NT - 26.06.1984, Síða 5
■ „Það voru töluvert á annað
hundrað manns sem komu hing-
að til Grímseyjar um Jóns-
messuhelgina, enda mjög fallegt
veður. Það voru um 70 Húsvík-
ingar sem komu á bát, um 50
Dalvíkingar og svo slatti af allra
þjóða kvikindum, líklega um
35-40 manns, sem kom með
flugi. Jú, allir fóru norður fyrir
heimskautsbauginn og fengu
skjal upp á það. Síöan var ball
og fínerí um kvöldið“, sagði
Guðmundur Jónsson í Grímscy
í samtali við NT í gær.
-Þetta fór allt ágætlega fram,
sagði Guðmundur. Hversu
margra glóðaraugna ball þetta
var veit ég ekki nákvæmlega, en
líklega innan við 10, sem þykir
nú ekki nema svona meðal ball.
A.m.k. sá ég engan almenni-
lega fjólubláan.
Jú, þetta var óvenjulega fjöl-
mennt núna miðað við síðustu
ár. Hins vegar sá maður oft
svona fjölda meðan gamli
Drangur var og hét - þá kömu
svona skarar tvisvar í viku yfir
sumarið. Nú hefur fólk hins
vegar ekkert nema flugið upp á
að hlaupa. Bæði er að það er
ekki pláss nema fyrir örfáar
hræður í núverandi Drang og
svo er hann svo lengi á leiðinni
SRiHSEY
L0N00K
Metveiði í
Vatnsdalsá
■ „Mér skilst að þetta sé metveiði
í ánni á þessum tíma. Við fengum
eina 50 á þremur dögum og meðal-
þyngdin var 12 pund. Sá stærsti 24,“
sagði Sveinn Jónsson, rafeindavirki,
þegar NT náði tali af honum ný-
komnum úr Vatnsdalsá í gær.
Sveinn var í sex manna holli sem
byrjaði að veiða á hádegi á föstudag-
inn. Hann sagði að fiskurinn hefði
fengist um alla á og tekið jafnt öll
veiðarfæri. „Ég býst við að helming-
urinn hafi náðst á flugu og afgangur-
inn á maðk og spún. Og flugan sem
gaf besta raun var af gerðinni
„Garry“.
Góðar horfur í
Svartá
■ „Við vorum að fá þær gleðifrétt-
ir að laxinn er farinn að ganga upp
stigann úr Blöndu í Svartá. Þeir
sögðu.mér að um helgina hefðu 110
laxar verið farnir í gegnum teljarann
og að auki má búast við að eitthvað
hafi komist framhjá stiganum,“
sagði Friðrik Stefánsson hjá Stang-
veiðifélagi Reykjavíkur í samtali
við Veiðihornið í gær.
Veiðin í Svartá hefst ekki fyrr en
1. júlí, en Friðrik sagði að ef marka
mætti teljarann væru góðar horfur.
„Við erum að vona að það sé rétt
sem sumir hafa haldið fram, að
að það eru öll veður liðin hjá
- bæði góð og vond - áður en
hann kemst loksins hingað. Það
má ekki blása einu sinni 1 til 2
vindstigþá er þetta algerlega
stopp - hann getur verið eina 10
tíma hingað frá Akureyri. í
sæmilega ganggóðum bát er
þetta ekkert ferðalag, en þetta
er eiginlega bara prammi.
Guðmundur hafði og frá jreim
menningarviðburði að segja að
skyndibitastaður hefur nú verið
opnaður í Grímsey. - Pólargrill
- finnst þér það ekki flott nafn
hjá okkur? Jú, allar veitingar
heita Pólar-, Pólarborgarar og
annað eftir því.
- En vantar ykkur ekki Pól-
arbjór?
- Blessuð vertu - það er
Pólarbjór líka - kannski ekki
nógu sterkur, en það er nú
ekkert mál að laga það. Nei,
það ná engin lög norður fyrir
heimskautsbauginn, eða alla-
vega eru þau ekki virt. Það er
ekkert að gera við þessi lög sem
eru ekki til annars en að brjóta
þau, sagði Guðmundur og
brosti í kampinn.
