NT - 26.06.1984, Blaðsíða 6

NT - 26.06.1984, Blaðsíða 6
Erlend hringekja Þriðjudagur 26. júní 1984 6 Leikstjóri Enemy Mine: Kominn á bekk með Spielberg ■ Sjálfsagt er flestum enn í fersku minni sprengjan sem féll þegar tilkynnt var að hætt hefði verið við töku kvikmyndarinnar Enenty Mine hér á landi, leik- stjórinn hefði verið rekinn, og annar ráðinn í staðinn. Nýi leikstjórinn er þýskur, heitir Wolfgang Petersen og skapaði sér nafn með kvik- myndinni Das Boot. Hún var um kafbát í síðari heimsstyrj- öldinni og því býsna ólík því sem Enemy Mine á að verða. En Petersen hefur þegar tals- verða reynslu í gerð ævintýra- mynda. Síðasta mynd hans heit- ir „Sagan sem aldrei tekur enda“, The Neverending Story, en hún er gerð eftir vinsælli bók þýska rithöfundarins Michael Ende. Þrátt fyrir misjafna gagn- rýni á myndina, meðal annars hefur Ende fordæmt hana, er myndinni geysivel tekið af áhorfendum í Þýskalandi og víðar sem flykkjast á hana í stórum hópum. Sérstaklega vel þykir hafa tekist með tæknibrellur í mynd- inni og aðalstjarna hennar er fljúgandi drekinn Falkor sem er risastór brúða, stjórnað af tugum manna. Þegar brúðan talar þarf 19 manns til að hreyfa varir hennar. Peterson fékk sérfræðinga í kvikmyndagerð frá Bandaríkj- unum og Bretlandi til að hjálpa sér við gerð þessarar myndar.“ „Ég ákvað að gera góða, vinsæla og velheppnaða mynd en til viðbótar vildi ég reyna að veita þekkingu á kvikmyndagerð inn í Þýskaland til að þar sé hægt að gera stórmyndir sem ná metað- sókn víðsvegar um heiminn“, sagði hann í viðtali. ■ Tvær aðalpersónur myndarinnar The Neverending Story, í flugferð: flugdrekinn Falkor og drengurinn Atreyu, sem leikinn er af Noah Hathaway. Egyptaland: Fjársjóðsleit í flaggskipi Napoleons ■ Kafararhafafundiðpeninga og pístólur úr flaggskipi Napo- leons Bonaparte, L’Orient, sem Bretar sökktu undan ströndum Egyptalands árið 1798. Fransk-egypskur björgunar- leiðangur hefur undanfarið ver- ið að rannsaka flakið og vonast björgunarmennirnir til þess að hægt sé að ná því upp á yfirborð- ið, en talið er að í því sé talsvert af gullstöngum. Stjórnandi leiðangursins, Jaques Dumas, sagði að þessi fundur væri góðs viti og mun meira leyndist í sjónum. Öldu- gangur og slæmt skyggni gerði köfurunum erfitt um vik. Flakið L’Orient, fannst í fyrra en skipið var skotið niður þegar Nelson flotaforingi króaði franska flotann af en á honum hafði Napoleon og her hans sigilt til Egyptalands. Franska flotanum var gereytt í bardag- anum á Níl. L’Orient sprakk í loft upp með 1000 manna áhöfn og öðrum skipum var sökkt eða þau tekin herskildi. Napoleon var þó áður kominn í land og honum tókst síðar að flýja frá Egyptalandi og ná völdum í Frakklandi. Sumir fræðimenn vilja halda því fram að meginþorri gull- stanganna úr L’Orient hafi verið fluttur á land fyrir orrustuna, en björgunarmenn eru samt bjart- sýnir á að finna fjársjóðinn um borð í flakinu. ■ Herförín til Egyptalands varð Napóleon mikla ekki til fjár en eftirkomendur hans njóta ef til vill góðs af henni nú. ■ Breski rithöfundurinn Ger- ald Brenan, sem er níræður að aldri, kom aftur til Spánar ný- lega, 40 dögum eftir að hann hafði farið til Bretlands til að dveljast á heilsuhæli, en spænska þjóðin hafði krafist þess að honum yrði gert klei'ft að snúa aftur. Brenan, sem skrifað hefur ritverk um Spán og Spánverja, yfirgaf heimili sitt í Suður Anda- lúsíu vegna þess að enginn var þar til staðar til að hugsa um hann. Fréttir af því, og blaðaljós- myndir af Brenan í ókunnug- legu umhverfi í heilsuhæli í Middlesex, komu af stað sam- úðarbylgju um allan Spán. Yfirvöld í Andalúsíu og spænski sendiherrann í London tóku þá saman höndum og hétu því að séð yrði um Brenan ef hann snéri aftur til Spánar. „Ég ætla að halda áfram að skrifa og ég er nú að undirbúá bók um lífið og dauðann”, segir Brenan við fréttamenn á flug- vellinum í Madrid við komuna til Spánar. spila Heims um ból á píanó í gegnum símann. Símastúlkan í Hvíta húsinu hefði nefnilega neitað að leyfa stúlkunni að spila fyrir Ronald Reagan. „Dóttirin spilaði nú ekki svo ýkja vel,“ var haft eftir sendi- ráðsmanninum í Moskvu seinna. „Reagan forseti missti ekki af miklu.