NT - 26.06.1984, Síða 4
Þriðjudagur 26. júni 1984 4
„Leiðir til fækkun
ar hunda í borginni
- segir Oddur R. Hjartarson hjá
Heilbrigðiseftirlitinu um nýju
hundareglugerðina
■ „Okkur líst vel á þetta, reglu-
gerðin og ákvæði hennar munu
hiklaust leiða af sér fækkun hunda í
borginni en vissir aðilar munu fá
undanþágu til að halda hund,“ sagði
Oddur Rúnar Hjartarson hjá ileil-
brigðiseftirlitinu, er NT sló á þráð-
inn til að kanna afstöðu hans, til
nýju hundareglugerðarinnar sem er
til umfjöllunar i borgarstjórn.
„Þetta er alveg í samræmi við þau
markmið sem við settum fram, þar
sem þess var krafist að hundahald
yröi bannað í Reykjavík en hægt
yrði að fá undanþágu, að uppfylltum
ströngum skilyrðum“ hélt Oddur
áfram.
Benti hann á aö reglugerðin yrði
að fara fyrir heilbrigðismálaráð-
herra til staðfestingar, þ.e. ef hún
yrði samþykkt í borgarstjórn, en ef
hnökrar fyndust á henni endur-
sendir ráðherra hana til borgar-
stjórnar þar til úr þcim hefði verið
bætt.
Kvaðst Oddur vonast til að
reglugerðin leiddi til þess að hunda-
hald leggðist af í Reykjavík, per-
sónulega væri hann ekkert á móti
hundum, en þeir ættu lítið erindi í
borgir. Kvað liann fólk geta haft
ketti eða fugla, ef það á annað borð
þyrfti að hafa gæludýr.
Eitt af ákvæðum nýju reglugerðarinnar er að hundar verði að vera í bandi á almannafæri. Ekki verður uppá hann klagað þennan
herramann að hann fylgi ekki þeim fyrirmælum. Verra er það með ákvæðið um að hundar megi ekki vera á stjái í almenningsgörðum
frá 8 á morgnana til 9 á kvöldin, því þessi mynd var tekin um hábjartan dag í Hljómskálagarðinum! NT-mynd: au
Úrval:
Innbrotið
upplýst
■ Búið er að upplýsa inn-
brotið í Ferðaskrifstofuna
Úrval. Þrír piltar á aldrinum
16-18 ára voru handteknir á
föstudagskvöld og játuðu þeir
verknaðinn. Að sögn lögreglu
er hér um að ræða síbrota-
menn og játuðu þeir á sig ýmis
önnur innbrot og þjófnaði í
leiðinni.
Hjálpið lög-
reglu að upp-
lýsa innbrot
og þjófnaði
■ „Það myndi hjálpa
okkur mikið ef fólk léti vita
þegar verið er að bjóða
ýmsa muni til sölu,“ sagði
Helgi Daníelsson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins í
stuttu spjalli við NT í gær.
Helgi sagði að það hefði
verið mikið um innbrot og
þjófnaði í vetur og sérlega
miklu stolið úr bílum.
Fram kom í samtalinu við
Helga að erfitt er fyrir lögregl-
una að fást við ýmis svona mál
þar sem munir eru illa merktir
og eigendur oft ekki færir um að
gefa góða lýsingu á þeim. Hann
sagði að það gæti aukið líkur á
að fólk fengi aftur ýmsa muni
sem stolið væri ef hægt væri að
gefa lögreglunni góða lýsingu á
hlutunum.
Helgi sagði að nú væri stolið
miklu af videotækjum og út-
varps- og segulbandstækjum úr
bílum. Hann sagði að nokkuð
væri um að bílar væru skildir
eftir ólæstir og því auðvelt fyrir
þjófa að hafa á brott með sér
útvörp og talstöðvar
„Þessir hlutir eru síðan seldir
fyrir lítið verð og það myndi
hjálpa okkur mikið ef fólk léti
okkur vita þegar verið er að
bjóða ýmsa svona hluti ti! sölu
fyrir lítinn pening.
Hundaskatturinn
væntanlegi í Reykjavík:
„Fer um mig
að borga 4800
krónur á ári“
- segir Fríða Björnsdóttir
hundaeigandi
■ „Það fer nú dálítið um
mig að þurfa að borga 4800
kr. á ári fyrir að vera hunda-
eigandi“, sagði Fríða Björns-
dóttir hundaeigandi, er NT'
spurði hana álits á tillögu að
nýrri reglugerð um hunda-
hald sem var til fyrstu um-
ræðu í borgarstjórn fyrir
helgi. „Þetta er ansi mikið og
sýnu meira en bæði í Garöa-
bæ og á hinum stöðunum“,
sagði Fríða ennfremur.
