðir sem menn töldu
líklegasta kandidata,en allt get-
ur gerst í knatspyrnu sem og
öðrum íþróttum.
Af þessu fjórum þjóðum þá
efast enginn um að Frakkar og
Danir eiga svo sannarlega
heima í úrslitunum. Frakkar
unnu A-riðilinn afar sannfær-
andi og fengu fullt hús stiga. Að
vísu var sigur þeirra á Dönum
dálítill heppnissigur en þegar
frá líður verður ekki spurt að
því.
Danir unnu mjög sannfær-
andi sigra á Júgóslövum og
Belgum, og hafa komið á óvart
með frábærri frammistöðu þrátt
fyrir að hafa misst Allan Simon-
sen, meiddan, strax í fyrsta leik.
Danir og Frakkar leika svip-
aða knattspyrnu sem byggist
mjög á sterkri liðsheild frekar
en tveim eða þrem stjörnuleik-
mönnum. Að vísu má deila um
hversu mikið franska liðið
treystir á Platini, en heildin er
þó í fyrirrúmi.
í B-riðli gerðist það sem ekki
var talið fyrirfram að myndi
gerast þ.e. V-Þjóðverjar féllu
úr keppninni með því að hafna
í þriðja sæti í riðlinum á eftir
þjóðunum tveim frá fberíu-
skaga, Spánverjum og Portúg-
ölum.
Þetta er þó ekki eins óvænnt
og margir vilja halda fram því
það er greinileg hnignun hjá
Þjóðverjunum í knattspyrnunni
og áttu þeir í erfiðleikum í
undankeppninni og strax í
fyrstu leikjum Evrópukeppn-
innar.
Á morgun leika svo Frakkar
og Portúgalir annan undanúr-
slitaleikinn en hinn fer fram á
sunnudag og eigast þá við Danir
og Spánverjar. Er það spá
blaðamans NT að það verði
Frakkar og Danir sem leiki til
úrslita og er vonandi að sá
leikur verði betri en opnunar-
leikur keppninnar sem var á
milli sömu þjóða.
Ovett
keppir á
Bislett
■ Breski Ólympíu-
meistarinn í 800 m lilaupi
Steve Ovett mun keppa í
1500 m hlaupi á Bislett
leikunum í frjálsum
íþróttum sem haldnir
verða í Osló í iok þessa
mánaðar.
Þar mun Ovett mæta
Marokkómanninum Said
Aouita, sem varð þriðji í
1500 m á heimsleikunum
í Helsinki í fyrra, einu
sæti á undan Ovett.
Ovett hefur neitað að
taka þátt í 800 m hlaupinu
í Cristal Paiace um næstu
helgi, en þar verða þeir
Steve Cram og Alberto
Juantorena meðal kepp-
enda.
Ovett ætlar ekki að
keppa í 800 m hlaupi fyrr
en hann hefur verið val-
inn í OL lið Breta í
greininni. Ovett hefur
þegar verið valinn til þess
að keppa í 1500 m fyrir
hönd Breta í Los Ange-
les.
Brady
til Inter
■ ítalska knattspyrnu-
félagið Inter Mílanó stað-
festi í gær að það hefði
gengið frá samningum við
Sampdoria um kaup á
írska landsliðsmanninum
Liam Brady.
Italskar fréttastofur
segja að Inter verði að
greiða um 1,6 milljón
dollara (ca. 48 millj. ísl.
kr.) fyrir Brady.
Júgóslavar
í steininn
■ Tuttugu manna hóp-
ur júgóslavneskra knatt-
spyrnumanna, dómara og
forráðamanna knatt-
spyrnuliða, hafa verið
dæmdir í 3 og 18 mánaða
fangelsi fyrir mútur,
skjalafals og misnotkun
á opinberum sjóðum.
Dómurinn var kveðinn
upp í borginni Tetevo í
Suðausturi- Júgóslavíu og
leikmennirnir sem mál-
inu tengjast eru leikmenn
með 2. deildarliðinu Ta-
teks Tetevo. Þeir fengu
12 til 18 mánaða fangelsis-
dóma. Tíu dómarar víðs
vegar að úr Júgóslavíu
fengu fangelsisdóma frá
3 uppí 7 mánuði. Þá voru
nokkrir framkvæmda-
stjórar knattspyrnuliða
tengdir málinu og fengu
þeir svipaða dóma.
Kvöldspörk
Hart barist í leik KA og Þróttar um síðustu helgi
NT-mynd Gylfi Kristjánsson
■ í kvöld fer fram einn leikur
í 1. deild og eigast við á Akur-
eyri KA og Breiðablik. Fyrir
leikinn er KA í fímmta sæti í
deildinni með 9 stig, en Breiða-
bliksmenn eru neðstir ásamt
KR og Val með 6 stig. Það er
því stutt á milli þcssara liða og
með sigri í kvöld þá kæmust
Blikarnir upp að hliðinni á þeim
norðanmönnum. Það verður
því hart barist á Akureyri og
ómögulegt að spá um úrslit
frekar en í öðrum leikjum í
deildinni.
KA-menn munu brydda
uppá ýmsu skemmtilegu fyrir
áhorfendur og mun kántrí-
stjarnan Hallbjörn Hjartarson
mæta á svæðið og skemmta fyrir
leik og í hlé. Þá mun Sigurður
Bjarklind, fallhlífarstökkvari
koma ofan úr háloftunum og
lenda á vellinum með knöttinn
sem keppt verður með rétt áður
en leikurinn hefst.
• Einn leikur verður í þriðju
deild og eigast Grindvíkingar
og Stjörnumenn við í Grinda-
vík. Verður þetta hörku leikur
og mikið í húfi fyrir bæði liðin.
f fjórðu deild verða 7 leikir.
Árvakur og Hafnir keppa á
Háskólav., Haukar og Aftur-
elding á Hvaleyrarholtsv.,
Augnablik og Víkverji í Kópa-
vogi, Ármann og Drangur á
Melavelli, Stokkseyri og Hvera-
gerði á Stokkseyrarv., Drangur
og Eyfellingur í Vík og Þór Þ og
Léttir í Þorlákshöfn.
Allir ofantaldir leikir hefjast
kl. 20:00.