“ Ár hvert hringja nokkrir í sendiráðið fullvissir um að þeir fái samband við Kreml. Flestir þeirra eru vissir um að þeir hafi lausnina á vandamálum heims- ins á reiðum höndum ef þeir nái aðeins sambandi við rétta aðila. t Maðurinn minn og faðir okkar Páll Elíasson bóndl og hreppstjóri Saurbæ Holtahreppl lést á Landakotsspítala 22. júní. Margrét Erlendsdóttir synir og tengdadætur. Halló, er þetta Moskva? Hvernig er veðrið þarna? Þegar barirnir voru um það skiptavinurinn að það væri alveg bil að loka í Pennsylvaníu í ófært að Sovétmenn kæmuekki Bandaríkjunum ákvaðeinn við- á Ólympíuleikana, svo hann Hóruhús gert út á sjúkratryggingar ■ Lögreglan í New York lok- aði í vikunni gleðihúsi sem rekið var af sálfræðingi. Um 500 karl- ar voru fastagestir hjá sálfræð- ingnum og borguðu sjúkra- tryggingarnar greiðann. Við- skiptavinirnir gengu til sálfræð- ingsins til að leita lausnar á kynferðisvandamálum sínum. Sálfræðingurinn Alan Pearl rak fyrirtækið ásamt tveim öðrum og var það skráð sem stofnun til að leysa kynferðisleg vandamál. „Sjúklingarnir” sem sóttu gleðihúsið greiddu sem svarar 4.500 krónum fyrir viðtalið. Tekið var á móti þeim af val- kyrjum sem veittu þeim lausn frá kynferðislegum vandamál- um, um sinn að minnsta kosti. Eftir meðferðina útfýllti Pearl sálfræðingur út eyðublað, sem The Times: Býður lesendum verðbréfabingó ■ Dagblaðið The Times, í London hefur hingað til verið höfuðvirki íhaldsamra og gam- aldags blaða. En öll virki falla um síðir: nú hefur blaðið tekið upp áskrifendabingó, að vísu í þróuðum stíi, til að örva söluna. Bingó hefur um áraraðir verið aðalvopn í áskrifendaherferð- um þeirra blaða sem kennd eru við gula litinn í Bretlandi en þetta er í fyrsta skipti sem dagblað af virðingarverðara tag- inu reynir þetta. Lesendur Tim- es fengu plastspjöld með síðasta helgarblaðinu og á spjöldunum voru númer sem svara til hluta- bréfa sem getið er um í verð- bréfadálki blaðsins. Þeirlesend- ur sem „draga“ þau hlutabréf sem hækka mest í verði á einum degi eða viku geta unnið allt að 20.000 sterlingspund eða 800.000 íslenskar krónur. Önnur blöð í Bretlandi hafa brá sér út i næsta símaklefa og ana" drafaði hann í símann. hringdi til Moskvu: „Mér þykir p»vf miður var maðurinn ekki virkilega vænt um ykkur strák- að taja við Rússa heldur amer- ískan sendiráðsstarfsmann í Moskvu en þangað er flestum beint.. Tugir Ameríkumanna hringja til Moskvu árlega, að sögn starfsfólks sendiráðsins, aðallega í sambandi við atburði sem vekja heimsathygli, s.s. ákvörðun Sovétmanna að fara ekki á Ólympíuleikana og þegar þeir skutu niður suður-kóresku farþegavélina. Maðurinn sem hringdi frá Pennsylvaníu var einn af mörg- um sem hringdu vegna Ólym- píuleikanna. Flestir voru frekar undrandi en reiðir. Einn sem hringdi frá Oregon vildi láta sendiráðið undirbúa stefnumót við Chernenko, þar sem hann var viss um að Chernenko myndi skipta um skoðun ef rætt væri við hann eins og maður við mann. Margir sem hringja eru við skál en aðrir eru einmana, ótta- slegnir, eða gera sér þetta ein- faldlega til gamans. Haft er eftir konu í sendiráðinu að mörgum finnist þetta heilmikil skemmtun: „Je minn,“ segja þeir, „er þetta virkilega í Moskvu? Hvernig er veðrið þarna?“ Margar furðulegar sögur eru sagðarafþessumsímtölum. Um jólaleytið í fyrra hringdi kona og tilkynnti að hún hefði áhyggj- ur af þvf hvað samband Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna væri slæmt. Hún hefði hringt í Hvíta húsið en ekkert fengið út úr því og þess vegna hringt til Moskvu. Konan vildi láta sendiráðs- starfsmenn hlusta á dóttur sína þeir fóru síðan með til sjúkra- tryggingafélaga sinna og fengu endurgreitt, þar sem þeir höfðu leitað sérfræðingslausnar á kyn- ferðislegum vandamálum sínum. Starfsemin var afhjúpuð af lögreglukonu sem send var í hóruhúsið til að leita eftir vinnu. Grunur hennar vaknaði þegar hið fyrsta sem hún var beðin um að gera var að fara úr fötunum. hent gaman að þessu bingói hjá The Times. Þau hafa varað við því að þetta geti valdið óvana- legum og ef til vill hættulegum æsingi við morgunverðarborð yfirstéttarinnar í Bretlandi. Eigandi The Times, ástralski blaðakóngurinn Rupert Murdoch, notaði bingó með góðum árangri til að hressa upp á söluna á síðdegisblaðinu sínu The Sun. Spánn: Þjóðareining um breskan rithöfund

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.