Hún kvaðst að vísu ekki
vera búin að kynna sér reglu-
gerðina til hlítar en allt benti
til að það yrðu svo mörg
apparöt í kringum þetta að
það hlyti að þurfa aukafjár-
veitingu til að koma henni í
framkvæmd. Við þetta bætt-
ist svo ábyrgðartrygging og
hreinsun þannig að upphæð-
in yrði há. Þá þótti henni
mikið óréttlæti í því að fólk
gæti haft 20 ketti og þyrfti
ekki að borga krónu fyrir þá,
meðan hundaeigendur yrðu
skattpíndir, en hún tók það
jafnframt fram að nauðsyn-
legt væri að setja einhverjar
reglur um hundahald.
Fríða var einnig óhress
með annað atriði í reglugerð-
inni, en það er ákvæði sem
bannar eigendum að vera
með hunda sína í almenn-
ingsgörðum milli kl. 08.00 og
21.00. Fannst henni skrýtið
að ekki skyldi með öllu bann-
■ Fríða Björnsdóttir blaða-
maður: „Oréttlæti í því að
fólk sem er með 20 ketti þarf
ekkert að borga meöan
hundaegendur eru skattpínd-
ir.“
að að vera með hunda í
almenningsgörðum, úr því
farið var að banna það á
annað borð, því miklu meiri
líkur hljóti að vera á því að
gengið yrði sóðalega um
með hunda í skjóli nætur en um
hábjartan dag, þegar fjöldi
vegfarenda fylgist með gerð-
um hundaeigenda.
■ Myndin er tekin við undirskrift samningsins um landkynningarstarfsemi í Evrópu. Á myndinni
eru, talið frá vinstri: Böðvar Valgeirsson, form. Fél. íslenskra ferðaskrifstofa, Magnús Oddsson,
markaðsstjóri Arnarflugs, Sigfús Erlingsson, framkv. stjóri markaðssviðs Flugleiða, Omar
Benediktsson, forstöðumaður landkynningarskrifstofunnar, Skúli Þorvaldsson, formaður Sam-
bands veitinga- og gistihúsa, Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins og Birgir
Þorgilsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs.
Ferðakynning um
ísland í Evrópu
Arnarflugs og Flugleiða í nefndar „Upplýsingaskrifstofur
Evrópu verði á næstunni út- Ferðamálaráðs “.
Norræna bókavarðaþingið:
Samanburður á Norður-
löndum og Bandaríkjunum
■ Nú hefur endanlega verið
gengið frá samkomulagi sex ís-
lenskra aðila, sem allir tengjast
ferðamálum, um að reka kynn-
ingarstarfsemi í Evrópu, fyrst í
stað í Frankfurt í Þýskalandi.
Jafnframt hefur Ómar Bene-
diktsson, viðskiptafræðingur,
verið ráðinn forstöðumaður
starfseminnar.
Þeir aðilar sem að samkomu-
laginu standa eru: Arnarflug,
Flugleiðir, Ferðamálaráð,
Ferðaskrifstofa ríkisins, Félag
íslenskra ferðaskrifstofa og
Samband veitinga - oggistihúsa.
Auk þess að starfa náið með
öllum aðilum innan íslenskrar
ferðaþjónustu er Ómari ætlað
að sjá um upplýsingastreymi til
þeirra erlendu ferðaheildsala og
smásala, sem boðið hafa ferðir
til íslandsá undanförnurh áruni,
svo og að leita nýrra viðskipta-
sambanda á þessu sviði. Mikil-
vægur þáttur í starfi Ómars
verður að hafa sem mest og best
samband við fjölmiðla. með það
fyrir augum að koma á framfæri
greinum og upplýsingum um
Island.
Stefnt er að því að skrifstofur
■ Norræna bókavarðaþingið
heldur áfram í dag með ráð-
stefnum og erindum. Meðal
bitastæðustu atriða skal nefna
erindi dr. Edward Evans frá
Denverháskóla, sem ætlar að
fjalla um menntun bókavarða á
Norðurlöndum, séð með augum
aðkomumanns, og bera hana
saman við þróunina í Bandaríkj-
nnum. Hefur hann ljallað mikið
um þessi mál, dvalið á Norður-
löndunum og flutt þar fyrir-
iestra, m.a. við bókavarða-
skóla, og hann mim einnig hafa
skrifað bækur sem notaðar eru
við kennslu í bókasafnsfræði í
Bandaríkjunum og víðar. Er-
indið er flutt á ensku og hefst kl.
11.00 í sal B í Árnagarði.
Annað sem vert er að gefa
gætur er umræður um menning-
armálaskrif dagblaðanna og les-
endur þeirra á níunda áratugn-
um. Þar eru framsögumenn
prófessor Thomas Bredsdorff
frá Kaupmannahafnarháskóla
og Lars Hulden, sem er prófess-
or við háskólann í Helsingfors.
Umræðurnar hefjast kl. 14.00
og eru einnig í sal B. í Árna-
garði. Þá er sömuleiðis mjög
athyglisvert mál á dagskrá kl.
16.00 í sal B í Árnagarði en þá
fjallar Jes Petersen frá Bóka-
safnseftirlitinu í Danmörku um
norræna samvinnu um fram-
leiðslu og dreifingu hljóðbóka
og annars efnis fyrir blinda,
sjónskerta og aðra þá sem ekki
geta lesið venjulegar bækur.