NT


NT - 26.06.1984, Side 19

NT - 26.06.1984, Side 19
Sovéskir fjölmiðlar: Skera upp herör gegn drykkjusýki Moskva-Rcuter ■ Málgagn Sovétstjórnarinn- ar, Izvestia, sagði í gær að börn hefðu farist í eldsvoðum sem drukknar mæður hefðu valdið, og krafist þess að aðgerðir í barnaverndunarmálum yrðu hertar. Blaðið sagði frá fjórum tilvik- um þar sem kófdrukknar konur urðu þess valdandi að eldur kom upp í íbúðum þeirra, og sagði að alls hefðu 13 börn og fjórir fullorðnir farist í þessum eldsvoðum. Blaðið sagði að mæðurnar færu yfirleitt að drekka ef eigin- menn þeirra væru drykkjusjúkl- ingar fyrir. Afleiðing þessa væri sú að börnin væru í tvöfaldri hættu: Ekki aðeins líkamlegri heldur væru þau oft skilin eftir matarlaus. Izvestia, krafðist þess að lög um barnavernd yrðu hert þann- ig að hægt væri að taka börn frá foreldrum sem væru drykkju- sjúklingar, og setja þau á barna- heimili. „Hvort er betra fyrir börnin, að vera án móðursinnar eða skilin eftir hjá einhverri beiskri fyllibyttu sem getur aðeins kallað sig móður í skjóli löggiltra skjala og vanrækslu yfirvalda" segir í blaðinu. Þessi grein er síðasti vitnis- burður um aukna baráttu fjöl- miðla í Sovétríkjunum gegn drykkjusýkinni sem er talin vera mesta þjóötélagsmein þar. Þriðjudagur 26. júní 1984 1 9 ■ Eanes forseti Portúgal varð stcinhissa á framkomu Margrétar II. Danadrottningar er hann tók á móti henni í Lissabon í gær. Hnerra setti að drottningunni þegar hún sté af skipsfjöl og þegar svo stendur á er ekkert annað að gera en grípa fyrir nefið, jafnvel þegar þjóðhöfðingjar eiga í hlut. Drottningin kom ásamt eiginmanni sínum til Portúgal í gær á konungsskenkkjunni Dannebrog. Hér er mynd af hinni virðulegu móttökuathöfn. Soaresforsætisráðherra er upptckinn af því að líta í hina áttina. Símamynd Polfoto. Litháen: Viðreisn iðnað- ar gengurvel Vilnius, Lithácn-Rcuter ■ Tilraun til viðreisnar iðn- aðar í Sovétríkjunum hefur borið góðan árangur í Litháen, að sögn ráðamanna. Þessi til- raun, sem felst í því að gefa framkvæmdastjórum verk- smiðja frjálsari hendur til ráð- stöfunar fjármagns og ákvarð- anatöku, var gerð að frum- kvæði Yuri Andropov, fyrrum forseta Sovétríkjanna, og hófst 1. janúar s.I. Þessi tilraun sem gerð er á nokkrum útvöldum stöðum og verksmiðjum í Sovétríkjunum, hefur komið mjög vel út í Litháen. Þar hefur framleiðsla á ýmsunt neysluvörum aukist um 14% þrátt fyrir að magn hráefnis sé það sama. Tilraunin á að standa yfir í tvö ár en þá verða niðurstöðurnar metnar. Tilraunin felst aðallega í því að auka bónusgreiðslur til verkamanna í samræmi við aukna framleiðslu. Þeir verka- menn sem vinna vel fá betra húsnæði, og þær verksmiðjur sem koma best út fá aukið fjármagn. Á móti kemur að ef verksmiðjur uppfylla ekki kröfur sem gerðar eru til þeirra er framlag til þeirra skert. íran-írak: Milljón manns til- búnartilstórorustu Washington-Reulcr. ■ Brátt getur komið að því að orustan mikla milli íran og írak hefjist, sagði Weinberger varnar- málaráðherra Bandaríkjanna á blaðamannafundi í gær. Lengi hefur verið beðið eftir að íranir hæfu áhlaupið á landamærunum og taldi ráðherrann að ef úr því yrði myndi verða háð mann- skæðasta orusta síðan í fyrri heimsstyrjöldinni. Hvor stríðs- aðli um sig hefur safnað saman 500 þúsund manna liði sinn hvoru megin landamæranna. Ráðhcrrann sagðist ekki sjá þéss nein nterki að ríkin tvö semji vopnahlé. Þeir skilmálar sem íranir hafa sett til að ljúka ófriðnum eru fráleitir, og ekkert ríki gæti gengið að þeim. Lið- ssafnaður