■ Hér liggur Heimskautsbaugur
um Grímsey eins og meðfylgj-
andi skilti bera með sér, og
norðan hans er hægt að
drekka Pólarbjór í friði eða
hvað?
■ Rúta Kvennalistans, fánum (svuntum) prýdd á Norð-
firði, er þær kvennalistakonur stöldruðu þar við, á ferðalag-
iuu.
Hringferð kvennalistans:
„Vakning á
meðal kvenna
■ Eins og NT hefur greint
frá, þá hafa kvennalistakonur
gert víðreist um landið að
undanförnu á kvennarútunni.
Þær hafa nú heimsótt velflesta
kaupstaði landsins og þingað
með kynsystrum sínum um
málefni og stöðu kvenna í
okkar kynskipta þjóðfélagi. í
gær voru þær staddar á Pat-
reksfirði en eiga þá m.a. eftir
að heimsækja Stykkishólm,
Hellissand og Akranes, áður en
þær komast á heimaslóðir á
nýjan leik.
Að sögn Kristínar Ástgeirs-
dóttur, starfsmanns Kvenna-
listans, þá liefur ferðin gengið
mjög vel og fundir verið haldn-
ir með góðri aðsókn á öllum
stöðum hingað til. Það vekur
athygli kvennalistakvenna að
‘ aðsóknin hefur síst verið
rninni á smærri stöðunum,
jafnvel meiri. „Ég tel alveg
ótvírætt að það er mikil vakn-
ing á rneðal kvenna um þessar
mundir, mun meiri en almennt
kemur f Ijós daglega, enda
hafa konur ekki haft neinn
vettvang til þess að koma sín-
um málum á framtæri og ræða
þau“ sagði Kristín Ástgeirs-
dóttir í samtali við NT. „Þátt-
taka kvenna á þeirn fundurn
sem haldnir hafa verið sýnir
það að konunr þykir að sér
sorfið. Konur hafa komið úr
öllum stjórnmálaflokkum til
þess að taka þátt í umræðunni
og ræða réttindamál kvenna
t.d. varðandi launamál,"
sagði Kristín. Hún gat þess
loks til gamans að söluvarning-
ur kvennalistans, bolir, nær-
buxur og sokkar, allt merkt
kvennalistanum hefði selst eins
og heitar lumrnur. En varning-
ur þessi var meðal þess sem
átti að fjármagna ferðalagið.
lægðirnar í ánni standi ekki nema
tvö til þrjú ár. Nú hafa þrjú sumur
brugðist og kúrfan ætti samkvæmt
því að vera á uppleið.“
Hann sagði að veiðin í Blöndu
hefði verið mjög góð það sem af er,
en hún hófst 5. júní.
Sportveiðiblaðið
komiðút
■ Fyrsta hefti Sportveiðiblaðsins
á þessu ári er komið út. í blaðinu,
sem er allt hið vandaðasta, er
jöfnum höndum fjallað um lax-,
silungs- og skotveiði. Meðal efnis er
ítarlegt viðtal um laxveiði við
Steingrím Hermannsson, forsætis-
ráðherra og annað við Kristján
Sigmundsson, sem veitt hefur yfir
7000 laxa um ævina. Báðir segja að
vonum mergjaðar veiðisögur.
Einnig er í blaðinu könnun á
verði veiðileyfa í 65 ám og svo
auðvitað „ótrúlega veiðisagan," en
í henni segir Hinrik ívarsson frá
Merkinesi frá því þegar hann veiddi
sama silunginn tvisvar.
Samvinnubankinn á Grundarfirði
mun frá og með miðvikudeginum 27. júní nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
;ipn
■ Það vantar ekki skemmtilegar
veiðisögur í Sportveiðiblaðið, en
fyrsta tölublað þess á árinu er nýlega
komið út.
vínnubankínn
Grundarfirði
Þriðjudagur 26. júní 1984 5
Glóðaraugu innan við tíu í
Grímsey um Jónsmessuhelgi
- Pólargrill og pólarbjór, því engin lög ná norður fyrir heimskautsbaug