Irana hefur staðið yfir í nokkrar vikur og meðal árásar- liðsins eru börn og unglingar og kvað ráðherrann hræðilegt til þess að hugsa að þeim yrði att á móti vel vopnuðum hersveitum íraka. íranska stjórnin á ekki hægt um vik að kalla allt þetta lið heim frá landamærunum. Heima fyrir hefðu mennirnir ekki að neinu að hverfa, at- vinnuleysi er mikið og ef fjöld- inn snéri aftur til síns heima gæti það valdið ókyrrð og aukið á mótstöðuna gegn stjórninni. Weinberger sagði að verið gæti að ekki kæmi til stórorust- unnar, en þegar búið er að safna saman herafla af þessari stærð- argráðu og ala nteð honum ofs- tæki og hatur getur allt skeð og er allt útlit fyrir að háð verði hræðileg mannskæð orusta. Ráðherann sagði að Banda- ríkin mundu halda við þá stefnu sína að Italda siglingaleiðum um Persaflóa opnunt og ef vinveitt ríki við flóann þurfa á frekari hernaðaraðstoð að halda mundi það verað athugað vandlega. atvinna - atvinna Laus staða Staða ritara í sjávarútvegsráðuneytinu er laus til umsóknar. Um framtíðarstarf er aö ræða. Góð vélritunarkunnátta er nauösynleg svo og einhver tungumálakunnátta. Skriflegar umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum sendist ráöuneytinu að Lindargötu 9, 101 Reykjavík, eigi síðar en 6. júlí n.k. ísafjarðarkaup- staður - Atvinna Byggingafulltrúi Staða byggingafulltrúa ísafjarðarkaupstaðar er auglýst laus til umsóknar. Um menntun og störf er vísað í gildandi byggingarlög og byggingar- reglugerðir, en auk þess er um að ræða störf á tæknideild kaupstaðarins. Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri og forstöðumaður tæknideildar í síma 94-3722 eða á skrifstofu bæjarstjóra fyrir 9. júlí n.k. Bæjarstjórinn á ísafirði Verslunarstjóri Viljum ráða verslunarstjóra í matvöru- og bús- áhaldaverslun á Hvolsvelli. Upplýsingar gefur Kaupfélagsstjóri. Kaupfélag Rangæinga uppboð Auglýsing um uppboð í Dalasýslu Eftir kröfu Ólafs Axelssonar hrl. fer fram opinbert uppboð á húseigninni Bakkahvammi 6, Búðardal, Dalasýslu, þinglýst eign Jóns Hauks Ólafssonar. Uppboðið fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. júní 1984 kl. 14.00. Frumvarp að uppboðsskilmálum, veðbókarvott- orð og önnur skjöl er varða sölu eignarinnar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og skulu athuga- semdir komnar til uppboðshaldara eigi síðar en viku fyrir uppboðiö, ella mega aðilar búast við að þeim verði ekki sinnt. Sýslumaður Dalasýslu 13. júní 1984 tilkynningar Ávarp til þeirra sem hlut eiga að máli í söfnun vegna sjóslyssins við Bjarneyjar 31. okt. 1983. Nokkurt fé safnaðist til styrktar björgunarsveitum og stuðnings aðstandendum, sem hefir verið skipt í dag. Öllum gefendum er þakkað virktavel. Öllum sem á einn eða annan hátt hafa vottað samhug og stuðning biðjum við blessunar Guðs. Stykkishólmi 19. júní 1984 Gísli H. Kolbeins Jóhannes S. Árnason Ellert Kristinsson. Aðalfundur Arnarflugs h/ verður haldinn að Hótel Sögu 2. hæð, miðvikudaginn 11. júlí n.k. og hefst hann kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 15. gr. sam- þykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar félagsins um hækkun hlutafjár með áskrift nýrra hluta. Tillaga stjórnar um hlutafjárhækkun, en þar er lagt til að hluthafar eigi til 15. ágúst n.k. rétt á að skrá sig fyrir nýjum hlutum í réttu hlutfalli við hlutaeign sína, liggur frammi á skrifstofu félags- ins, Lágmúla 7, Reykjavík, til athugunar fyrir hluthafa. Stjórnin

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.